Tíminn - 10.09.1978, Qupperneq 6

Tíminn - 10.09.1978, Qupperneq 6
6 Sunnudagur 10. september 1978 ÍiMlmi • Ctgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurðsson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og' auglýsingar Siðumúia 15. Sfmi 86300. Kvöldsfmar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verð i lausasölu kr. 100.00. Askriftargjald kr. 2.000 á mánuði. Blaöaprent h.f. ^__________________________________________J Hver dagur árangur Rikisstjórn ólafs Jóhannessonar, sem nú er tek- in til starfa og vinnur að fyrstu efnahagsaðgerðum sinum, er mjög alvarleg og mikilsverð tilraun til þess að leysa meginvandamál þjóðarbúskaparins i nánu samstarfi við almannasamtökin i landinu. Það verður ekki of rækilega brýnt fyrir fólki, launþegum jafnt sem öðrum, hve mikilvægt það er að þessi alvarlega tilraun takist. Hér hefur um margra mánaða skeið rikt hreinasta ófremdar- ástand vegna þess að ekki lá fyrir hvaða aðili i samfélaginu ætti að hafa forræði til athafna i nafni þjóðarinnar. Rikisstjórninni er i raun og veru ætlað að leysa þennan stjórnarfarslega vanda og bægja frá þeim háska sem af stafar, með samstarfi og samráðum við almannasamtökin. Það er vissulega eðlilegt að Framsóknarmenn hafi forystu fyrir slikri tilraun til þjóðlegrar sam- stöðu með heill alþýðu fyrir augum. Slikt er i fullu samræmi við stefnu og hugsjónir Framsóknar- manna og alla sögu flokksins. 1 lýðræðisþjóðfélagi er valdinu skipt milli margra aðila sem verða að taka skynsamlegt tillit hver til annars. Stjórnarfarslegt forræði og for- ystuhlutverk rikisins minnkar ekki við það að samráð séu höfð við launþegahreyfingarnar, sam- vinnufélögin og bændasamtökin og skynsamlegt tillit tekið til óska vinnuveitenda, viðskiptalifs, at- vinnuvega og landshlutasamtaka. Það sem máli skiptir er að allir þessir aðilar geri sér grein fyrir þvi að rikisvaldinu er ætlað að vera samnefndari og málamiðlari, en ekki að ganga er- inda eins aðilans algerlega á kostnað einhvers annars um fram skynsamlegt meðalhóf og félags- legt réttlæti. Helmingur flótta manna í heiminum eru böm milljónir manna lifa fjarri ættjörð sinni og eiga litla von um að snúa nokkum dmann beim Flóttafólk frá Burma Eftir styrjöldina í Shaba-héraði í Zairesl. ár flúðu um 220.000 manns þaðan til Angóla. Flest voru þetta bændur, sem áttu lítinn blett þar sem ræktuðu það, sem til mat- ar þurfti. Nú er búið að koma þeim fyrir í nýju en kunnuglegu umhverfi. Stjórnin í Angóla hjálpar þessu fólki við að eignast jarðarskika svo það geti lifað á svipaðan hátt og aðrir. ( fréttapistli frá Flótta- mannastofnun Samein- uðu þjóðanna eru marg- víslegar og sorglegar upplýsingar um þann mikla fjölda flótta- manna, sem víðs vegar um heiminn hrekst úr einum búðunum í aðrar, fjarri heimkynnum sín- um og meðal ókunnugra og stundum óskyldra þjóða. Helmingur allra flótta- manna eru börn og ung- lingar. Þeirra bíður margra hverra ekkert annað en að gerast þegn- ar annarra ríkja í besta falli, eða þá að eldast og deyja í flóttamannabúð- um eins og dæmi eru frá Vestur-Asíu. I Bangladesh eru nú nær 200.000 flóttamenn frá Burma, og er það þungur baggj fyrir hina sárfátœku þjóð. Þessir flóttamenn eru komnir frá Burma vegna átaka þar milli stríðandi ætt- bálka. Frá Víetnam berast þær fregnir, að hundruð þúsunda flóttamanna sé þangað komnir frá Kambodíu. Eru þetta flest menn af Khmer- stofni, sem flúið hafa ógnarstjórnina í Phnom Penh. Þá eru í þessum hópi nokkur hundruð þús- und manns af víetnam- stofni, sem hrakist hafa fram og aftur í styrjöld- inni á þessum slóðum undanfarna áratugi. í f lóttamannahópnum frá Kambódíu eru fjöl- mörg börn. Þær aðgerðir sem nú koma til framkvæmda eru sem kunnugt er fyrst og fremst viðbrögð við þeim vanda sem upp er kominn og er þeim ætlað að leysa hann til skamms tima. Á það verður hins vegar að leggja þyngstu áherslu að þessi nánu samráð við almannasamtökin verður að nota til þess að ná varanlegum árangri og ryðja úr vegi þeim hindrunum gegn vinnufriði i landinu, skyn- samlegri tekjuskiptingu,efnahagslegu jafnvægi og eðlilegum viðskiptaháttum sem felast i þvi „kerfi” sjálfu sem þjóðin hefur lifað við. Aðilarnir að rikisstjórninni verða að taka hönd- um saman um það að hún komi fram slíkum grundvallarbreytingum að verkanna sjái lengi staði i bættum hag og betra þjóðlifi. Samtimis þvi að gengið er til verks við það að leysa timabundinn vanda, verða menn jafnan að hafa langtimasjónarmiðin i huga. Umbótamenn mega aldrei gleyma sér svo i amstri daganna að hugsjónirnar og framtiðarmiðin falli i skugga. Og svo fer best að hvort glæði annað, lausnin við vanda liðandi stundar og framtiðarmarkmiðið sem stefnt er að um grýtta leið. Ef þetta samhengi rofnar aldrei skilar hvert dagsverk varanlegum árangri. JS.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.