Tíminn - 25.05.1978, Síða 19
Fimmtudagur 25. mal 1978.
ÍSÍ'iSMÍÍ
19
IOOO0OOOOI
Erlendur
Óskar
saman
hesta sínd
— Vormót ÍR í frjálsum
íþróttum á
Laugardalsvellinum í dag
• Ertenéwr
og óskar
Kringlukastararnir sterku,
Eriendur Vaidimarsson og Óskar
Jakobsson, veröa i sviðsljósinu á
Laugardalsvellinum I dag, en þá
fer fram vormót ÍR. Þessir sterku
kappar jafa æft mjög vel að und-
anförnu og kastað vel yfir 60 m á
æfingum og má þvi búast við
spennandi keppni á milli þeirra.
Þeir Erlendur og Óskar munu
leiða saman hesta sina ásamt 2-3
kösturum i viðbót, en
kringlukastkeppnin er boðs-
1 keppni.
Hreinn Halldórsson,
kúluvarparinn sterki, verður
einnig i sviðsljósinu, en hann er
nú nær búinn að ná sér eftir
meiðslin sem hann hefur átt við
að stríða. Hreinn hefur kastað vel
yfir 19 m að undanförnu og
verður ekki langt að biða, þar til
hann kastar yfir 20 m.
Vormótið hefur um áraraðir
táknaö, að nú sé keppnistimabil
frjálsiþrótta hafið fyrir alvöru
hér á landi, þvi það hefur að jafn-
aði verið fyrsta meiriháttar
frjálsiþróttamót ársins og svo er
enn.
Vormótið hefur hingað til farið
fram á Melavellinum gamla, en
vegna breytinga þeirra, sem þar
hafa átt sér stað, er mótið nú flutt
Stuttir punktar...
Ungverjar fengu
skell á Wembley
— töpuðu fyrir Englendingum 1:4 í gærkvöldi
★ V.-Þjóðverjar eru komnir til Argentínu
Englendingar unnu stórsigur
(4:1) yfir Ungverjum sem taka
þátt f HM-keppninni i Argentinu i
gærkvöldi á Wembley. 74 þús.
áhorfendur sáu Englendinga
leika mjög vel —og þeir sýndu
svo sannarlega að þeir eiga
heima í HM-keppninni en eins og
menn muna þá féllu þeir út úr
keppninni á iakari markatölu
heldur en ttalar, sem leika i
Argentinu.
Peter Barnes (Man. City) Phil
Neal (Liverpool) Trevor Francis
(Birmingham) og Tony Currie
(Leeds) skoruðu mörk Englands
en Nagy mark Ungverja.
Englendingar léku snilldarlega
i fyrrihálfleik— lékusér að Ung-
verjum eins og köttur að mús og
komust yfir 3:0.
Heimsmeistarar V-Þýzkalands
i knattspyrnu komu til Argentinu
i gaarkvöldi og fóru þeir beint i
æfingabúðir 100 km fyrir norðan
Cordoba en þeir fljúga siðan til
Buenos Aires á miðvikudaginn og
leikasiðan fyrsta leik HM-keppn-
innar gegn Pólverjum 1. júni.
Win van Hanegem miðvallar-
spilari hollenzka HM-liðsins til-
kynnti i gær — 48 timum áður en
Hollendingar fara til Argentinu
að hann gæfi ekki kost á sér i
hollenzka liðiö. Hanegem hefur
leikið 51 landsleik fyrir Holland.
Tvö mörká einni min. (79min)
tryggðu Dönum jafntefli 3:3 gegn
írum i Evrópukeppni landsliða i
Kaupmannahöfn i gærkvöldi.
Frank Stapleton, Tony Grealish
ogGerry Daly, skoruðu mörk íra
en Henning Jensen, Benny Niel-
sen og Sören Lerby skoruöu mörk
Dana.
Finnar unnu sigur (3:0) yfir
Grikkjum i Evrópukeppni lands-
liða i' Helsinki i gærkvöldi.
Gordon McQueen miðvörðurinn
sterki hjá Manchester United og
HM-lið Skota sem skall á stöng i
landsleik gegn Wales fyrir viku —
með þeim afleiðingum að hann
meiddist i hné, hefur fengið góða
aðhlynningu og mun hann fara
með skozka liðinu til Argentinu i
dag.
