Fréttablaðið - 01.09.2006, Page 46
tískumolar
Helgu Ólafsdóttur
tískan
Þessi flotta háls-
festi frá Friis &
Company minnir
óneitanlega á ólina á
hinum klassísku
Chanel töskum.
HÁLSFESTI Í CHANEL STÍL
Þessi geggjaði svarthvíti leopardmunstraði
Marc by Marc Jacobs kjóll er efstur á mínum
óskalista. Mér finnst hann fullkominn eins
og hann er á módelinu með leggings og
legghlífum. Marc by Marc Jacobs fæst því
miður ekki á Íslandi en smá netsurf getur
reddað öllu.
Óskalistinn minn
Hinn heimsfrægi fatahönnuður Alexander
McQueen hefur hannað línu undir sínu nafni
síðustu sex ár. Um þessar mundir er hann að
kynna nýja viðbót. Sú lína heitir McQ og er mun
ódýrari og ætluð yngra fólki. McQueen segir að
unglinga mótorhjóla- og rokkaragengi frá 1960
hafi haft mikil áhrif á sig er hann var að hanna
línuna. McQ er fáanleg m.a. í Harvey Nichols og
Neiman Marcus.
McQueen
kynnir McQ
Þessi mynd er af
Söru sætu og birt
sérstaklega fyrir
alla með Sex and
the City fráhvarfs-
einkenni. Hvers á
maður eiginlega
að gjalda!!
ALLTAF
FLOTTUST
Í versluninni Friis & Company er heill
heimur af tískutöskum. Litlum og stór-
um, mjóum og feitum fyrir allar tösku-
sjúkar konur. Kíkið inn í hvert skipti
sem ykkur vantar tösku og ég lofa
því að þið komið allavega með eina út.
Friis & Company er bæði staðsett á
Laugaveginum og í Kringlunni.
Navyblá taska 6.490 kr.
frá Friis og Company
Fyrir töskutrylltar konurHérna koma nokkrar ferskar netsíður þar sem er
hægt að versla fatnað, fylgihluti og snyrtivörur:
www.yoox.com
www.lauritz.com
www.trendsale.dk
www.lisakline.com
www.hphair.com
www.shopbop.com
www.backinstyle.com
www.net-a-porter.com
www.brownsfashion.com
ERTU ORÐIN LEIÐ Á E-BAY?
10
Það er bannað að mæta í sömu skóm í
skólann og á Óliver. Ég mæli með lág-
botna skóm fyrir skólann og daglegt amst-
ur. Skóverslanir eru stútfullar af lágbotna
skóm þessa dagana. Lakk, glimmer og
dýramunstur fyrir glamúrgellur, slaufur og
ballettskór fyrir dúllurnar, leður-
stígvél fyrir rokkara ...
SKÓHORNIÐ
LÁGBOTNASKÓR
Í SKÓLANN