Tíminn - 25.05.1978, Side 1
Fimmtudagur 25. maí 1978
107. tölublað — 62. árgangur.
Siðumúla 15 • Pósthólf 370 • Reykjavik • Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Verðbætur 1. júní:
16 ÞUS. A LAUN A BILINU
-4 C\C\ ET "hTTO —samkvæmt nýjum bráðabirgða-
JLwMaBMfÖ Xr tJ lögnm ríkisstjórnarinnar
KEJ — Samkvæmt nýjum bráða-
birgðalögum rikisstjórnarinnar
koma ca. 15600 kr. verðbætur á öll
laun á bilinu 122 þús til 245 þús. 1.
júni' næstkomandi. Miðast þetta
við dagvinnulaun. Laun lægri en
122 þús. fá fullar verðbætur eða
12,8% miðað við 1. júni en laun
hærri en ca. 245 þús. fá hálfar
þessar verðbætur.
í fréttatilkynningu sem fylgir
bráðabirgðalögunum segir m.a.
að i' þessum ákvæðum felist t.d.
að fullar verðbætur verði greidd-
ar á dagvinnukauptaxta verka-
fólks i almennri fiskvinnu. Jafn-
framt er með sérstökum hætti
tryggt að fullar verðbætur komi
einnig á dagvinnulaun þess
verkafólks sem vinnur sam-
kvæmt svokölluðu „bónuskerfi”
eftir samningum verkafólks og
iðnverkafólks t.d. við fiskvinnu og
i verksmiðjum, þó verðbætur
komi hins vegar ekki á slikar
yfirvinnu- og bónustekjur.
Þá segir að tilgangur laga-
breytingarinnarséað tryggja.að
veröbætur á dagvinnulaun be'rra
sem lægst laun hafa verði ekki
skertar frá þvi sem samningar
gerðir á árinu 1977 ákváðu. Þetta
sé ennfremur gert i trausti þess
að það geti stuðlað að lausn yfir-
Framhald á bls. 15.
Hvers eigum við saklausir vegfarendur að gjalda, þegar sóldýrkendur yfirtaka þá hiuti sem venju-
lega eru ætlaðir gangandi fólki. Ætli við fyrirgefum þeim ekki blessuðum. Þeir vita ekki hvað þeir
gjöra. Timamynd GE
r ; ^
Atvinnurekendur segja
bráðabirgðalögin stefna
atvinnuörygginu í hættu
_____________Bis-6 J
r~r~í : '
ASI:
Ekki lausn á
kjaradeilunni
, _____ Bls. 0 i
NÆSTA 1
SKREF
— yfirvinna og bónus bönnuð?
v_____________Bls. 6 j
Ekki náðargáfa eins mann«a
að geta verið borgarstjóri
— Margir ungir menn stjórna bæjarfélögum með ágætum með fulltrúa tveggja eða
fleiri flokka að bakhjarli
J.H.Er þaö náðargáfu eins eða
tveggja Sjálfstæðismanna i
hverju sveitarfélagi að geta
stjórnað bæ? Sjálfstæðismenn
ganga um með þann kynlega
boðskap að allt fari úr böndun-
um, ef þeir missa meirihluta
sinn i Reykjavik og enginn
maður sé finnanlegur til þess að
skipa sæti Birgis Isieifs
Gunnarssonar borgarstjóra.
Þetta er fráleitur áróður, sem
dæmin afsanna og auk þess
móðgun við marga menn, sem
hafa sýnt með starfi sinu, hvers
þeir eru megnugir.
í Timanum i gær var sýnt
svart á hvitu að enginn héraðs-
brestur varð i Ólafsfjarðar-
kaupstað, þótt Sjálfstæðis-
flokkurinn missti þar meiri-
hluta sinn i siðustu bæjar-
stjórnarkosningum.
Það hefur ekki heldur orðið
neinn héraðsbrestur i öörum
kaupstöðum landsins, þótt
gamalgróinn meirihluti hafi
fallið þar og nýir menn tækju
við. Það varð enginn héraðs-
brestur þótt Alþýðuflokkurinn
missti meirihluta sinn i Hafnar-
firði það varð enginn héraðs-
brestur, þótt Alþýðubandalagið
missti meirihluta sinn i Kópa-
vogi, og það dundi ekki nein óár-
an yfir þó að Sjálfstæðisflokkur-
inn missti meirihluta sinn i
Vestmannaeyjum.
Hvilik firra það er að vand-
kvæðum sé háö og einna helzt
óhugsandi að finna mann i stað
núverandi borgarstjóra, kemur
bezt i ljós, ef litiö er til nokkurra
af stærri kaupstöðum landsins.
1 Vestmannaeyjum er Páll
Zóphoniasson bæjarstjóri og lik-
léga sá maður sinnar stéttar
sem þyngsta byröi hefur orðið
að axla vegna þeirra áfalla sem
Vestmannaeyjakaupstaöur
varö fyrir af völdum eldgossins.
Enginn kann annað að segja en
Starfsmenn - draga ekki taum
eins flokks öðrum fremur
Páll Zóphoniasson, bæjarstjóri i
Vestmannaeyjum.
Helgi M. Bergs.bæjarstjóri á
Akureyri.
J óh a n n
bæjarstjóri
Einvarðsson,
Keflavik.
hann hafi stjórnað kaupstaön-
um og málum hans af mikilli
festu,áræði og hagsýni. í Vest-
mannaeyjum hefur orðiö að
reisa flest úr rústum — skipu-
leggja byggja og græöa — og
þar hefur hiti i ibúðir fólks verið
sóttur i hraunið, sem muldi
undir sig hluta kaupstaðarins og
verður á næstu misserum gert i
enn meiri mæli. Þetta er braut-
ryðjandastarf i veröldinni allri.
A Akureyri er Helgi Bergs
bæjarstjóri. Hann er að koma
langþráðri hitaveitu i höfuðstað
Norðurlands og jafnframt er
unnið að stórkostlegum fram-
kvæmdum öðrum skipulagn-
ingu og uppbyggingu nýrra
hverfa, umfangsmikilli gátna-
gerð til frambúðar og fjölmörgu
öðru sem of langt yrði upp að
telia.
1 Keflavik er það Jóhann Ein-
varðsson sem öðrum sveitar-
stjórnarmönnum fremur er for-
göngumaður allsherjarhita-
veitu i öll bvggðarlög á Revkja-
nesskaga — hitaveitu sem sums
staðar er þegar tekin til starfa,
en annars staðar i vonum á
næstu misserum og árum.
öllum þessum mönnum hefur
Framhald á bls. 15.