Tíminn - 25.05.1978, Side 14
14
Fimmtudagur 25. mai 1978.
Blaðamaður Timans brá sér
niður á bryggju i Vestmannaeyj-
um nú um lokin. Þar iðaði allt af
lifi. Flestir bátar voru i landi. Það
var verið að landa fiski, þrifa og
hreinsa bátana eftir vertiöina.
Lokastemmning í lúkarn-
um
t Suðurey VE var hópur ungra
manna að ljúka löndun. Kokkur-
innhafði veriðsendur i rikið til að
höndla eina hálsmjóa svo að þeir
gætu aðeins tekið úr sér vertiðar-
hrollinn. Þeir buðu i kaffi meðan
beðið var eftir vörubil.
Strákarnir sögðu að þessi vertið
hefði verið bæði góð og slæm.
Byrjað var á netum, oftast var
vont i sjóinn og aflinn rýr fram-
anaf. Um miðjan april var skipt
um veiðarfæri og tekið spærlings-
troll og þá breyttist aldeilis
ástandið. Það var mokfiskiri stutt
frá landi og haldið út aftur strax 1
að lokinni löndun svo fri voru eng-
in, rétt að hægt var að skreppa i
sjoppu til að sækja sér vettlinga
og tóbak og nær enginn timi til að
sofa. En hluturinn var llka góður.
Vélstjórinn sagði að þessi seinni
helmingur af aprll heföi gefið sér
i aðra hönd hátt á áttunda hundr-
að þúsund krónur og eftir var að
gera upp fyrir mai.
Strákarnir vildu taka það fram
hve gifurlegur munur það væri aö
tekizt hefði að koma i samninga
sjómanna að gert yröi upp fyrir
hvern mánuð sérstaklega. Með
þvi hefðu þeir góðan hlut ef vel
veiddist einn mánuð, þótt annar
væri lélegur. Aður hefði þetta allt
jafnazt út yfir vertiðina.
Sjónvarp á miðin
Þeir báðu blaðamann einnig að
koma þvi á þrykk — I von um aö
það bæri fyrir augu einhverra
ráðamanna — að þeir treystu
Jóhann Halldórsson er fengsæll
fiskimaöur.
þeim til aö vinda að þvi bráöan
bug að bæta sjónvarpsskilyrði á
miðunum. Einn sagðisthafa verið
við Ingólfshöfða mikinn part af
siðasta sumri og aldrei séð neitt I
sjónvarpi þann tima. Menn á sjó
væru svo einangraðir að ekki
veitti af aö þeir gætu fylgzt meö
sjónvarpi og þyrftu þess kannski
fiestum öðrum frekar.
Það barst einnig i tal hve al-
gengt væri að fólk sem aldrei
hefði migið i saltan sjó liti
öfundaraugum á aflahlut sjó-
manna og ættu fjölmiðlar þar
slæman hlut að máli með þvi að
blása upp stórfréttir um hlut
þeirra hæstu yfir tiltekin stutt
timabil. En lítið væri aftur á móti
getið um þá mörgu sem þræluðu
árið Ut fyrir lágmarkslaun.
En strákarnir voru nærri þvi að
falla i sömu gryfjuna er þeir hófu
að segja sögur af gifurlegri þén-
ustu bónuskerlinganna i frysti-
húsunum fyrir að dunda þar i
fiski nokkra tima á dag. Sögðu
þeir algengt að kerlingarnar
heföu hundruðum þúsunda hærri
árslaun fyrir þetta fokk en
karlarnir þeirra fyrir þrældóm-
inn á sjónum.
Og það var lokastemmning i
lúkarnum. Sumir voru aökomnir
umlokin
— sjómennskan er
líklega stærsta
*
happdrætti á Islandi
sem 3 vikur. Eru enda fáir betur
að þvi komnir en fólkið sem vinn-
ur við fiskinn að eyöa örlitlu broti
af þeim gjaldeyri sem það aflar
þjóðarbúinu til utanlandsferða.
