Tíminn - 07.05.1978, Síða 23
Sunnudagur 7. mai 1978.
23
„Mér verður
flökurt ef ég
heyri minnzt
á Genesis”
— sagði Jet Black trommuleikari Stranglers
í viðtali við Nú-Tímann
A blaðamannafundi, sem
haldinn var með hljómsveitinni
Stranglerss.l. þriðjudagskvöld i
Hljóðrita i Hafnarfirði, náði
blaðamaður Nútimans tali af
Jet Black trommuleikara
hljómsveitarinnar og fer við-
talið hér á eftir.
Blm: Nú erub þið að koma frá
hljómleikahaldi i Bandarikjun-
um. Hvernig voru viðtökur
bandariskra hlustenda?
Black: Ég myndi segja að við-
tökurnar hefðu verið nokkuð
góðar. Það var mestmegnis
ungtfólk sem sótti hljómleikana
og af hálfgeröri forvitni, þvl að
þess sem við hljóðrituðum
þessar tvær plötur. (Eftir þvi
sem Jean Jacques Burnel
bassaleikari Stranglers sagði
blm. i Skiðaskálanum i Hvera-
dölum þá liðu 10 vikur á milli).
Blm.: NU kemur nýja platan
ykkar, „Black & White” á
markað innan skamms. Verða
einhverjar stórvægilegar breyt-
ingará henni frá fyrri plötum?
Black: Stórvægilegar verða þær
ekki, en hún verður mun þyngri
og hvað þróun varðar er hún i
beinu framhaldi af hinum fyrri.
Blm.: Það vekur athygli þegar
hlustað er á plötur ykkar að nær
Jet Black
þó að unglingarnir i Bandarikj-
unum hafi heyrt minnzt á þá
nýju þróun sem hefur orðið i
popptónlist I Bretlandi, þá eru
Bandarikjamenn orðnir það
langt á eftir að þeir hafa að
minumati ekkiskilning á tónlist
eins og okkar. Við lékum að
mestu leyti i litlum klúbbum,
enda lætur það okkur vel, þvi að
við erum vanir þvi, en flestir
voru áhorfendur um þúsund
talsins á nokkrum hljómleikum.
BLM.: Svo við vikjum nú að
tónlist ykkar, þá hafið þið bæði
verið orðaðir við ,,punk” og
„new wave”. Hver er munurinn
á þessu tvennu?
Black: Þaðerréttað við höfum
bæði verið kallaðir „punk” og
„new wave”, en skilgreining-
una hef ég ekki á reiðum hönd-
um. Þér væri nær að spyrja ein-
hvern þeirra ensku blaða-
manna, sem með okkur eru i
förum þessarar spurningar, þvi
að mér skilst að þeir viti það.
Blm.: Hvor fyrri hljómplatna
ykkar finnst þér betri?
Black: Persónulega er ég hrifn-
ari af Rattus Norwegicus, það
er eins og við höfum vitað betur
hvað við vorum að gera þegar
við hljóðrituðum hana, en hins
vegar er hljóðfæraleikurinn á
No more heroes mikið betri en á
Rattus..., það er eins og okkur
hafi farið fram i hljóðfæraleik á
þeim stutta tima sem leið á milli
engin aukahljóðfæri eða aðrir
hljóöfæraleikarar koma við
sögu á þeim. Má búast við að i
framtiðinni komi fleiri við sögu
á hljómplötum ykkar?
Black: Ekki á ég von á að mikil
breyting verði á hvað þetta
varðar, þó er rétt að geta þess,
að á „Black & White” njótum
við aðstoðar auka saxófónleik-
ara.
Blm.: Hvernig er það, er jafn
auðvelt fýrir ykkur að halda
sambandi við aðdáendur og
fylgismenn ykkar meö aukinni
frægð? Hafið þið ekkert fjar-
lægzt ykkar fyrri markmið með
frægöinni?
Black: Hvaðokkur varðar tel ég
ekki að þetta þurfi að breytazt.
Við komum fram reglulega á
litlum stöðum, á milli þess sem
við leikum frammi fyrir þús-
undum áhorfenda. Eða hvaö
finnst þér? Þarf þetta aö breyt-
ast? Er það eitthvert náttUru-
lögmál?
Blm.: Svo við vikjum nU að
öðru, þá hefur oft verið minnzt á
að bakgrunnur ykkar sé óvenju-
legur, svo ekki sé meira sagt?
Black: Jæja?
Blm .: Já, nU er einn ykkar hag-
fræðingur, annar lifefnafræð-
ingur, sá þriðji Utstillingar-
maður og sjálfur varst þU
rjómaissali, ef heimildir minar
eru réttar: Er ekki furðulegt að
menn sem koma úr sllku um-
hverfi, stofni popphljómsveit og
nái slfkum árangri sem þið
hafið náð?
Black: Það má vera að ein-
hverjum þyki þetta undarlegt,
en svona er þetta Og meðan ég
man, þetta með isinn, þá er það
ekki alveg rétt að það hafi verið
mitt aðalstarf, þvi að ég var
aðallega i „the booze buisness”
(áfengis„bransanum”), og ef
þaðer rétt, sem ég hef heyrt um
ykkur Islendinga hvað þau mál
varðar, þá er öruggt mál að ég
hefði verið á rangri hillu, ef ég
hefði stundað þau viðskipti hér.
