Fréttablaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 12
12 1. september 2006 FÖSTUDAGUR
KÓLOMBÓ, AP Stjórnarher Srí Lanka
sækir nú í átt að Sampur-skaga við
Trincomalee, norðlæga hafnarborg
á austurströnd landsins. Sampur-
skagi er á miðju yfirráðasvæði
Tamílatígranna í austri og hernað-
arlega mikilvægur því í Trincoma-
lee er góð höfn, sem Tígrarnir nota
til að koma vistum á yfirráðasvæði
sín og til að klekkja á sjóher stjórn-
arinnar, en herstöð sjóhersins er
skammt undan borginni. Tamíla-
tígrar hafa síðustu daga haldið úti
árásum á herstöðina, en mikilvægt
er fyrir stjórnarherinn að stöðin
falli ekki í hendur Tígrunum því
hún er eina leiðin fyrir stjórnarher-
inn til að senda nauðsynlegar vistir
til sinna hermanna á Jaffna-skaga í
norðri.
Sóknin, sem staðið hefur yfir frá
sunnudegi, ræður því miklu um
áframhaldandi þróun mála á svæð-
inu og segir ríkisstjórnin að stjórn
svæðisins ráði jafnvel úrslitum um
fullveldi landsins. Hún sé svo mikið
grundvallaratriði að hún sé undan-
þegin vopnahléssamningnum frá
2002. Þorfinnur Ómarsson, tals-
maður norrænu eftirlitssveitarinn-
ar, efast um að þetta eigi við rök að
styðjast. Sampur-skaginn hafi verið
undir stjórn Tígranna í fjögur og
hálft ár, eða allt frá vopnahléi. Her-
inn geti því ekki sagt núna fyrst að
hann skipti grundvallarmáli fyrir
fullveldi landsins. Væri svo hefði
herinn aldrei gengið að vopna-
hléinu. Árásin er því að mati SLMM
brot á vopnahléssamningnum. - kóþ
FRAMKVÆMDIR Grunnar geta
staðið opnir í áratugi, aðeins
þarf að ganga frá þannig að
ekki stafi hætta af. „Gapandi
grunnur er ekki ríkinu til sóma
nema síður sé,“ segir Magnús
Sædal, byggingafulltrúi í
Reykjavík.
Byggingayfirvöld hafa
heimild til þess að fella bygg-
ingarleyfi úr gildi en það er
sjaldan gert. Magnús segir að
ekki stafi hætta af grunninum
við Læknagarð en kannast hins vegar ekki við grunn-
inn á baklóð K-álmu LSH.
Herdís Storgaard, forstöðumaður Sjóvá forvarna-
húss, segir að frágangur á grunnum séu enn mikið
vandamál í borginni. Stærsta hætta fyrir börn sé
tvenns konar, vatnshætta og
steypustyrktarteinar. Steypu-
styrktarjárnin við Læknagarð
hafi verið klædd um 1996.
„Við reyndum mikið að fá
þá til að ganga frá járnunum
og grafa yfir þannig að það
skapaðist ekki hætta. Ég man
að það var á sínum tíma mikil
barátta að fá spítalann til að
setja varnir á járnin,“ segir
hún.
„Það hafa orðið mjög alvar-
leg slys þar sem börn hafa festst eins og kjöt á grill-
teinum. Í einhverjum tilfellum hafa þau orðið að losa
sig sjálf þar sem hjálp hefur ekki fengist.“
Betur verður gengið frá teinunum við Læknagarð
á næstunni. - ghs
Í kjölfar niðurstöðu norrænu eftirlitssveitarinnar um að sautján hjálpar-
starfsmenn hafi verið teknir af lífi af stjórnarher Srí Lanka, eins og greint var
frá í Fréttablaðinu í gær, hefur Jan Egelund, skipuleggjandi neyðaraðstoðar
Sameinuðu þjóðanna, hótað því að draga mannúðaraðstoð SÞ tímabundið
til baka.
Ulf Henricsson, fráfarandi yfirmaður SLMM, tók í sama streng og sagði
ómögulegt að starfa áfram á átakasvæðinu nema „fólk verði dregið til
ábyrgðar á aftöku sautján samstarfsmanna okkar“.
Sameinuðu þjóðirnar:
Íhuga að fresta neyðaraðstoð
EINBEITTUR STJÓRNARHERMAÐUR Þessi dáti berst í grennd Trincomalee. Stjórnarher-
inn vill flæma Tígrana frá svæðinu til að ná aftur valdi á sjóflutningum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
INDVERSK TÍSKA Sýningarstúlkur sýna
indverska fatatísku á tískuviku í Nýju-
Delí í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VIÐ LÆKNAGARÐ „Við reyndum mikið að fá þá til að
ganga frá járnunum,“ rifjar Herdís Storgaard, forstöðu-
maður Sjóvá forvarnahúss, upp um grunninn við
Læknagarð. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Húsgrunnar geta staðið opnir í áratugi í borginni ef frágangur er tryggilegur:
Byggingarleyfi sjaldan fellt úr gildi
Stjórnarherinn sækir inn á svæði Tígra í Srí Lanka:
Stórsókn hersins
DÓMSMÁL Hálffimmtugur
karlmaður hefur verið dæmdur í
þriggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir brot gegn vald-
stjórninni. Hann er dæmdur fyrir
að hafa í september í fyrra
sparkað í andlit lögreglumanns
þegar lögreglumaðurinn var að
reyna að koma honum inn í
lögreglubíl eftir óspektir á
skemmtistaðnum Players í
Kópavogi. Tvær tennur brotnuðu
í lögreglumanninum.
Manninum var gert að greiða
lögreglumanninum rúmar sex
þúsund krónur í skaðabætur.
Dómurinn var kveðinn upp í
Héraðsdómi Reykjaness í gær. - sh
Karlmaður fær skilorð:
Braut tennur
lögregluþjóns
EÐ
A
LD
A
G
A
R
Laugavegur
Lexus IS200
skráður 04/04 ek. 35.000
verð 2.600.000 kr.
Laugavegur
VW Passat Highline 2,0 Turbo
skráður 11/05 ek. 7.000
verð 3.650.000 kr.
Laugavegur
Mercedes Benz ML 270 Cdi
skráður 09/05 ek. 26.000
verð 5.640.000 kr.
*M.v. SP-bílasamninga