Tíminn - 15.09.1978, Side 5
5
Föstudagur 15. september 1978
ííiiiiíili
Öryrkjabandalag íslands:
40 íbúðir fyrir
aldraða teknar
Troðið
í pípu
Meöan annar treður i pipuna,
heldur hinn eldri og vitrari
áfram að segja frá hve allt var
með öörum og betri brag hér
áður, þegar fólkið var vinnu-
samara, börnin hlýðnari og
landið fegurra og himinninn
— fjórir skipverjar á bátnum játa hins vegar
innlendar
fréttir
lyttur og botngróður í botnvörpH
unni og fleira er vakti grun varð-
skipsmanna um meintar ólögleg-
ar togveiöar á Skagafirði á bann-
svæði.
4 skipverjar, sem voru á bátn-
um með Una Péturssyni, játuðu
eftir miklar yfirheyrslur, að
báturinn hefði verið að togveiðum
með öll ljós slökkt, en skipsstjór-
inn neitaöi. Skipverjar voru ekki
lögskráðir á bátinn og höfðu
hvorki stýrimaöur né vélstjóri
nein réttindi.
Viðstaddir réttarhöldin á Sauð-
arkróki sem stóöu i samfellt 12
klst, voru lögmaöur Landhelgis-
gæzlunnar Jón Magnússon og
Bragi Steinarsson saksóknari.
Málið vartekiö fyriri Sakadómi
Skagafjaröarsýslu og kvaö
Jóhann Salberg Guðmundsson
sýslumaður i Skagafjaröarsýslu
upp dóminn, ásamt meðdóms-
mönnunum Jóni R. Jósafatssyni,
skipstj., og Sveini Nikodemssyni
vélstjóra.
Dómsorð er svohljóðandi: ”
„Akærði Uni Þórir Pétursson
skal greiða kr. 1.000.000 eina
milljón — til Landhelgissjóös
Islands og kr. 4000.00' — fjögur
þúsund — sekt til rikissjóös innan
4 vikna frá birtingu dóms þessa,
en sæti ella 3 mánaða varðhaldi.
Botnvarpa m/s Falds VE—138
með tilheyrandi dragstrengjum
skal vera upptæk og eign Land-
helgissjóðs Islands.
Akærði skal greiöa allan kostn-
aðaö sakarinnar, þar með talin
málsvarnarlaunskipaðs verjanda
sins, Arnars Clausen hrl., kr.
80.000.- átta tiu þúsund —
Dómi þessum ber að fullnægja
með aðferð að lögum.”
Kás — Dómur hefur ver-
ið kveðinn upp i máli
skipstjórans á Faldi VE
138, sem tekinn var að
meintum ólöglegum
botnvörpuveiðum innar-
lega í Skagafirði. En
dóms hefur verið beðið
nokkurn tima, eins og
komið hefur fram i Tim-
anum.
Málsatvik eru þessi:
Varðskipsmenn frá V/S Arvaki
voru á eftirlitsferð á gúmmibát
varðskipsins í ljósaskiptunum i
s.l. viku innarlega á Skagafirði,
skammtfrá Hofsósi og komu þeir
þá að m/b Faldi VE—138, skip-
stjóri Uni Þórir Pétursson,
búsettur á Hofsósi, þar sem
báturinn var að draga þroskanet.
Bátum var heimilað aö vera að
netaveiðum á þessum stað, en við
kannanir varðskipsmanna um
borð i m/b Faldi urðu varðskips-
menn varir við biauta botnvörpu i
skut bátsins, en þurrt veður hafði
verið þessa nótt. Einnig fundu
varðskipsmenn óþornaðar marg-
notkun um
mótin
Kás — Um næstu
mánaðamót verða form-
lega teknar i notkun 40
ibúðir, sem öryrkja-
bandalag íslands hefur
látið byggja fyrir
aldraða og öryrkja að
Fannarborg 1 i Kópa-
vogi. Svipað fyrirkomu-
lag verður á rekstri
þeirra og nú er i Hátúni i
Reykjavik, þ.e. þetta
eru leiguibúðir með
sameiginlegri félags-
legri aðstöðu.
Þegar er búiö að úthluta öllum
ibúðunum, sem bæði eru einstakl-
ings- og hjónaíbúðir og voru að
meðaltali tvær umsóknir
um hverja semekki þykir mikiö á
islenska visu. Þaö er Félagsmála-
stofnun Kópavogs, sem séð hefur
um úthlutun flestra þeirra, og
fyrsti ibúinn er þegar fluttur inn.
í samtali sem blaðamaöur Tim-
ans átti við Odd Ólafsson,
alþingismann og formann Hús-
stjórnar öryrkjabandalagsins,
sagði hann, að líkast til hvildi
öryrkjabandalagiö sig um sinn á
Enda ætti það nú 250 ibúðir á
stór-Reykjavikursvæöinu, auk
90—100 sjúkrarúma.
,,Við treystum okkur ekki raun-
að Fannar Æ
borg 1
Kópavogi
verulega til að fjármagna fleiri
húsbyggingaribili,”sagði Oddur,
„þannig að ég á von á þvi, aö við
einbeitum okkur mira að félags-
lega þættinum á næstunni.”
Enda hafa húsnæðismál
aldraðra og öryrkja breyst mjög
mikið á þeim tólf árum sem liðin
eru siðan viö tókum aö byggja
þessar leigulbúðir. Sveitarfélög
hafa i auknum mæli farið inn á
þetta sviö, þannig aö við förum að
geta sjálfkrafa dregiö i land. Ég
tel að okkar framkvæmdir i
þessum efnum hafi virkaö sem
hvati á sveitarfélögin, og þvi
valdið meiri timamótum en við
gerðum okkur ljóst i upphafi,”
sagði Oddur að lokum.
Hið nýja hús öryrkjabandalags-
ins að Fannarborg 1 Kópavogi.
Timamynd Tryggvi.
Dómur á máli Falds Ve 138:
Sklpstjórínn neitar
sök — en er dæmdur
í 1 millj. kr. sekt
Sólborg á Akureyri:
Nýbygging tilbúin
HR — Um þessar mundir
er verið að Ijúka við ný-
byggingu vistheimilisins
Sólborgar á Akureyri. Að
sögn Bjarna Kristjáns-
sonar, framkvæmda-
stjóra heimilisins, á að
reyna að taka húsnæðið í
notkun í október n.k. og
mun það leysa úr brýnum
húsnæðisvandræðum Sól-
borgar.
Bjarni sagði, að i nýbygging-
unni yrðu tvær deildir, önnur
fyrir börn og unglinga en hin
fyrir fullorðið fólk sem þarfn-
aðist sérstakrar umönnunar.
Ekki yrði vistmönnum þó fjölg-
að frá þvi sem nú er, en þeir eru
70 talsins.
Nýja húsnæðið er 450 fer-
metrar og á það aö rúma 18-22
vistmenn. Mun það auka hag-
ræðingu á vistheimilinu og
verður þá kleyft að skipta vist-
mönnum niður i deildir eftir þvi
hverjar þarfir þeirra eru.
A Sólborg er vistað van-
gefið fólk, en margt af þvi er
auk þess likamlega fatlað. Að
sögn Bjarna er stefnt að þvi, að
stofnunin verði eingöngu fyrir
þá sem eru þaö mikið fatlaðir,
andlega og likamlega, að þeir
geta ekki dvaiist hjá sinum
nánustu. Það beri að stefna aö
þvi að sem flestir vangefnir geti
lifað eðlilegu lifi utan stofnana-
veggja.
jf
|