En var þaö satt sem sjóararnir
sögðu að frystihúsakonur hefðu
margar um 160 þúsund á viku?
Þaö var llkt fjölmiðlafréttunum.
Ein sú duglegasta hafði náð þessu
einu sinni á vertiðinni en flestar
vikur verið mikið lægri. Aðrar
konur höfðu svo minna og allt
niður undir rösklega timakaupið.
Gestir \ hverju húsi
En konurnar v.oru að flýta sér
þvi að nú var að koma frihelgi
eins og þær sögðu, þótt varla hafi
það verið eiginlegt fri hjá mörg-
um húsmæðrum.
Og frihelgin var ekki notuð til
aö leggjast til hvíldar. Það var
mikið um að vera þessa helgi.
Flugfélagið og Herjólfur fluttu
þúsundir manna til Eyja svo gera
má ráð fyrir að gestir hafi dvalið
á flestum heimilum i bænum og
að öðrum ólöstuðum er gestrisn-
ara fólk en Vestmannaeyingar
vandfundið. Aö visu er ekki vist
að fótboltaliðið sem lék sögulegan
leik i Eyjum þessa helgi (eða
linuvörðurinn) vilji taka undir
þetta athugasemdalaust. Þvi
Eyjaskeggjum getur stundum
orðið heldur heitt I hamsi ef lið
þeirra tapar eins og nú gerðist.
Þessa helgi var llka haldiö I
Eyjum alþjóölegt sjóstangaveiöi-
mót þar sem Akureyringar nældu
sér i flest verölaunin. Einnig var
haldið fjölmennt golfmót.
Þá voru um hvitasunnuna
fermd yfir 100 börn i Vestmanna-
eyjum sem þýðir auövitað jafn-
margar fermingarveizlur. Ekki
var óalgengt aö fólki væri boðiö i 4
til 5 veizlur svo að margar ægi-
legar freistingar hafa verið
lagðar fyrir þá sem þurfa að
passa línurnar.
Eftir þessa viðburðariku helgi
tekur svo aftur við vinna af full-
um krafti fram að þjóðhátið sem
er næsta viðmiðun og til-
hlökkunarefni. Fermingar-
krakkarnir fara öll i vinnu, flest i
frystihúsin og jafnvel dæmi að
strákarnir ráði sig háseta á bát-
ana. Eyjabúar alast ennþá upp
við vinnu frá barnsaldri. Þeir
mega lika vera stoltir af dugnaði
sinum, sem meðal annars hefur
sýnt sig i þvi að þeim hefur tekizt
á ótrúlega skömmum tima að
reisa bæinn sinn algerlega úr
rústum i orðsins fyllstu merkingu
svo kraftaverk má nánast telja.
Og áfram halda þeir I sóknarhug.
HEI
Sverrir Agústsson frá Brúnastöö-
um — fyrsta og síöasta vertlöin —
og þó.
nefnilega siður flestra að fá sér
flösku i lokin, þvi lokaflaskan er
állka sjálfsögö og réttapelinn I
sveitinni á haustin. Nær alla leiö
upp bryggjuna og undir veggjum
fiskhúsanna lá leiðin framhjá
endalausum stæðum af gjald-
eyrisverðmætum þjóöarinnar I
formi loðnumjöls. Er þaö jafnvel
taliö liggja þarna undir skemmd-
um,en okkur Islendinga munar
vlst ekki um einn blóömörskepp I
sláturtiðinni.
1 frystiþúsinu var kapp I kven -
fólkinu aö klára sem fyrst.þvl að
vinnu átti að vera lokiö fyrir
kvöldmat .aldrei þessu vant, og
hvitasunnuhelgi var framundan.
