Tíminn - 16.04.1978, Blaðsíða 25
Sunnudagur 16. aprfl 1978
iH'iíIlliÍ'
25
Árið 1973 varð haglhrið fjór-
um Japönum að bana aðeins 50
hæðarmetrum frá tindinum.
Skotinn Ian Clough lét lifið á
siðasta degi brezks leiðangurs i
sunnanverðu Annapurna.
Austurríkismaðurinn Franz
Tegischer fórst þar i snjóflóði og
á siðasta ári hálsbraut Italinn
Luigino Henry sig i gjá i fjall-
inu.
Konurnar telja það hafa tákn-
rænt gildi að Annapurna var
fyrsti tindurinn á Mount E-
verest sem klifinn var en nú eru
þeir orðnir 14. Það gerðu Frakk-
arnir Louis Lachenal og
Maurice Herzog (siðar iþrótta-
málaráðherra de Gaulles) 1950
og sfðan hefur aðeins tvivegis
tekizt að kli'fa þennan tind.
' „Konurnar eru aldar upp við
að feta i fótspor karla”, segir
Liz K lobusicky-Mailander
lektor i Tiibingen. Þó er langt sið
an konur sönnuðu getu si'na i
háfjallaferðum. Junko Tabei frá
Japan komst fyrst kvenna á tind
Mount Everest i mai 1975 i fylgd
Ang Tsering frá Himalaja.
A „dauðasvæðinu” i yfir 7000
m hæð þar sem likaminn brenn-
ir miklu jafnvel i' hvild „standa
velþjálfaðar konur sig mjög
vel” segir Arlene Blum sem
vinnur að rannsóknum á
krabbameini. Konur eru léttari
en karlar, hafa minni súrefnis-
þörf og þola betur mikið erfiði
ogkulda vegna þess að þær hafa
tiltölulega meiri fituvef en karl-
ar.
Konurnarleggja áherzlu á út-
hald og hörku i þjálfun sinni.
Margie Rusmore þreytir löng
þolhlaup fyrir morgunverð.
Vera W atson klifur daglega i 400
metra hæð og Irene Miller er i
knattspyrnuliði. Arlene hleypur
42kilómetra og tók nylega þátt i
maraþonhlaupi i Minneapolis,
þvi fyrsta sem eingöngu konur
þreyttu.
Hannelora Schmatz, fjall-
göngukona frá New Ulm telur
„góða geðheilsu” grundvallar-
atriði til að klifa hæstu tinda
heims. Árið 1975 komst hún á
topp Tiritsch Mir (7706m) i
Hindukusch en til þessa hefur
enginn Þjóðverji klifið hærra
upp.
í Annapurnahópnum eru nær
eingöngu konur, sem þegar hafa
einnig klifið hátt i metorðastiga
atvinnulifsins. Arlene Blum
hefur háskólapróf frá Berkeley-
háskóla. Piro Kramar er augn-
læknir i Seattle, VeraWatson og
Irene Miller vinna á rannsókna-
stofu IBM i San Jose.
Blum prófessor telur það
meirakynjamisréttien hún á að
venjast i visindastarfi sinu, að
eingöngu einni og einni konu
skuli hafa gefizt tækifæri til að
taka þátt i Himalajaleiðöngr-
um.
Hópinnskortirþóekki reynslu
' i fjallgöngum. Konurnar hafa
klifið á þriðja tug f jalla allt frá
Popocatepetl (5451m) i Noschak
(7492 m) i Afghanistan. Nú
siðast kleif Margie Rusmore
Mount McKinley (6193 m) i
Alaska.
,,Hvað getu, hæfileika og
reynslu snertir erum við jafn-
vigar” segir Liz
Klobusicky-Mailander en hún
hefur reynt á kraftana bæði á
hálum klettaveggj um
Yosemitegarðsins i Kaliforniu
og isbreiðu Brenva á Mount
Blanc.
Þessi fjallakona, sem er
bandariskur rikisborgari en býr
i Tiíbingen harmar það að fjall-
göngukonur i Þýzkalandi hafi
ekki fengið eins góða þjáifun
hvað krafta snertir og karlar.
En konurnar eru að ná þessu
upp. „Þýzkaland er aðeins
fimm árum á eftir Bandarikjun-
um,” segir hún.
Eftir Spiegel SJ
Alþjóóleg bílasýning
í Sýninga
höllinni
ad Bíldshöfða
Stórglæsilegt úrval bifreiða á 9000 fermetra gólff leti
—þetta er syning sem allir verða að sjá
BILAHAPPDRÆTTI---------- vinningur MAZDA 323
GESTUR DAGSINS hlytur sólarlandaferð
með Samvinnuferðum
STRÆTIS VAGNAFERÐIR á 15 mínutna fresti
SÉRSTAKAR afsláttarferðir og gisting á vegum Flugleiða
AFSLÁTTUR á öllum ferðum sérleyfishafa
Dags. Frá kl. Til kl.
14-4 19oo 2200
15-4 14°° 22°°
16-4 14oo 22°°
17-4 15°° 2 200
18-4 150P 2200
19-4 1500 22°°
20-4 14oo 22°°
21-4 1500 22°°
22-4 1400 2200
23-4 1400 2200
Rafmagnsbyggingar-
krani til sölu
Tilboð óskast i litinn Liebherr býggingar-
krana. Hæð 16-29 m með 16 m bómu.
Upplýsingar I simum (91) 7-42-30 og 2-82-80.
Jörð til sölu
420 km. frá Reykjavik.
Jarðhiti, laxá, skógi vaxinn dalur.
Tilvalið fyrir féiagasamtök.
Tilboð merkt leggist inn á afgreiðölu
blaðsias.
Rafmagnsspil fyrir
hlaupakött óskast
til kaups. — Lyftigeta 1 tonn. — Upplýs-
ingar i ^ium (91) 7-42-30 og 2-82-80.
Bændur
Duglegur 12 ára drengur óskar eftir sum-
ardvöl sem matvinnungur.
Vanur sveitastörfum.
Upplýsingar i sima 1-44-32, kvöld og helg-
ar.