Tíminn - 15.09.1978, Page 8
d’.n 'iorf.f. .''i HIVb'lilV'1 ‘
Föstudagur 15. september 1978
á víðavangi
ur J. Sigurösson, Keflavik Gestur Kristinsson, fram-
kvæmdastj. SUF, og Guðný Magnúsdóttir, Hafnarfiröi. A
myndina vantar Hákon Hákonarson, Akureyri, Einar Bald-
ursson, Reyöarfiröi og Egil Gfslason, Súöavik.
Tímamynd: Róbert.
að leggja til
fersk spor
Nýkjörin stjórn SUF á fundi sl. miövikudag. T.f.v.: Snorri I
Þorvaldsson, Akurey, Rangárvallasýsiu, Jön B. Pálsson
Kópavogi, Pétur Björnsson Raufarhöfn, Arnþrúöur Karls-
ddttir, Reykjavik, Ilaukur lngibergsson, Bifröst, Eirfkur
Tómasson. Revkjavfk, Gylfi Kristinsson, Reykjavfk, Sigurö- |
SUF á
ný og
SUF-þingiö um siöustu helgi
tókst meö ágætum. Eins og
Tlminn hefur greint frá, þótti
yfirbragö þingsins einkennast
af einlægni og baráttuhug. Mjög
eölilega settu úrslit siöustu
kosninga svip sinn á þinghaldiö.
Umræöur á þinginu voru opin-
skáar og þingfulltrúar lausir viö
þá hvimleiöu „andateppu” aö
skafa i sifellu utan af hlutunum.
Sambanda ungra framsókn-
armanna á ákveönu hlutverki
aö gegna. Eins og segir i iögum
þess, ber þvi einkum aö:
a) kynna stefnu og hugsjönir
framsóknarmannaogafla
þeim fylgis meöal æsku-
fólks.
b) efla stjórnmála- og félags-
þroska ungra framsóknar-
manna.
c) vinna aö hagsmunamálum
æskunnar i landinu.
SUF er samband ungs fólks
fyrir ungt fólk. Þvi ber ekki aö
kenna gömlum hundum aö sitja,
heldur aö berjast fyrir fram-
gangi beirra mála, sem til hags-
bóta horfa íyrír æsku landsins.
Ungir framsóknarmenn telja
þaö meö meginhlutverkum sin-
um, aö leggja til ný og fersk
spor I starfsháttum Framsókn-
arflokksins og stefnumörkun.
Ef vel á aö takast til meö nauö-
synlegar breytingar i þessum
efnum, veröur samvinna eldri
og yngri flokksmanna aö koma
til. Annars er vá sundrungar og
óánægju fyrir dyrum.
Nýkjörin stjórn SUF á mikiö
verk fyrir höndum viö aö fylgja
eftir ályktunum þingsins og
fylgja eftir þeim áhuga, er þar
mátti mjög greinilega merkja.
SUF-þingiö ályktaöi um fjöl-
marga málaflokka. 1 stjórn-
málaályktun segir m.a. aö þing-
iö leggi áherslu á ,,aö úrslit ný-
liöinna kosinga knýja á um
gagngera endurskoöun á starfs-
háttum, stefnumörkun og bar-
áttuaðferöum Framsóknar-
flokksins.
Þingiö telur aö auka beri upp-
lýsingamiöiun innan flokksins,
þannig aö almennum flokks-
mönnum um land allt gefist
kostur á aö vinna betur aö fram-
gangi stefnumála hans og geti
jafnframt veitt forystumönnum
flokksins virkt aöhald. Þannig
má og tryggja aö tengsl hins al-
menna flokksmanns og flokks-
forystunnar rofni ekki.” Hér er
allt sem segja þarf. Orslit siö-
ustu kosninga hljóta aö hafa
orðiö framsóknarmönnum þaö
mikið ihugunarefni, að um
nauösyn slikrar endurskoöunar
og endurskipulagningar ætti
ekki aö vera ágreiningur.
Vantar þróun
í tilveruna
Alyktun þingsins um um-
hverfisvernd og breytt lifsgæöa-
mat er mjög merkileg. Þar seg-
ir m.a.: „17. þing SUF bendir á
nauðsyn nýs gildismats. Lögö
verði áhersla á þá þætti mann-
legs lifs sem ekki ganga á auð-
lindir og krefjast ekki mikillar
fjárfestingar, t.a.m. visindi,
listir, félagslif, iþróttir og úti-
vist. Manngildið skipi öndvegi 1
stað hlutgervingar neyslusam-
félagsins”. Hér er drepiö á mál,
sem án nokkurs vafa skiptir
miklu um alla framtiö manns-
ins. Þenning mannsins og skiln-
ingur er skoraöur á hólm af
tæknivæöingu vestrænna sam-
félaga. Likamlegt atgervi hefur
hopað fyrir hinu andlega.
