Tíminn - 25.05.1978, Síða 9
Fimmtudagur 25. mai 1978.
9
ÍÍEíÍWIt
á víðavangi
Þetta bákn burt
1 útvarpsumræðunum um
málefni Reykjavikurborgar
fyrr i þessari viku gerði
Kristján Benediktsson að um-
talsefni áhugaleysi og slen
borgarstjórnarihaldsins í at-
vinnumálum.
Kristján Benediktsson sagði
meðai annars:
..Borgarstjóri hefur
kveinkað sér undan þeirri
gagnrýni okkar Framsóknar-
manna að áhuga- og sofanda-
háttur borgarstjórnarmeiri-
hlutans eigi sök á óheppilegri
þróun atvinnulifs i borginni á
undanförnum árum. Þetta er
sjálfsagt mannlegt. En hvar
eru tillögur borgarstjórnar-
meirihiutans um atvinnumál
frá siðustu 20 árum? Þvi tima-
bili sem skipastóllinn sem
gerður var út frá Reykjavfk
var að minnka jafnt og þétt og
fiskiðnaðurinn að dragast
saman þannig að hlutur
Reykjavikur i heildarfisk-
vinnslu landsmanna lækkaði
úr 16.8% i 8.7%.FróðIegt væri
að fá að heyra þótt ekki væri
nema eina tillögu sem meiri-
hlutinn hefði flutt i borgar-
stjórn um atvinnumál á þessu
timabili og fram til þess tima
að atvinnumálatillögur
borgarstjóra birtust nú fyrir
skömmu. Tillögur um at-
vinnumál frá meirihlutanum
er mjög erfitt að finna, þótt
fundargerðir séu lesnar nema
þá frávisunartillögur við at-
vinnumálatillögur okkar
Framsóknarmanna sem
skipta tugum á þessu timabili.
Arið 1966 var i uppsiglingu
mesta atvinnuleysistimabil
sem hér hefur komið i seinni
tið og náði hámarki árin 1968
og ’69, þegar fjöldi Reykvik-
inga flúði land.
Þá fluttum við Framsóknar-
menn ýtarlega tillögu i
borgarstjórn um athugun á or-
sökum minnkandi útgerðar og
fiskvinnslu ' frá Reykjavik.
Jafnframt fólst i tillögunni að
hafnar yrðu aðgerðir til að
efla þessar atvinnugreinar að
nýju. Sem dæmi um áhuga og
skilning borgarstjórnarmeiri-
hlutans á þvi sem hér var að
gerast i atvinnumálunum og
sem dæmi um, hvernig at-
vinnutillögur okkar voru yfir-
leitt afgreiddar, skal ég lesa
frávisunartQlögu meirihlut-
ans við þessa tillögu okkar:
„Borgarst jórn tclur að
ástand og horfur i útgerðar-
málum Reykjavikur eða at-
vinnumálum borgarinnar
almennt sé eigi svo alvarlegt
eða uggvænlegt að ástæða sé
til skipunar sérstakrar nefnd-
ar nútil rannsóknar á þessum
málum enda þótt erfiðleika
hafi gætt hjá vissum þáttum
útgerðarinnar vegna aflaleys-
is og vinnuaflsskorts bæði hér
i Reykjavík og nálægum ver-
stöðvum. Telur borgarstjórn
ekki tilefni frekari rannsókna
umfram það sem hagfræði-
deild borgarinnar og út-
gerðarráð eiga jafnan að hafa
með höndum. Borgarstjórn
vísar þvi framkominni tillögu
frá.”
