Tíminn - 25.05.1978, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 25. mai 1978.
7
(Jtgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
hórarinn Þórarinsson (ábm), og Jón Helgason. Ritstjórn-
arfulltrúi: Jón Sigurösson, Auglýsingastjóri: Steingrimur
Gislason, Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og
auglýsingar Siöimúla 15. Simi 86300.
Kvöldsimar bláöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00:
86387. Verö i lausasölu kr. 100.00. Áskriftargjald kr. 2.000 á
mánuöi.
Blaöaprent h.f.
Skoðanakannanir og
óskhyggja
Samkeppni æsifréttablaðanna, sem koma út sið-
degis i Reykjavik, tekur á sig ýmsar myndir. Ein er
sú, að þau telja sig hafa efnt til skoðanakönnunar
um væntanleg úrslit borgarstjórnarkosninganna og
þingkosninganna i Reykjavik. Annað þeirra, Visir,
skýrir lauslega frá þvi, hvernig þessi könnun hefur
farið fram og er bersýnilegt á þvi, að henni hefur
verið mjög hroðvirknislega háttað. Blaðið telur sig
hafa haft samband við 401 kjósanda og þar af hafi
aðeins 202 svarað ákveðið hvaða flokk þeir ætluðu
að kjósa. Hitt blaðið, Dagblaðið, lýsir ekki þeirri að-
ferð, sem það hefur beitt, en telur sig hafa fengið
svör hjá 300 kjósendum og af þeim hafi aðeins 169
svarað hvaða flokk þeir ætluðu að kjósa. Á þessum
202 kjósendum, sem svara Visi, og 169 kjósendum,
sem svara Dagblaðinu, byggja blöðin svo niðurstöð-
ur um væntanleg úrslit kosninganna.
Það er óþarft að taka fram, að slik vinnubrögð
myndu þykja markleysa hvarvetna annars staðar,
þar sem skoðanakannanir hafa verið framkvæmdar
i alvöru. Þar eru þær lika yfirleitt framkvæmdar af
sérstökum stofnunum, sem eru óháðar blaðaútgef-
endum.
En hvort sem það er tilviljun eða ekki, þá fara
niðurstöður skoðanakannana Dagblaðsins og Visis
mjög saman við óskhyggju þeirra, sem standa að
útgáfu þessara blaða. Það hefur ekki dulizt neinum,
sem fylgzt hefur með skrifum þeirra undanfarin
misseri, að eigendur þeirra hafa mikla samúð með
Alþýðuflokknum og Alþýðubandalaginu. Þeir vilja
augljóslega, að Alþýðuflokkurinn verði aftur svo
stór, að hann geti myndað stjórn með Sjálfstæðis-
flokknum, og þeir vilja, að Alþýðubandalagið verði
næststærsti flokkurinn og þannig aðalkeppinautur
Sjálfstæðisflokksins, þvi að kommúnistagrýlan
tryggir það, að það verður Sjálfstæðisflokknum
aldrei hættulegur keppinautur. Framsóknarflokkn-
um hefur til þessa tekizt betur en bæði Alþýðu-
flokknum og Alþýðubandalaginu að halda uppi
merkjum raunhæfrar umbótastefnu og að vera
aðalandstæðingur auðvaldsstefnu, þótt leiðir hans
og Sjálfstæðisflokksins hafi legið saman um stund,
sökum sundrungar vinstri aflanna. Það er hann,
sem afturhaldsöflin óttast mest og vinna eindregn-
ast á móti. Það getur ekki farið framhjá neinum,
sem les ihaldsblöðin. Það ætti að vera ihaldsand-
stæðingum góð hvatning til að fylkja sér um Fram-
sóknarflokkinn.
Eiríkur Tómasson
Orslit siðustu borgarstjórnarkosninga og siðustu
þingkosninga eru bezta visbendingin um það, hvaða
flokkur muni liklegastur til að vinna niunda sætíð áf
Sjálfstæðisflokknum. 1 borgarstjórnarkosningunum
i mai 1974 var Framsóknarflokkurinn langnæst þvi
af andstöðuflokkum Sjálfstæðisflokksins að vinna af
honum niunda sætið. í þingkosningunum i júni 1974
hefði Framsóknarflokkurinn unnið niunda sætið af
Sjálfstæðisflokknum og fengið þrjá borgarfulltrúa
kosna, ef þá hefðu verið borgarstjórnarkosningar.
Eirikur Tómasson, sem skipar þriðja sætið á lista
Framsóknarflokksins, er þvi langnæstur þvi að
fella niunda mann Sjálfstæðisflokksins. Þess vegna
verða andstæðingar borgarstjórnarmeirihlutans að
herða sóknina til að tryggja kosningu Eiriks
Tómassonar.
Þ.Þ.
ERLENT YFIRLIT
Hefur stríösgæfan
yfirgefið Margo?
Thatcher snýst gegn heimastjóm í Skotlandi
SKOZKIR ihaldsmenn héldu
landsfund i Perth i vikunni
fyrir hvitasunnu. Þar var tek-
in sú sögulega ákvörðun, að
flokkurinn skyldi beita sér
gegn þvi i þjóðaratkvæða-
greiðslu, að Skotland fengi
sérstaka heimastjórn. Sam-
kvæmt stjórnarfrumvarpi,
sem nú liggur fyrir brezka
þinginu og liklegt þykir, að
verði samþykkt, eiga Skotar
að fá sérstakt þing með að-
setri i Edinborg og allvið-
tæka heimastjórn. Sá bögg-
ull fylgir skammrifi, að áður
en heimastjórnarlög þessi
hljóta endanlegt gildi, verður
að efna til þjóðaratkvæða-
greiðslu um þau i Skotlandi og
þurfa 40% kjósenda á kjörskrá
að samþykkja þau. Annars
skoðast þau fallin. Andstæð-
ingar heimastjórnarinnar
treysta á, að þessi 40% fáist
ekki, sökum heimasetu
margra kjósenda, m.a. þeirra,
sem eru óánægðir með lögin
vegna þess að þeir vilja fá fullt
sjálfstæði og taka þvi ekki þátt
i atkvæðagreiðslunni.
