Tíminn - 16.04.1978, Blaðsíða 1
Siðumúla 15 ■ Pósthólf 370 • Reykjavík • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
\l " \Á
’ ; 111 rt/yxlfr.-' ».■/;•
: ■ |' , J ' Wt N \ 1
I1 {iiSffi1/ - I / r* «|%l m L •<v<: |k V;
,
w ' > * \ Ra \ w
I \í ■■
Sjá, vor-
ið er í
nánd
Þeir eru farnir að
vinna i skrúðgörðunum,
því bráðum kemur
sumarið sunnan yfir
hafið, og þá grænkar
svörðurinn og trén
laufgast á fáum dögum.
Það er ekki seinna
vænna að klippa trén,
þvi að þau vita, hvað i
vændum er, og safinn
frá rótunum tekur að
stiga upp stofninn og
seytla út i hverja grein ~
og hvern sprota. Sé þess
konar snyrtingu frestað
of lengi, „blæðir”trjám
og runnum. Safinn
rennur þá úr sárinu, og
þess konar „blóðmiss-
ir” er ekki hollur, ef
mikil brögð eru að hon-
um.
Þetta ættu þeir lika að
athuga, er eiga garða
við hús sin. Þurfi að
klippa greinar af runn-
um/eða trjám, er bezt
aö gera það strax.
Timamynd: Róbert
Reykhólaverksmiðjan í
gang eftir hálfan mánuð
Þegar fengið meira af heitu vatni og mikill hugur i
Breiðfirðingum að stunda þangskurð i sumar
JH — Ef svo fer sem horfir, mun
vinnsla hefjast i þörungaverk-
smiðjunni á Reykhólum um
næstu mánaðamót, og er skip
hennar, Karlsey, farið vestur
með tæki handa fyrstu gengjun-
um, sem hefja efnisöflun, Jarð-
borinn, sem seint og um siðir
fékkst vestur, lauk þvi á tiu dög-
um að dýpka aðra borholuna,
sem verksmiðjan hefur fengið
úr heitt vatn, úr sex hundruð
metrum i 1040 metra, og er tal-
ið, að úr henni muni nú fást tólf
til fimmtán sekúndulitrar til
viðbótar þvi, sem áður var.
Jafnframt hefur verið undirbúin
borun nýrrar holu, og er högg-
bor, sem notaður hefur verið við
það, kominn á þrjátiu og þriggja
metra dýpi.
— Ég vil ekki fullyrða neitt
um vatnsaukann, sem við fáum,
fyrr en búið er að mæla rennslið
og hitastigið og prófa vatnið við
rekstrarskilyrði, sagði
Vilhjálmur Lúðviksson,
formaður verksmiðjustjórnar,
er Timinn sneri sér til hans. En
standist þessar fréttir, sem við
höfum fengið, höfum viö til
umráða nær þvi tvöfalt meira
vatn úr þessari borholu en við
fengum i fyrra.
Að þvi er stefnt, að verk-
smiðjan fái um tvö. þúsund
lestir af blautu þangi til vinnslu
á mánuði i sumar, sagði
Vilhjálmur enn fremur, og er
það tvöföldun frá þvi i fyrra.
Fáist nægjanlega mikið af heitu
vatni er hugsanlegt, aö við get-
um unnið tvö þúsund og fimm
hundruð til þrjú þúsund lestir á
mánuði, ef tvær vinnuvaktir
væru i verksmiðjunni.
Vilhjálmur sagði einnig, að
mikill hugur væri i mönnum
vestra að safna þangi, og væri
svo að heyra, að vilji væri til
þess að koma upp einum tiu
söfnuriarstöðvum. t fyrra voru
þær þrjár eða fjórar, og i raun-
inni myndi ekki þurfa nema sex
til sjö, þrátt fyrir aukna vinnslu,
ef afköst gengjanna yrðu svipuð
og þau voru i fyrra.
Tvö gengi eru að hefja þang-
skurö við Hvammsfjörð, þar
sem ekki var neins aflað i fyrra,
og eitt á Reykhólum. Von er til
þess, að fljótlega hefjist þang-
skurður á Skarðsströnd og eitt-
hvað seinna úti i Breiðafjaröar-
eyjum og vestur i fjörðum. Loks
er hugur i skólafólki i Stykkis-
hólmi að taka þátt i þangskurði.
Þörungaverksmiðjan tekur
nú sjálf við rekstri jarðvarma-
veitunnar, sem áður var á veg-
um Jarðvarmaveitna rikisins,
og hún ber einnig ábyrgð á
framkvæmdum við öflun meira
heits vatns.
— Tilraunir standa yfir með
gerð þaraseyðis, sem notað er
bæði til áburðar og i snyrtivör-
ur, er nú eftir að sjá, hvérnig
tekst að koma þessu þaraseyði i
verð, sagði Vilhjálmur. En um
þetta atriði til ég ekki fjölyrða á
þessu stigi. Það verður að biöa
þar til við erum komnir betur á
rekspöl með þetta nýmæli.
Að lokum lét hann þess getið.
að berg á Reykhólum virtist til-
tölulega auðunnið fyrir jarðbor-
ana, og ætti það sinn þátt i þvi,
að borunin hefði gengið greitt.
Tafir heföu engar orðið, eftir að
borinn var kominn til starfa,
nema litils háttar fyrst i stað
vegna ónógs vatns til kælingar.
B 1 : Ráðbarður:
Að
UffpMÍ jljf ju fara
ffM B ÍIEífSíít jpilb f v U M mml M ' aftan
Menningar- sjóður að
50 ára fólki
bls. 16-17 bls. 2
Endurnýjun
er oftast
til bóta
ræðir við
Björn
Stefánsson
kaupfélags-
stjóra
Rannsakar atferli refa
ífeigsfirði bls. 36
Margir ætla að
klífa Himalaja
bls. 22-23