Tíminn - 25.05.1978, Blaðsíða 8
8
Fimmtudagur 25. mai 1978.
Listahátið i Reykjavik
„Eitthvað
fyrir alla”
— segir Atli Heimir Sveinsson um
tónlistardagskrána
Ætli menn veröi augu og eyru, þegar aö Listahátiö kemur?
Framkvæmdastjórn Listahátiöar lofar frekar gróöa en tapi, en þaö
fer aö sjálfsögöu eftir aösókninni.
FI — Framkvæmdastjórn
Listahátiöar boöaöi til blaöa-
mannafundar sl. mánudag til
þess aö kynna dagskrá hátiöar-
innar, sem fram fer þann 3. júni
til 16. júni nk. Mættir voru á
fundinum Daviö Oddsson for-
maöur framkvæmdastjórnar,
Hrafn Gunnlaugsson fram-
kvæmdastjóri Listahátiöar,
Kristinn Hallsson varafor-
maöur Listahátiöar og stjórnar-
meölimirnir Thor Vilhjálmsson
rithöfundur og Atli Heimir
Sveinsson tónskáld aö ógleymd-
um Eric Sönderholm forstööu-
manni Norræna hússins, sem
cinnig á sæti i framkvæmda-
stjórn.
Atli Heimir Sveinsson hafði
lengst af oröiö á þessum kynn-
ingarfundi, enda er þáttur tón-
listarinnar — þessa alþjóða-
tungumáls — langfyrirferðar-
mestur. Reynt var að vanda
dagskrána um leið og fundið var
efni við allra hæfi. t þessari frétt
veröa aðeins kynnt tónlistar-
atriði — aö undanskildum þeim
sem fram fara i Norræna hús-
inu, en dagskráin i Norræna
húsinu, myndlistarsýningar og
hljómleikar verður kynnt siöar.
Einnig biða aörar myndlistar-
sýningar og leikstarfsemi betri
tima. Þá er að lita á hljómleika-
haldið i Laugardalshöll, Þjóð-
leikhúsinu, Háskólabiói, Bú-
staöakirkju og Iðnó. Miðað er
við tegund tónlistar, en dag-
skrárhald ekki rakið frá degi til
dags. Slika leikfimi má þreyta á
auglýsingaplakati frá Lista-
hátið, sem auðvelt er að útvega
sér.
Jassunnendur fá sitt strax
fyrsta kvöldið, 3. júni i Laugar-
dalshöll, en þar munu sveifla
sér trió Oscars Petersons með
ekki minni mönnum en Joe Pass
og Niels-Henning örsted Peter-
sen,
Pianóunnendur fá sitt daginn
eftir, þann 4. júni og einnig sið-
asta dag Listahátiðar þann 16.
Fjórða júni verða Gisli Magnús-
son og Halldór Haraldsson
pianóleikarar með tónleika i
Þjóðleikhúsinu. Gisli hefur
leikið öll erfiðustu einleiksverk
sem gerast með Sinfóniuhljóm-
sveit Islands og ferill Halldórs
er ámóta glæsilegur. Samspil
þeirra er á tvö pianó. Eitt aðal-
verkið er „Vorblót” eftir
Stravinsky, sem vakti mikla
hneykslun á þeim tima sem það
var frumflutt, 1912-1913.
Sextánda júni kemur svo
frönsk tónlistarkona hingað til
lands og leikur i Háskólabiói um
kvöldið. Hér er um að ræða
France Clidat pianóleikara,
sem er mjög vel þekkt i heima-
landi sinu og viðar, sér i lagi
fyrir leik sinn á verkum Liszts.
Nú þegar hefur frú Clivat leikið
200 af 550 pianóverkum Liszt inn
á hljómplötur. Góður skammtur
af Liszt verður á efnisskránni i
Háskólabiói, en auk hans verða
Scriabine, Debussy og Ravel á
dagskrá.
Poppunnendur fá sitt þann 7.
júni i Laugardalshöll, en þá
verður þar mætt brezka popp-
hljómsveitin „Smokie”, sem er
vinsæl meöal yngri poppara á
Islandi sem og annars staðar á
Norðurlöndum. Um hina þróuöu
popphljómsveit „Santana” var
ekki að ræða i ár, þar sem hún
var upptekin við stúdióvinnu.
„Smokie” spila sæt lög eins og
t.d. „Living Next Door To
Alice”, sem varla hefur farið
fram hjá neinum.
Óperuunnendur fá sitt þann
14. og 15. júni, en þá daga heim-
sækja Listahátið tvær frægar
sópransöngkonur, Elizabeth
Söderström og Birgit Nilsson.
Elizabeth syngur fyrra
kvöldið i Háskólabiói og verður
þar með ljóðasöngtónleika við
undirleik Vladimirs
Ashkenazys. A efnisskránni
verða lög eftir Schubert, Grieg,
Copland og Rachmaninoff.
Birgit Nilsson mun syngja á
tónleikum Sinfóniuhljómsveitar
Islands seinna kvöldið, m.a.
ýmsar dramatiskar óperuariur
Verdis. Þegar minnzt er á Birgit
Nilsson fer fiðringur um Kristin
Hallsson óperusöngvara og
fleiri, enda er Birgit talin bezta
óperusöngkona heims um þess-
ar mundir og svokallaður hetju-
sópran
Mesti tónlistarviöburður
þessarar Listahátiðar verður I
Laugardalshöllinni kl. 20.30
þann 6. júni, en þá leikur
Mstilav Rostropovitch einleik
með Sinfóniuhljómsveit lslands
Að öllum öðrum ólöstuðum
þykir mestur fengur að komu
hans hingað. Aðeins nafn Cas -
als jafnast á við hans. Efnis-
skráin er skemmtileg að sögn
Atla Heimis og ber þá fyrst að
nefna verk eftir þann sem kall-
aður hefur verið faöir rússn-
eskrar tónlistar, M. Glinka:
Forleikur að óperunni Ruslan
og Ludmilla. Einnig eru á efnis-
skránni tveir sellókonsertar eft-
ir J. Haydn og A. Dvorak.