Það þykir ýmsum vera
nokkur kaldhæðni, að það
skuli vera Margaret Thatcher,
formaður íhaldsflokksins,
sem beitir sér fyrir þeirri
ákvörðun skozkra ihalds-
manna, að þeir greiði atkvæði
gegn heimastjórnarlögunum i
þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Það gerðist nefnilega fyrir 10
árum i Perth á landsfundi,
sem skozkir ihaldsmenn héldu
þar þá, að Edward Heath,
þáv. formaður íhaldsflokks-
ins, hvatti flokksmenn sina til
að beita sér fyrir heimastjórn
I Skotlandi og hlaut sú tillaga
hans þá góðar undirtektir.
Margaret Thatcher hefur nú
breytt þessari ákvörðun og
virðist augljóst hvað vakir
fyrir henni. Hún ætlar að láta
lönd og leið, hvort Ihaldsmenn
halda fylgi sinu i Skotlandi, en
i staðinn hyggst hún vinna
Ihaldsflokknum aukið fylgi i
Englandi, þar sem fyrirhuguð
heimastjórn i Skotlandi er tor-
tryggð og margir óttast, að
hún geti orðið upphaf þess, að
brezka rikið leysist sundur.
AFSTAÐA stjórnmálaflokk-
anna til heimastjórnarinnar i
Skotlandi er nú orðin sú, að
thaldsflokkurinn hefur tekið
Margaret Thatcher,
Margo MacDonald
beitt sér fyrir heimastjórnar-
frumvarpinu. Svo virðist sem
sú millileið, sem þar er farin,
eigi vaxandi fylgi i Skotlandi,
þvi að flokkurinn er að rétta
við þar aftur. I aukakosningu,
sem nýlega fór fram i kjör-
dæmi i Glasgow, hélt flokkur-
inn þingsætinu, en yfirleitt
hafði verið spáð, áð Þjóðernis-
flokkurinn myndi vinna það.
SENNILEGAverður þó ekki til
fulls skorið úr þvi, hvort
Verkamannaflokkurinn sé að
endurheimta fylgi sitt frá
þjóðernissinnum fyrr en i
aukakosningu, sem fer fram i
Hamiltonkjördæmi 31. þ.m.
Það munaði litlu, að hann
tapaði þvi til þjóðernissinna i
siðustu kosningum. Fram-
bjóðandi hans fékk þá 18.487
atkvæði, en frambjóðandi
Þjóðernisflokksins, Margo
MacDonald, sem þótti þá einn
slyngasti atkvæðaveiðari
þjóðernissinna, fékk 15.115
atkvæði. Frambjóðandi
thaldsflokksins fékk ekki
nema tæp 4 þús. atkvæði og
frambjóðandi Frjálslynda
flokksins 1000 atkvæði. Margo
MacDonald vann sér mikla
frægð 1973, þegar hún vann
óvænt aukakosningu i
Govankjördæmi i Glasgow.
Henni tókst ekki að halda þvi i
þingkosningunum, sem fóru
fram i febrúar 1974, og i þing-
kosningunum, sem fóru fram
siðar á þvi ári, freistaði hún
striðsgæfunnar i Hamilton, en
það kjördæmi þótti þá öruggt
vigi Verkamannaflokksins.
Samt komst hún furðu nálægt
þvi að vinna það. Margo, sem
er 35 ára að aldri og barna-
kennari að starfi, þykir einn
mesti mælskugarpur þjóð-
ernissinna og mjög slyng i
persónulegum áróðri. Það
styrkir aðstöðu hennar i
Hamilton, að hún er fædd þar
og uppalin og á þar mikinn hóp
vina og kunningja. Takist
henni ekki að ná kosningu i
Hamilton að þessú sinni, þykir
liklegt, að striðsgæfan hafi
snúið baki við Þjóðernissinna-
flokknum og Verkamanna-
flokkurinn sé að vinna á. Það
gæti aukið þá freistingu hjá
Callaghan að efna til
þingkosninga i haust. Þ.Þ.
beina afstöðu gegn henni,
Verkamannaflokkurinn og
Frjálslyndi flokkurinn fylgja
frumvarpinu, sem nú liggur
fyrir þinginu, en skozki þjóð-
ernisflokkurinn er óánægður
með það. Hann vill helzt fullt
sjálfstæði eða a.m.k. miklu
viðtækari heimastjórn en lög-
in gera ráð fyrir. Þó mun
sennilega meirihluti flokks-
manna hans heldur kjósa að fá
heimastjórnarfrumvarpið en
ekki neitt. Þetta virðist hafa
gert flokkinn nokkuð ruglaðan
i riminu og dregið úr vexti
hans, a.m.k. um sinn. Flokk-
urinn hefur til skamms tima
náð mestu fyígi frá Verka-
mannaflokknum, enda er þar
af mestu að taka, þvi að hann
hefur verið langstærsti flokk-
urinn I Skotlandi. Verka-
mannaflokkurinn hefur talið
það mikilvægt fyrir sig að
halda fylgi sinu þar, og á það
sinn þátt i þvi, að hann hefur