Minnimáttarkennd brýst fram I
æ rikari mæli og leiöir til lifs-
flótta. Þetta bitnar ekki sist á
ungu fólki. Samfélagiö krefst
þess, að ungt fólk sanni tilveru-
rétt sinn eftir andlaustri mæli-
stiku llfsgæðakapphlaupsins.
Sumir hinna ungu sinna ekki
þessari kröfu og eiga það til aö
leita á vit sjálfsgleymsku, sem
þaö finnur i formi áfengis- og
eiturlyfjaneyslu. Þaö leitar
einnig á náöir „útópiskrar”
hugmyndafræöi og alls konar
kenningaafbrigöa, sem sverja
sig i ætt trúarbragöa og spretta
uppeins og mý á mykjuskán við
skjótan hljómgrunn „flótta-
fólksins”.
Maðurinn býr viö allt of mik-
inn hraða. Staðreyndir i dag
gætu alls eins orðiö staðleysur á
morgun. Það er eins og þaö
vanti alla þróun i tilveruna. „In-
stant-kynslóð” i vixlasamfélagi
verður að gera sér þetta ljóst.
—SS.
1.- 5. Ferðir til trlands
6.-35. Feröir til Costa Del Sol
36.-40. Feröirtil Júgóslaviu
41.-50. Ferðir til irlands
Verömæti 126.000 Samt. 630.000
verömæti 122.900 Samt. 3.687.000
verömæti 116.400 Samt. 582.000
verömæti 84.500 Samt. 845.000
Vinningaverðmæti alls 5.744.000
Þeir sem hafa fengið heimsenda miða i happdrætti Full-
trúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykjavík eru vin-
samlega hvattir til að senda greiðslu við fyrsta tækifæri.
Skrifstofan að Rauðarárstig 18 er opin frá 9—5 simi
24480. Greiðsla sótt ef óskað er.
Akureyri:
Snæfell
marar
enn í
hálfu
kafi
**
ESE — Enn hefur ekki tekist að
ná Snæfellinu sem sökk i Akur-
eyrarhöfn á dögunum á flot, en aö
sögn Gunnars Ragnars forstjóra
Slippstöðvarinnar þá er undir-
búningur aö verkinu vel á veg
kominn.
Ekki treysti Gunnar Ragnars
sér til þess að segja til um hvenær
verkinu lyki, en i gær var m.a.
verið aö ganga frá festingum á
skipinu.
Gunnar sagöi að trúlega kæmu
einar tvær til þrjár leiöir til
greina til þess aö koma skipinu á
flot og kvaðst hann ætla aö flot-
púðar yrö notaöir til þess aö létta
undir þvi verki, en aö ööru leyti
væri ekki búiö að ákveöa hvernig
yrði aö verkinu staöiö.
Snæfelliö i Akureyrarhöfn
Nýr
heilsu-
hringur
Nýr „Heilsuhringur” var stofn-
aður 2. ágúst, austur i Mýrdal, af
áhugafólki um hollefni og heilsu-
rækt.
Stjórnina skipa: Stefán
Gunnarsson, vitavöröur Eyþór
ólafsson, bóndi og frú Hrönn
Bra ndsdóttir.
Svohljóðandi samþykkt var
gerö á fundinum „Fundurinn
leggur áherslu á, að fyllstu viö-
sýni sé gætt og engum leiðum,
sem færar eru til aukinnar heil-
brigði, sé lokaö, heldur stöðugt
leitað nýrra leiða.
Fundurinn telur aö bannstefna
lyfjavalda gangi þvert á þessi
markmið, og lýsir yfir andstööu
viö áform þeirra um takmörkun
eöa bann á sölu og dreifingu holl-
efna.”
Höfn f Hornafirði:
Minnis-
varði
— um
brautryðjendur
Þórhallur Danlelsson, kaup-
maöur og útgeröarmaöur, og
kona hans, Ingibjörg Friögeirs-
dóttir, voru brautryöjendur
byggðar og athafnalifs á Höfn i
Hornafirði. Nú á sunnudaginn, 17.
september, verður þeirra minnst
á Höfn með þvi aö afhjúpaöur
verður minnisvarði um þau þar
eystra. Mun athöfnin fara fram
kl. 2.