Mikill viðburður er einnig að
hafa fyrir tilstilli Ashkenazys
fengið sellóleikarann Lynn
Harrel og fiðluleikarann Itzhak
Perlman til þess aö koma
hingað til lands, en þeir verða
með tónleika i Laugardalshöll
föstudaginn 9. júni. Harrel er
bandariskur en Perlman er frá
Israel. Báðir eru þeir ungir og i
alfremstu röð. A efnisskrá tón-
leikanna er rómantiskur for-
leikur eftir Weber: Forleikurinn
að óperunni Euryanthe og fiðlu-
konsert i e-moll eftir Mendel-
sohn. Einnig verður konsert
fyrir fiðlu, selló og hljómsveit I
a-moll eftir Brahms.
Einir tónleikar verða að þessu
sinni staðsettir i Iðnó, en það
eru flautútónleikar Manuelu
Wiesler og Julian Dawson-
Lyell. A efnisskrá eru m.a.
„Svarti skógarþrösturinn”, „La
merle noir” eftir Messiaen og
Sonantina eftir Pierre Boulez,
en Boulez er tónlistarstjóri
Beaubourg listamiðstöðvarinn-
ar i Paris. Siðast á efnisskránni
eru verk eftir Þorkel Sigur-
björnsson, „Calais” frá 1976 og
Atla Heimi Sveinsson,
„Xanties” frá 1975. Þessir tón-
leikar verða kl. 20.00 i Iðnó
mánudaginn 12. júni.
Framlag Kammersveitar
Reykjavikur, sem þekkt er fyrir
mjög vandaðan tónlistarflutn-
ing, eru tónleikar i Bústaöa-
kirkju sunnudaginn 11. júni kl.
16. A efnisskrá eru tveir
Brandenborgarkonsertar eftir
Bach.
Enn eru ótaldir svokallaðir
„Maraþonhljómleikar” i
Laugardalshöll þann 10. júni,
sem standa munu frá kl. 13 til
22, en á þessum hljómleikum
munu koma fram ýmsir islenzk-
ir áhugamenn um tónlist og
söng viða um land. Að sögn Atla
Heimis er með þessum hljóm-
leikum verið að beina áhuga-
fólki ýmsu i kórum og I lúðra-
sveitum inn i sviðsljósið. Einnig
verða þarna stignir þjóðdansar.
Og svo verður að geta þess að
gefnu tilefni að hljómleikar
„Dubliners”, irsku þjóölaga-
söngvaranna, verða i Laugar-
dalshöll fimmtudaginn 8. júni
kl. 20.00 en ekki i Iðnó. Með
þessu vill framkvæmdastjórn
sýna mönnum, að Listahátið sé
ekki snobbhátið fyrir fáa út-
valda. „Dubliners” gera að visu
garðinn frægan i irskum krám,
en þegar þeir koma stundarkorn
til tslands verða sem flestir aö
fá að njóta þeirra. Hvort þeim
likar „Höllin” er svo önnur
saga. Jónas Árnason rithöf-
undur hefur gert marga ágæta
texta við lög „Dubliners”.
Mestur fengur er að sellóleikaranum Rostropovitch á Listahátiö....
Sendiö okkur (í ábyrgö) þá skartgripi sem þér
þurfið aö láta gera viö/ ásamt smálýsingu á
þvi sem gera þarf/ heimilisfangi og síma-
númeri. Aö af lokinni viögerö/ sem verður inn-
an 5 daga frá sendingu/ sendum viö ykkur viö-
geröina i póstkröfu. Allar viögeröir eru verð-
lagðar eftir viögeröaskrá Félags ísl. gull-
smiða.
Stækkum og minnkum hringi (sendum mál-
spjöld)/ gerum viö armbönd, nælur, hálsmen,
þræöum perlufestar.
Gyllum. Hreinsum.
Sendum einnig í póstkröfu allar gerðir skart-
gripa.
Fljót, góö og örugg þjónusta. Hringiö og leitiö
upplýsinga.
GULL HÖLLIN
Verzlunarhöllin — Laugaveg 26
101 Reykjavík
Simar (91) 1-50-07 & 1-77-42
í
Skjót viðbrögö
Þaö er hvimleitt aö þurfa aö
biöa lengi meö bilaö rafkerfi,
leióslur eöa tæki.
Eöa ný heimilistæki sem þarf
aö leggja fyrir.
Þess vegna settum viö upp
neytendaþjónustuna - meö
harösnúnu liöi sem bregöur
skjótt viö.
Í
'RAFAFL
Skólavöröustig 19. Reykjávik
Simar 2 17 00 2 80 22
Sprungu- og
þakþéttingar
á gamalt og nýtt með
álkvoðu* 10 ára
ábyrgð á efni og
vinnu. (Sem endist i
20-30 ár). Einnig
múrviðgerðir, flisa-
lagnir og pússning.
Álþétting s.f.
Simi 91-24954 og
20390 eftir kl. 16.
verkpallaleic
sa
umboðssa
a
a
a
Stálverkpallar til hverskonar
viðhalds- og málningarvinnu
úti sem inni.
Viðurkenndur
öryggisbunaður.
■ Sanngjörn leiga.
VERKPALlAR TENGIMOT. UNDIRSTÖÐUR
HH VERKPALlAR TENGIMOT UNDIRSTODl
TEBmu&s
VIÐ MIKLATORG.SÍMI 21228/
H
F