Er það annars rétt, að hér sé
ekki hægt að kaupa vin á
skemmtistöðum á miðvikudög-
um?
Blm.: Er ekki nóg að hafa sex
daga i viku til þess arna?
Black: No God gave us seven.
(Nei, Guð gaf okkur sjö daga i
viku).
Þegar hér varkomið sögu var
það orðið álitamál hvort það
væri Black eða blaðamaður sem
semdi spurningarnar, svo að
blaðamaður sá sitt óvænna og
breytti um umræðuefni hið
snarasta.
Blm.: Hvert er þitt álit á „old
wave”, (gömlum) hljómsveit-
um eins og t.d. Genesis?
Black: Fint að þú minntist á
þetta. Það er fátt sem fer meira
i taugarnar á mér, en einmitt
Genesis. Ég verð hreinlega
veikur þegar ég heyri i þeim.
Blm.: En hvert er álit þitt á
hljómsveit eins og t.d. Roxy
Music, sem á sinum tima flutti
tónlist sem flokka má undir
„new wave”?
Black: Það er ekkert leyndar-
mál, að i hvert sinn sem ég
heyri hljóðin i Brian Ferry, fæ
ég iskur I eyrun og mér verður
hálfflökurt, ef ég heyri á hann
minnzt. Þó verð ég að viður-
kenna að hann hefur samið
nokkur góð lög. (Black snýr sér
að Hugh Cornwell sem hefur
'sökkt sér niður i enskt siödegis-
blað eftir hastarlegt rifrildi viö
enskan blaðamann frá New
Musical Express og segir: Ég
heyrði Ferry segja um daginn
að nýja lagið hans væri komið á
„topp tiu” heima i Bretlandi.
Einu viðbrögðin sem Cornwell
sýnir er illgirnislegur hlátur,
siðan sökkvir hann sér niöur i
blaðið á nýjan leik af engu
minna offorsi en félagi hans
Burnel bassaleikari sem er
kominn á kaf ofan i idýfuskál
sem hannhefurorðiðsér Uti um.
Blm.: Nú hafa Stranglers leikið
viða I Evrópu og ef ég man rétt
þá urðuð þið fýrir nokkurs
konar árás i Halmstad I Sviþjóð
i fyrra, þegar sænskir „raggar-
ar” (vandræðabörn i leðurjökk-
um) hleyptu upp hljómleikum
hjá ykkur. Er reynsla ykkar
svipuð frá öðrum löndum og
hvernig likaði ykkur við Svi-
þjóð?
Balck: Sviþjóð er nú meira leið-
inda landið, það leiðinlegasta
sem við höfum komið til. Ann-
ars er það kannski orðum aukið,
að viðhöfum orðið fyrir árás, en
hvað um það, öll okkar hljóðfæri
voru gjöreyðilögð. Um önnur
lönd vil ég aðeins segja þaö, að
Holland er eitt bezta land sem
ég hef komið til, þar vita menn
Framhald á bls. 31
Tilboð óskast i eftirtaldar bifreiðar, er
verða til sýnis þriðjudaginn9. mai 1978, kl.
13-16 i porti bak við skrifstofu vora, að
Borgartúni 7:
Mercury Comet fólksbifreið árg. 1973
Volkswagen 1300 fólksbifr. árg. 1973
Volkswagen 1300 fólksbifr. árg. 1973
International Scout árg. 1974
International Scout árg. 1974
Land Rover diesel árg. 1972
Land Rover diesel árg. 1972
Land Rover benzin árg. 1972
Land Rover benzin árg. 1970
Ford F 250 pic up árg. 1970
Ford Escort sendif. bifreið árg. 1974
Chevrolet sendiferðabifr. árg. 1972
Skoda 110 L fólksbifr. árg. 1971
Opel Rekord fólksbifr. árg. 1971
Tempo bifhjól árg. 1972
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, Reyðar-
firði:
Ford Trader, vörubifreiö árg. 1962
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30 að
viðstöddum bjóðendum. Réttur áskilinn
að hafna tilboðum sem ekki teljast viðun-
andi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Lífeyrissjóður
verzlunarmanna
auglýsir
Þeir sjóðfélagar Lifeyrissjóðs verzlunar-
manna, sem fæddir eru 1914 eða fyrr, og
eru i verzlunarmannafélagi, geta átt rétt á
lifeyri frá umsjónarnefnd eftirlauna, sem
Lifeyrissjóður verzlunarmanna greiðir
út, ef eftirfarandi skilyrðum er fullnægt:
1. Ellilifeyrir:
Sjóðfélaginn er 70 ára og hættur að vinna
eða 75 ára. Hann þarf að hafa verið 10 ár i
starfi eftir 1955, sem núna veitir aðild að
iifeyrissjóði.
2. örorkulifeyrir:
Sjóðfélaginn varð minnst 40% öryrki eftir
1971 og hefur greitt i 10 ár til Lifeyrissjóðs
verzlunarmanna.
3. Makalifeyrir:
Sjóðfélaginn lézt eftir 1970 og hafði verið
5 ár i starfi eftir 1955 eða eftir 55 ára
aldur, sem núna veitir aðild að lifeyris-
sjóði
Sækja skal um lifeyri þennan hjá við-
komandi verzlunarmannafélagi .i Reykja-
vik hjá V.R., Hagamel 4. sem veitir einnig
nánari upplýsingar.
Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla