Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.09.2006, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 01.09.2006, Qupperneq 18
 1. september 2006 FÖSTUDAGUR18 fréttir og fróðleikur Kimmo Sasi er formaður stjórnarskrárnefndar finnska þingsins og átti sæti í nefndinni sem samdi nýju stjórnarskrána sem tók gildi árið 2000. Auðunn Arnórsson hitti hann að máli í þinghúsinu í Helsinki. Tilefni heimsóknarinnar er að kynnast reynslu Finna af því að endurskoða stjórnarskrá norræns lýðveldis, í ljósi þess að nú er verið að vinna að endurskoðun stjórnar- skrár íslenska lýðveldisins. Það fer ekki á milli mála þegar á fund Sasi er komið að þar fer maður sem gustar af. Hann hefur setið á þingi fyrir íhaldsflokkinn Kokoomus (Sameiningarflokkinn) síðan árið 1983. Hann er lögfræð- ingur að mennt og hefur allt frá því fyrst var farið að vinna að endurskoðun finnsku stjórnar- skrárinnar, fyrst mannréttinda- kaflans og svo allra annarra þátta hennar, tekið virkan þátt í því starfi. Sem formaður stjórnar- skrárnefndarinnar hefur hann mikið um það að segja hvernig hin endurskoðaða stjórnarskrá Finna er túlkuð, enda hefur nefndin sam- svarandi vald til að skera úr um stjórnarskrársamræmi laga og stjórnskipunardómstólar hafa í öðrum ríkjum. Lærdómur af valdatíð Kekkonens Sasi var fyrst beðinn að lýsa aðdraganda þess að stjórnarskrá- in var endurskoðuð árið 2000. Til að útskýra það byrjar hann á að rifja upp að Finnland fékk sjálf- stæði árið 1917 og þingið sam- þykkti nýja stjórnarskrá árið 1919. „Með henni varð Finnland lýð- veldi; í henni var kveðið á um hvernig æðstu valdastofnanir rík- isins störfuðu,“ segir hann. „Þessi stjórnarskrá hélst lítt breytt fram á tíunda áratuginn. Eftir 24 ára forsetatíð Urho Kekkonens (1956- 1981) var mikill vilji fyrir hendi að draga úr völdum forsetans, það var einn aðalhvatinn að stjórnar- skrárbreytingum,“ útskýrir Sasi. „Hinn var sá að mannréttinda- ákvæði voru af mjög skornum skammti í gömlu stjórnar- skránni.“ Byrjað á mannréttindakafla Viljinn annars vegar til að draga úr völdum forsetans og hins vegar til að efla mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar voru semsé aðalhvatarnir að því að fljótlega eftir að Kekkonen var farinn frá völdum í byrjun níunda áratugar- ins var kölluð saman nefnd með fulltrúum úr öllum stjórnmála- flokkum sem sæti áttu á þingi. „Þessi nefnd hafði það hlutverk að semja nýjan mannréttindakafla stjórnarskrárinnar og ég átti sæti í henni,“ segir Sasi. Nefndinni til ráðgjafar var nefnd með stjórn- lagafræðingum og öðrum sér- fræðingum, auk embættismanna og fulltrúa hagsmunasamtaka aðila vinnumarkaðarins. Erfiðar málamiðlanir „Þetta nefndarstarf tók langan tíma og það þurfti miklar pólitísk- ar málamiðlanir til að komast að niðurstöðu,“ segir Sasi. En niður- staða náðist og nýr mannréttinda- kafli tók gildi árið 1995, sama ár og endurskoðaður mannréttinda- kafli íslensku stjórnarskrárinnar gekk í gildi. Sasi segir aðalmálamiðlunina, sem greiddi fyrir samþykki upp- færða mannréttindakaflans, hafa verið þá að fallist var á að afnema vald það sem þriðjungur þing- heims hafði til að fresta gildistöku tiltekinna laga fram yfir kosning- ar, en þetta vald hafði verið stjórn- arandstöðuflokkum Kekkonen- tímans mikilvægt haldreipi. Þegar borgaraflokkarnir komust í stjórn seint á níunda áratugnum og þurftu að koma efnahagsumbót- um í framkvæmd reyndist þetta ákvæði slíkum umbótaáformum mjög til trafala. Því varð niður- staðan sú að afnema það um leið og nýi mannréttindakaflinn var samþykktur, en í honum eru meðal annars ákvæði um efnahagsleg og félagsleg réttindi sem vinstri- menn í nefndinni lögðu mikla áherslu á að yrðu þar. „Það skapaðist samstaða milli flokka innan þings um að taka þetta vald af minnihlutanum. Þessu var breytt um leið og nýi mannréttindakaflinn var sam- þykktur,“ staðfestir Sasi. „Í framhaldi af því var samstaða um að halda verkinu áfram og uppfæra aðra þætti stjórnarskrár- innar, sem verið höfðu í gildi frá árinu 1919. Stefnan var sett á að endurskoðuð stjórnarskrá tæki gildi árið 2000,“ segir hann. Því hafi ný nefnd verið mynduð til að vinna að þessu verkefni. „Nefndin fór í gegnum gömlu stjórnar- skrána og endurskrifaði ákvæði hennar; færði þau til nútímalegra horfs,“ útskýrir Sasi. „Innihalds- lega voru þó litlar breytingar gerðar aðrar en þær sem vörðuðu valdsvið forsetans.“ Forsetinn sviptur valdheimildum Þær breytingar voru hins vegar umtalsverðar. „Forsetinn var sviptur nær öllu valdi í innanríkis- málum,“ segir Sasi. Til dæmis um þetta nefnir hann að ef forsetinn hefur eitthvað á móti tilteknu stjórnarfrumvarpi getur hann vísað því til baka til ríkisstjórnar- innar, en vilji hún halda málinu til streitu og sendir það óbreytt til forsetans til undirskriftar, verður hann að gera það. „Einu raunverulegu völdin sem forsetinn hefur í innanlandsmál- um er skipunarvald í æðstu emb- ætti ríkisins,“ segir Sasi. Frá því uppfærða stjórnarskráin tók gildi hefur sýnt sig að þetta embættis- skipunarvald hefur forsetinn nýtt sér til áhrifa. Það sem álitið var haldast sem valdsvið forsetans er fyrst og fremst á sviði utanríkismála. Ánægja í öllum flokkum „Ég tel að í öllum flokkum ríki nú almenn ánægja með nýju stjórn- arskrána,“ segir Sasi. „Eins og ég sagði er valdsvið forsetans ekki alveg fullmótað enn, ég tel að það taki svolítinn tíma. Forsetinn mun draga úr hlutverki sínu í sameigin- legri utanríkis- og öryggismála- stefnu ESB, ef ekki að eigin frum- kvæði þá þvingaður til þess. Hann mun að mínu viti gegna æ minna hlutverki í leiðtogafundunum.“ Sasi rekur ástæðuna fyrir því að Finnar gátu svo lengi búið við stjórnarskrá, sem svo litlum breytingum tók, til þess að með 2/3 hluta þingmeirihluta var hægt að samþykkja sérlög sem viku frá bókstaf stjórnarskrárinnar. Þessi heimild var notuð mörg hundruð sinnum á gildistíma gömlu stjórnarskrárinnar; mörg slík lög voru þó aðeins í gildi í takmarkað- an tíma. Þegar nýja stjórnarskráin tók gildi var kveðið á um að ekki væri hægt að hagga við kjarna stjórn- arskrárvarinna réttinda borgar- anna. „Nýja reglan var því sú að áfram er mögulegt að gera stjórn- arskrárbreytingar með þessum hætti (2/3 meirihluta), en nær ein- göngu í tengslum við alþjóðasam- starfsskuldbindingar okkar,“ útskýrir Sasi. FRÉTTAVIÐTAL AUÐUNN ARNÓRSSON audunn@frettabladid.is Ný stjórnarskrá Finna reynist vel Reglulega berast fréttir af átökum svo- kallaðra Tamíltígra á Srí Lanka við þarlend yfirvöld. Norrænar friðargæslusveitir hafa dvalist á eynni undanfarið, meðal annars nokkrir Íslendingar. Hverjir eru Tamíltígrarnir? Tamíltígrarnir eru herská pólitísk samtök sem hafa strítt við yfirvöld Srí Lanka frá því á áttunda áratugnum með það að markmiði að aðskilja Tamíl-svæðin í Norður- og Austur-Srí Lanka frá landinu og stofna nýtt ríki. Eru Tamíltígrarnir hryðjuverkasamtök? Eins og venjan er með samtök af þessum toga eru alls ekki allir sammála um hvern- ig skuli skilgreina Tamíltígrana. Stuðn- ingsmenn þeirra segja þá frelsishetjur en fjöldi ríkja, þeirra á meðal Bandaríkin, ríki Evrópusambandsins, Kanada og Indland, hafa sett Tígrana á lista yfir hryðjuverka- samtök. Það er aðallega gert vegna þess að þeir nota barnunga hermenn, hafa staðið fyrir launmorðum á þekktum stjórnmálamönnum og beita sjálfsmorðs- árásum. Þeir sem andmæla því að þeir séu hryðjuverkasamtök benda á að Tamíltígr- arnir, sem stjórna nyrsta hluta landsins, haldi úti skólum fyrir börn, heilbrigðis- þjónustu, dómskerfi, lagaskóla, fjölmiðla- kerfi, bönkum, tollgæslu og lögreglu, og séu því engin hryðjuverkasamtök, heldur sjálfstætt starfandi ríki með eigin stjórnsýslu. FBL GREINING: TAMÍLTÍGRARNIR Starfrækja fjölmiðla, skóla og banka Hvalveiðar í vísindaskyni hafa verið stundaðar frá árinu 2003 en veiðum þessa árs lauk í síðustu viku. Sverrir Daníel Halldórsson er líffræðingur á hvaladeild Hafrannsóknarstofnunar- innar. Hversu margar hrefnur megið þið veiða og hvað eruð þið að rann- saka? Þetta voru 60 dýr sem við máttum veiða í ár. Við erum fyrst og fremst að skoða fæðuvistfræðina; mikilvægi hrefnunnar í vistkerfinu. Við greinum til dæmis magasýni úr dýrunum. Hvað verður um kjötið? Félag hrefnuveiðimanna sér um að setja kjötið í sölu. Allur ágóði af þess- um veiðum rennur í rannsóknarsjóð. Hvernig fara veiðarnar fram? Við vorum með fjóra báta fyrr í sumar, en tvo undir lokin. Félag hrefnuveiði- manna útvegar bátana og allir skip- stjórarnir eru gamlir hrefnuveiðimenn. Við notum norskan sprengiskutul, sem springur þegar hann kemur í dýrið. SPURT & SVARAÐ Hvalveiðar Svona erum við > Fjöldi íslenskra útvarpsstöðva SVERRIR DANÍEL HALLDÓRSSON líffræðingur 1965 4 231 1985 2005 Heimild: Hagstofa Íslands KIMMO SASI Formaður stjórnarskrár- nefndar finnska þingsins. SÁTT UM VALD STJÓRNARSKRÁRNEFNDAR ÞINGHÚSIÐ Í HELSINKI Með byggingu hins tilkomumikla þinghúss á millistríðsár- unum var fest í sessi tilkall þingsins til að vera kjölfesta finnskrar stjórnskipunar. LJÓSMYND/AUÐUNN endurspeglar þannig flokkspólitískar átakalínur, svarar Sasi því til að þetta hafi hingað til ekki verið vandamál. „Við reynum jafnan að ná samstöðu þegar við tökum afstöðu til mála í nefndinni,“ segir hann. Og nefndarmenn reyni að láta lögfræðirök vega þyngra en pólitísk. Sasi segir góða samstöðu ríkja um það vald sem stjórnarskrárnefndin fer með. Hún hefur ein réttinn til að túlka stjórnarskrárgildi laga. Dómstólar hafa þennan rétt ekki nema að svo miklu leyti sem tengist tilteknu máli sem þeir þurfa að úrskurða í. Slík túlkun fær að sögn Sasi þó þá aðeins fordæmisgildi að hún gangi ekki gegn túlkun stjórnarskrárnefndar- innar. Hann segir aðeins eitt slíkt tilvik hafa komið upp í Hæstarétti síðan stjórnarskráin tók gildi fyrir sex árum. Spurður hvort það sé ekki til þess fallið að grafa undan trúverðugleika nefndarinnar að hún er skipuð stjórnmálamönnum en ekki atvinnulögfræðingum og Nánar verður fjallað um reynslu Finna af endurskoðun stjórnarskrár sinnar í Fréttablaðinu á morgun. 1 dálkur 9.9.2005 15:21 Page 8 Upplýsingar, viðburðir, afþreying og fréttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.