Kaldhæðni örlaganna er það
að sá maður sem talaði fyrir
þessari frávisunartillögu er
núverandi borgarstjóri sem á
sl. vetri lét sig hafa að tina
saman flestar gömlu til-
lögurnar okkar um atvinnu-
mál og hann hafði átt þátt i að
visa frá. Þær prýða núna I ör-
litið breyttri mynd hina sið-
búnu stefnuskrá borgarstjóra
i atvinnumálum ásamt við-
aukum og innskotum. Gallinn
er bara sá að við gerð fjár-
hagsáætlunar I desember sl.
gleymdist að ætla nokkurt
fjármagn til að hefja fram-
kvæmdir skv. þessari stefnu-
skrá. Ekki var áhuginn meiri
þvi miður.”
t ræðu sinni rakti Kristján
Benediktsson ýmisleg dæmi
um ámælisverða framkomu
og ákvarðanir borgar-
stjórnarihaldsins i Reykjavik.
Minnti Kristján þar m.a. á
ummæli sin i sjónvarpsum-
ræðunum sem fram fóru fyrir
nokkru. Kristján sagði:
,,Hér að framan minntist ég
á atvinnuþáttinn og vanrækslu
meirihlutans i þcim efnum. t
sjónvarpinu I fyrri viku ræddi
ég sérstaklega um það sem
ungir Sjálfstæðismenn munu
kalla báknið og hvernig það
hefur vaxið jafnt og þétt^ekki
að vizku og náð, heldur að
mannafla og kostnaði. Benti
ég á nauðsyn þess fyrir
borgarbúa að starfshættir
borgarinnar i heild yrðu
Kristján Benediktsson.
endurskoðaðir og nýskipan
komið á. Sem dæmi tók ég at-
hugun sem gerö var hjá hita-
veitunni og átti vist ekki að
fara hátt. Sú niðurstaða ætti
vissulega að vekja menn til
umhugsunar hvar I flokki sem
þeir standa. Ýmis veigaminni
atriði mætti nefna. Þannig
byrjaði meirihlutinn á þeirri
ósvinnu á miðju kjörtima-
bilinu að úthluta eftirsóttri lóð
til félags sem setti það inn-
tökuskilyrði að Heimdallar-
skirteini fylgdi. Minnihlutan-
um og almenningi tókst að
stöðva að framhald yrði á
sliku, þótt einn af borgarfull-
trúum meirihlutans lýsti því
yfir að hann sæi ekkert at-
hugavertvið þessa lóðaúthlut-
un og sliku bæri að halda
áfram.
KRON og Sambandið vildu
setja upp stórmarkað við
Holtaveg og töldu sig geta
lækkað vöruverö um 10%.
Skipulagsnefnd hafði ekkert
við staðsetninguna að athuga.
A síðustu stundu var þó málið
stöðvað. Einhverjir höfðu
kipptispottann. Reykvikingar
vorú sviptir þvi að geta fengið
meira fyrir peningana sina.
llagsmunir annarra sem
hærra voru metnir hjá meiri-
hlutanum máttu sin meira.
Allir meiriháttar tekjustofn-
ar borgarinnar eru nýttir til
fulls nema aðstöðugjöld. Þar
er stórum aðilum i borginni
gefnar eftir um 200 milljónir á
ári. Þeir sem mesta hlutann fá
af þessari eftirgjöf eru að
reisa eitt stærsta hús landsins
i nýja miðbænum — hús
verzlunarinnar. Ekki virðist
skorta fé til þeirrar fram-
kvæmdar enda sá meirihlut-
inn til þess að gatnagerðar-
gjaldið var haft i lágmarki.”
Eins og fram kom í ræðu
Kristjáns Benediklssonar eru
þetta aðeins örfá dæmi um
háttalag borgarstjórnar-
ihaldsins i Reykjavik. Það
hefur og sannazt hvarvetna er
aðrir flokkar hafa tekið við
forystu i sveitarfélögum eftir
áralanga stjórn Sjálfstæðis-
manna að framfarir og upp-
bygging hefur sprottið eins og
blóm i gróanda. Svo mun
einnig fara i Reykjavik ef
kjósendur afþakka leiðsögn
Sjálfstæðismanna nú á sunnu-
daginn.
JS
SKIPAUTfiCRB RÍKISINS
M.s.Baldur
fer frá Reykjavik miðviku-
daginn 31. þ.m. til Patreks-
fjarðar og Breiðafjarðahafna
og tekur einnig vörur til
Tálknafjarðar og Bildudals.
