Fréttablaðið - 01.09.2006, Page 33
FÖSTUDAGUR 1. september 2006 5
Stefán Ásgrímsson, ritstjóri
hjá Félagi íslenskra bifreiða-
eigenda, ók nýverið hringveg-
inn við þriðja mann á aðeins
einum bensíntanki.
Stefán sem ók hringveginn á bíl
frá Heklu í þágu Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna segist
ekki vera sérfróður í því hvernig
spara eigi peninga öðruvísi en
með því að versla í Bónus, en
þegar kemur að bílamálum viti
hann eitt og annað. „Að mínu mati
eru bílar því betri sem þeir eru
ódýrari. Þegar maður er ekki á of
dýrum bíl er maður ekki að tapa
vöxtum og þá er einnig minna
verðfall á honum.“
Stefán ók hringveginn og rúm-
lega það á einum bensíntanki með
því að fylgja einföldum viðmiðum.
„Ég ók á um það bil 70 kílómetra
hraða og forðaðist að láta bílinn
rembast. Ég læt bílinn ekki renna
niður brekkur heldur læt ég hann
halda við í hæsta gír, þá lokar hann
fyrir alla bensíninngjöf og eyðir
bara 0,0 lítrum,“ segir hann en
bætir því þó við að hann tileinki
sér ekki slíkt sparnaðaraksturslag
að jafnaði sjálfur.
„Það er líka sagt að dísilbílar
eyði 20-50 prósentum minna elds-
neyti heldur en bensínbílar. Það
liggur því í augum uppi að ef
maður ætlar að spara orku og elds-
neyti þá á maður að eiga dísilbíl.“
Aðspurður um hvaða aðferðir
hann tileinki sér til þess að minnka
útgjöld í tengslum við bíla svarar
hann: „Ég passa mig á því að skipta
voðalega sjaldan um bíla. Ég reyni
að eiga einhverjar góðar tegundir
sem eru ekki til vandræða og bila
lítið. Ég á bílana mína yfirleitt
þangað til að þeir eru einskis virði
og þá gef ég einhverjum þá,“ segir
hann og hlær. „Ég er reyndar ekki
á gömlum bíl um þessar mundir
en ég mun eflaust eiga hann
lengi.“
Stefán segist ennfremur furða
sig á fólki sem bindur stóran hluta
peninga sinna í dýrum bílum. „Að
mínu mati er það vitlaust, ég vil
bara eiga fyrir bílnum sem ég
kaupi og að það sé ekkert lán áhvíl-
andi á honum.“
Þó svo Stefán hafi yfirleitt
verið heppinn með bílana sína þá
hefur það ekki alltaf verið raunin.
„Ég eignaðist einu sinni Moskvits
sem ég fékk í skiptum fyrir annan
bíl, hann var alveg vitavonlaus og
því var ég fljótur að losa mig við
hann.“ valgeir@frettabladid.is
Keyrir bílana sína út
Stefán Ásgrímsson, ritstjóri FÍB-blaðsins, kann á því skil hvernig spara skal í bílamálum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÚTIVIST OG SPORT VERSLANIRNAR
ERU NÚ MEÐ 50 PRÓSENTA AFSLÁTT
AF REGATA BARNAVÖRUM.
Útivist & Sport verslanirnar eru í
Reykjavík, Akureyri og Keflavík.
Að auki eru sölustaðir á Ísafirði,
Reyðarfirði og Höfn í Hornafirði.
Fyrirtækið býður nýjar barnavörur
fyrir veturinnn og 50 prósenta afslátt
af úlpum, snjóbuxum, softshell
peysum, flíspeysum, snjógöllum,
skóm og annarri smávöru. Regatta
er hágæða útivistarmerki fyrir alla
aldurshópa og er opið í Útivist &
Sport frá klukkan 11-16 um helgina.
Tilboð á
útivistarvörum
Fyrir suma er 13 óhappatala.
Þessir sumir geta nú snúið
lukkunni sér í vil og nýtt sér
tilboðin í tilefni 13 ára afmælis
Tölvulistans.
Í Tölvulistanum fæst allt sem við
kemur tölvum. Þar er hægt að fá
Acer og ACE borð- og fartölvur,
prentara, hljóðkerfi, hljóðkort,
móðurborð, harða diska, skjákort
og alla fylgihluti.
Meðal þess sem er á tilboði nú
er þráðlaust Logitec lyklaborð og
mús. Saman kosta þau 14.900
krónur. Viftulaust GeForce7 256
MB DDR2 skjákort kostar 15.900
krónur, Logitech X-530 5.1 hljóð-
kerfi fyrir tölvur kostar 9.900
krónur og Canon prentari sem
skilar ljósmyndagæðum kostar
9.900 krónur.
Á tölvunum í Tölvulistanum
eru núll prósent vextir á tölvu-
kaupalánum í tilefni afmælisins
og fyrsta greiðsla gjaldfellur ekki
fyrr en 1. október. Hægt er að sjá
tölvurnar sem í boði eru í ein-
hverri af fjórum verslunum Tölvu-
listans, á Akureyri, Egilsstöðum, í
Keflavík og Reykjavík. Ekki
skemmir fyrir að Tölvulistinn
býður gestum upp á emmess
íspinna meðan birgðir endast.
Afmælissprengja
Útsölulok standa nú yfir í Rad-
íóbæ í Ármúla.
Radíóbær í Ármúla býður stór-
lækkað verð á vörum sínum vegna
útsöluloka. Hægt er að gera mörg
góð kaup á raftækjum og spara
sér ófáan skildinginn.
Meðal góðra tilboða eru sjón-
vörp, 27, 19 eða 15 tommu, sem
hægt er að fá á afslætti sem nemur
15 til 30 þúsundum króna. Ferða
DVD spilara má fá með tíu þúsund
króna afslætti og söngelskir geta
keypt sér karókítæki á 5.495 krón-
ur og sparað sér þannig 6.500
krónur.
Roberts útvörpin eru seld með
fjögur þúsunda króna afslætti og
Tangent útvörpin með fimm þús-
unda króna afslætti. - jóa
Útsölulok í
Radíóbæ
Tölvulistinn býður upp á tölvur í úrvali.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
��������������������
Faxafeni 5 • Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 • Laugardaga frá kl. 11-16
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
06
Dúnsængur og koddar
• Hitajöfnun 37°C
• Hannað af NASA
• 600 gr af 100% hreinum hvítum gæsadún
• Asthma- og ofnæmisprófað
• Hægt að þvo á 60°
Tempur inniskór
• Mjúkur gúmmísóli
• Tempur efni í botni
• Mjúkur og hlýr