Brian Clough framkvæmda-
stjóri Nottingham Forest er nú á
höttum eftir markaskorarnum
mikla Malcolm MacDonald hjá
Arsenal. Hann ræðir við Terry
Neill framkvæmdastjóra Arsenal
— um væntanleg kaup á
„Super-Mac” nú i vikunni.
Ingi Björn fer
til Noregs...
þar sem hann mun leika með landsliðinu
í knattspyrnu - 21 árs og yngri gegn Norðmönnum
SOS — Reykjavik. — Ingi Björn
Albertsson, fyrirliöi Vaisliðsins,
mun Ieika meö Islenzka landslið-
inu skipuöu leikmönnum undir
21 árs, sem mætir Norðmönnum i
Fredrikstad 30. mal. Ingi Björn,
sem er 25 ára, kemur i liðið i stað-
inn fyrir Guðmund Þorbjrönsson
úr Val, sem getur ekki farið til
Noregs vegna prófa I Háskóian-
um.
Ingi Björn er gjaldgengur i lið-
ið, þar sem tvein ieikmenn eldri en
21 árs mega leika með U-21 liðinu,
eins og þaö er kallað. Það þarf
ekki að efa að Ingi Björn mun
koma til með að styrkja liöið mik-
ið. Hann hefur yfir reynslu að
ráða, sem strákarnir munu njóta
góðs af.
14 leikmenn fara til Noregs, en
það eru:
Markverðir:
Jón Þorbjörnsson, Akranesi.
Guðmundur Baldurss., Fram.
Varnarmenn:
Róbert Agnarsson, Vikingi
Guðmundur Kjartanss., Val
Benedikt Guðmundss., Breiðab.
Einar A Ólafsson, Keflavik
Miðvallarspilarar:
Sigurður Björgvinss., Keflavik
Atli Eðvaldsson, Val
Albert Guðmundsson, Val
Rafn Rafnsson, Fram.
Sóknarmenn:
Ingi Björn Albertss., Val
Pétur Pétursson, Akranesi.
Arnór Guðjohnsen, Vikingi.
Pétur Ormslev, Fram.
Eins og sést á þessu er liðið
skipað mjög sterkum leikmönn-
um, sem leika stór hlutverk I
þeim 1. deildarliðum, sem þeir
leika með.
inn á Laugardalsvöllinn og fer
þar fram i fyrsta sinn nú.
Jafnframt er gerð tilraun til að
færa það betur til móts við áhorf-
endur með þvi að það verður látið
hefjast kl. 18,30 og er áætlað að
þvi verði lokið kl. 19,40. Þá verður
einnig inngangseyri stillt i hóf, en
hann verður kr. 500 fyrir
fullorðna og 200 fyrir börn.
Keppnisgreinar verða nú: 100
m. 400 m og 1500 m hiaup, stöng,
langstökk og kúla karla: 100 m,
400 m og 800 m hlaup, hástökk og
kúla fyrir konur auk 200 m hlaups
drengja.
Marteinn og
Stefán á leið
inni heim?
l»eir hafa ekki samið við ný
félög i Belgíu
SOS—Reykjavík. — Allt
bendir til að þeir Marteinn
Geirsson# landsliðsmið-
vörður úr Fram og Stefán
Halldórsson Vikingi, sem
hafa leikið með belgiska 2.
deildarliðinu i knattspyrnu
— Royale Union frá
Briissel/ snúi heim.
Samningur þeirra viö félagii
rann út fyrir stuttu og þeir endur-
nýjuðu hann ekki. Þeir félagar
hafa ekki fengið tilboö frá öðrum
félögum i Belgiu sem þeir sættu
sig við. Það er óvist hvort þeir
félagar ganga aftur i raðir sinna
gömlu féiaga hjá Fram og
Vikingi, eða reyna fyrir sér hjá
félögum i Sviþjóð eða Danmörku.
K-pgf- - „ ... - l :t
&’< > * .. É. - tiisto
INGI BJORN... sést hér skora sigurmark lslendinga gegn N-lrum á
Laugardatsvellinum sl. sumar.