Móttaka
alla virka daga nema laugar-
dag til 31. þ.m.
M.s. Esja
fer frá Reykjavik miðviku-
daginn 31. þ.m. til tsafjarðar
og tekur vörur á eftirtaldar
hafnir: ísafjörð, Bolungarvik,
Súgandafjörð, Flateýri og
Þingeyri.
Móttaka
alla virka daga nema laugar-
dag til 30. þ.m.
M.s. Hekla
fer frá Reykjavik föstudaginn
2. júni, austur um land til
Vopnafjarðar og tekur vörur á
eftirtaldar hafnir:
Vestmannaeyjar, Hornafjörð,
Djúpavog, Breiðdalsv ik,
Stöðvarfjörð, Fáskrúðsfjörð,
Reyðarfjörð, Eskifjörð, Nes-
kaupstað, Seyðisfjörð,
Borgarfjörð-Eystri og Vopna-
fjörð.
Móttaka
alla virka daga nema laugar-
dag til 1. júni.
Brúðuvagnar
og kerrur
margar
gerðir
Póstsendum
Leikfangahúsið
Skólavörðustíg 10, simi 14806
Staða ritara
í menntamálaráðuneytinu er laus til umsóknar.
Vélritunarkunnátta nauðsynleg og nokkur þekking i
dönsku og ensku æskileg.
Laun samkvæmt launakerfi rlkisstarfsmanna.
Umsóknir er tilgreini menntun og fyrri störf sendist ráðu-
neytinu fyrir 5. júni n.k.
Menntamálaráðuneytið,
23. mai 1978.
Laus staða
staða framkvæmdastjóra við heilsugæzlu-
stöðina i Borgarnesi er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi BSRB. (hálft
starf). Umsóknir ásamt upplýsingum um
fyrri störf sendist stjórn heilsugæzlu-
stöðvarinnar c/o Guðmundur Ingi-
mundarson, formaður, fyrir 10. júni n.k.
Upplýsingar i sima (93)7271 og (93)7173.
F.h. stjórnar heilsugæzlustöðvarinnar
Guðmundur Ingimundarson.
Kennarar —
Kennarar
Kennara vantar að barna og unglinga-
skóla Bolungarvikur.
Kennslugreinar, auk almennrar kennslu:
Stærð- og eðlisfræði i 6. til 9, bekk, mynd-
og handmennt, iþróttir og forskóla-
kennsla.
Upplýsingar gefa Gunnar Ragnarsson,
skólastjóri i sima (94) 7288 og sr. Gunnar
Björnsson formaður skólanefndar i sima
(94)7135.
Fatapressun
Laghentur starfskraftur óskast við fata-
pressun.
Framtiðarvinna.
Upplýsingar á staðnum til kl. 4, (ekki i
sima)
Fataverksmiðjan Gefjun,
Snorrabraut 56.
Yokahama
vörubílahjólbarðar á mjög
hagstæðu verði
„ Véladeild HJÓLBARÐAR
Sambandsins ^ !«5S'493.,t»
Kjörstaðir
við borgarstjórnarkosningar
í Reykjavík 28. maí 1978
verða þessir:
við borgarstjórnarkosningar i Reykjavik
28. mai 1978 verða þessir:
Álftamýrarskóli, Árbæjarskóli, Austur-
bæjarskóli, Breiðagerðisskóli, Breiðholts-
skóli, Fellaskóli, Langholtsskóli, Laugar-
nesskóli, Melaskóli, Miðbæjarskóli, Sjó-
mannaskóli, ölduselsskóli, Elliheimilið
„Grund”, „Hrafnista” D.A.S. „Sjálfs-
bjargarhúsið” Hátún 12.
Heimilisfang 1. des. 1977 ræður kjörstað.
Á öllum kjörstöðum eru nákvæmar upp-
lýsingar um kjörsvæða- og kjördeilda-
skiptingu.
Reykjavik, 24. mai 1978.
Skrifstofa borgarstjóra.