Og frystihúsakonum, sem flestar
Tólf ára nemendur barnaskóla Vestmannaeyja höföu nýlega
myndskreytt þenna gráa húsgafl á salthúsi tsfélagsins meö aöstoö
téiknikennarans, Sigurfinns Sigurfinnssonar.
eru einnig húsmæður með mis-
jafnlega stór heimili veitir trú-
lega ekki af að fá smáfri. Segja
má að allt frá páskum hafi verið
unnið hvern dag nema sunnu-
daga, frá átta á morgnana til tiu á
kvöldin með ýtrustu afköstum,
þvi unnið er eftir bónuskerfi.
Kokkurinn og vélstjórinn á Suöurey strax búnir aö skrúfa Flestum konunum bar saman
tappann af lokapytlunni. þ®r væru orðnar bæði
Oft er stutt milli lffs og dauöa. Húsiö á myndinni huldist aöeins
vikri sem nú hefur löngu veriö fluttur i burtu en næsta húsi náöi
hraunstraumurinn svo aö þaö varð eyöileggingunni aö bráö.
Alit á fullu aö loknum vinnudegi og fri framundan.
á vertiöina en aörir voru heima-
menn. Þetta var þvl I aðra rönd-
ina kveðjustund, en kveðjuskál-
ina skyldi drekka á balli I Höllinni
um kvöldið. Bóndasonur úr Ar-
nessýslu sagði þetta vera sina
fyrstu og jafnframt slðustu ver-
tið. En raunin er að Eyjarnar
laða marga aðaftur, sem eitt sinn
hafa verið þar.
Aftan viö Suöurey var verið aö
landa úr trollbátnum Sigurbáru.
Skipstjórinn Jóhann Halldórsson
var eðlilega nokkuð ánægöur, þvi
Sigurbáran var aflahæst trollbáta
á vertiðinni með 490 tonn. En Jói
Halldórs er þekktur fyrir að vera
einn af þeim fisknu i Vestmanna-
eyjum. Að vera fiskinn er sérgáfa
sem llklega er erfitt aö finna i
hverju liggur. Það er bara
staðreynd að sumir fiska oftast
vel. Ekki er sjaldgæft að tveir
bátar togi dag eftir dag nær hliö
við hlið og annar fái nokkuð gott 1
hverju hali en hinn verði aftur og
aftur að sætta sig við skaufaræfil.
Flaska um lokin sjálfsögö
A leið upp bryggjuna mátti sjá
nokkra sem komu með poka undir
hendinni sem bentu til að menn
heföu brugðið sér i rlkið. Það er
þreyttar og leiðar á þvl aö vinna
til kl. 10 á hverju kvöldi og skyldi
engan undra. Eftir lokin ætluðu
llka margar þeirra að minnka
puöið og vinna hálfan daginn. En
aðrar halda áfram af fullum
krafti jafnvel allt árið nema ef
þær skyldu skreppa til afslöppun-
ar og hressingar til Spánar svo-
Lokadagur— vetrarvertiðarlok eru nánast orðin gömul og úrelt hugtök i hugum
flestra borgarbúa og borgarbörnin verða að læra þessi orð í skóla til að vita merk-
ingu þeirra. I sjávarplássunum úti um land er þessu á annan veg farið. Þar eru
vetrarvertíðarlok merkileg tímamót ár hvert. Lokin eru tími uppgjöra og manna-
skipta á skipunum.
Sjómennska á vetrarvertíð á íslandi er alltaf erfitt starf. Munurinn er bara sá að
sumir afla vel og hafa nokkuð gott upp úr puðinu, en aðrir fiska lítið og eftirtekjan
verður eftir því. Sjómenn hafa oft á orði að mörgum iandkrabbanum fyndist líklega
tímakaupið lágt ef þeir ynnu 12 til 20 tíma dag hvern við hinar verstu aðstæður og
hefðu um 170 þúsund í kaup á mánuði. En sjómenn verða að sætta sig við þetta ef
ekki fiskast nema fyrir tryggingu en það kemur oft fyrir. Hins vegar geta líka verið
uppgrip öðru hverju. Líklega er sjómennskan stærsta happdrættið á Islandi.
Lífið í
Eyjum