Tíminn - 16.04.1978, Blaðsíða 8

Tíminn - 16.04.1978, Blaðsíða 8
8 Sunnudagur 16. april 1978 Laug i Haukadal 20. júli 1976 Byggt og búið í gamla daga Litum á 20 ára gamla mynd er Gunnar Sverrisson tók á Kirkju- bæjarklaustri — hjá séra Gisla. Þaö er lif i þvi öllu,rakstrarvél- inni, kúnni og klárnum! Góð hjú öll þrjú. Er þetta Búkolla?, sagði litill snáði. Jæja, þá það, þú skalt fá það þegar hún Skjalda ber” raulaði roskin kona fyrir munni sér. Úr hvaða leikriti hafði hún þetta? Þið get- ið spreytt ykkur. Guðrún Tómasdóttir Skógum undir Eyjafjöllum sendir myndirnar af gömlu f járréttinni og heyskap á Þorvaldseyri. Réttin var fjárrétt Holtshverf- inga (V-Eyjafjöllum) i Njóla- dal. Varð full af ösku eftir Heklugosið 1947. Var ekki hreinsuð né notuð eftir það. Á hinni myndinni er verið að moka heyi á vagn Ólafs Páls- sonar á Þorvaldseyri, en Ólafur var með fyrstu bændum á Suðurlandi til þess að nota hey- vagna. Telpan virðist albúin að aka heyinu i garð. Stórbú er á Þorvaldseyri eins og kunnugt er. 20. júli var undirritaður staddur austur i Haukadal i Biskupstungum að athuga gróð- ur á friðaöa svæðinu við Geysi. Gekk dálitið um nágrennið og tók þá þessa mynd af Laug, þriggja bursta bóndabæ. Hey lá i flekkjum á túninu, en sumt sett upp i bólstra eða galta. útihús sjást t.h. Fjallið of.an við bæinn er allmikið blásið og bert á köfl- um. Heyrt hafði ég fyrir. löngu getið Jóns frá Laug, manns sem ræktaði ætisveppi og hafði tekið þátt i Grænlandsleiðangri, ef ég man rétt? Ljúkum þættinum i Suðurgötu i Reykjavik undir greinum hlynsins mikla, en limar hans bera i mikið, rautt gamalt timburhús nr. 8. Hefur sómt sér vel á sinum duggarabandsár- um, en er litt við haldið. Til hægri sér á hús Helga Hjörvar, litið að visu en leynir á sér, var eitt sinn sagt — og átti bæði við húsið og eigandann. Húsið t.v. hýsir nú oft listsýningar. Einn af heyvögnum Ólafs Pálssonar á Þorvaldseyri Á Kirkjubæjarklaustri fyrir 20 árum t Suðurgötu Reykjavík 29/5 1976

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.