Fréttablaðið - 01.09.2006, Síða 71

Fréttablaðið - 01.09.2006, Síða 71
FÖSTUDAGUR 1. september 2006 39 Vegfarendur á höfuðborgarsvæð- inu hafa rekið augun í óvenjuleg skilti á ferðum sínum um borgina. Skiltin voru sett upp í vetur í tengslum við Vetrarhátíð í Reykja- vík en nú hillir undir brotthvarf þeirra því sýningu Stellu Sigur- geirsdóttur „Hvert förum við nú nema hvergi!“ lýkur næstkomandi mánudag. Skiltin eru kölluð minningarstólpar en þau eru unnin á umferðarskilti sem eru úr sér gengin og búin að þjóna til- gangi sínum. Stella vinnur skiltin með því að pússa þau og berja þau til í upprunalega mynd en þá kvikn- ar nýr boðskapur, myndir og minn- ingar og þau fá nýjan tilgang. Listakonan Stella kveðst hafa fengist við skiltagerðina í þrjú ár. „Skilti eru svo aðgengileg og ég vildi vinna með eitthvað sem allir gætu skilið. Skilti eru alþjóðleg, óháð tungumálum, aldri, kynferði, uppruna - stétt eða stöðu. Við getum öll lesið umferðarskilti og mér fannst líka tilvalið að vera með sýninguna utandyra en loka ekki listina inni,“ segir Stella. Skiltin eru dreifð um borgina en staðsetning þeirra er markviss því myndefnið vísar til einhvers úr umhverfinu. Þannig er til dæmis skiltið „Flugtak“ staðsett við enda flugbrautarinnar í Vatnsmýrinni. Önnur skilti má til dæmis finna á Skólavörðuholti, við Sæbraut, í Ármúla og uppi við Rauðavatn. „Þú ert kannski að keyra í vinn- una eða á leið með börnin í leik- skólann - þá rekur þú augun í eitt- hvað sem stingur aðeins í stúf, en samt ekki svo að það valdi umferðar- slysi,“ útskýrir Stella. „Markmiðið með þessum verkum er að brjóta upp hversdagsleikann, hvetja okkur til þess að skoða umhverfið, borgina, á nýjan hátt og setja hann í nýtt samhengi. Fólk kemur þá kannski sjálfu sér á óvart með nýjum hugmyndum og hugsunum í rútínu dagsins.“ Það kvikna margar hugmyndir í tengslum við skiltin og Stella seg- ist hafa fengið góð viðbrögð við þeim. „Það er ótrúlega gaman að heyra hugmyndir fólks, til dæmis hef ég heyrt að fólk tengi skiltið „Flugtak“ við fæðingardeildina á Landspítalanum og sundlaugina á Hótel Loftleiðum.“ Ekki er ljóst hvort sum skilt- anna fái að standa lengur en víst er vinalegt að hafa þau. „Sum þeirra fá vonandi að vera uppi lengur. Það hefur verið gaman að fylgjast með þeim og hvernig umhverfi þeirra hefur breyst. Sýningin hefur staðið í hálft ár og þannig náum við að narta í árstíðirnar, sýningin byrj- aði í vetur en nú er að koma haust svo það er ekki seinna vænna að drífa sig að kíkja á skiltin til dæmis út í Skildinganes, Tjörnin og út á Geirsnef.“ -khh Minningarstólpar borgarinnar STELLA SIGURGEIRSDÓTTIR MYNDLISTAR- KONA „Skilti eru aðgengileg og óháð aldri, kynferði, uppruna og stétt“ FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM BOLTASTRÁKAR Á KLAMBRATÚNI Skiltin sóma sér vel í borgarumhverfinu. MYND/STELLA SIGURGEIRSDÓTTIR HVAÐ? HVENÆR? HVAR? SEPTEMBER 29 30 31 1 2 3 4 Föstudagur ■ ■ OPNANIR  18.00 Sýning á verkum Steinunnar Marteinsdóttur opnar í Listasafni Reykjanesbæjar. Steinunn sýnir bæði keramikverk og málverk. Tékknesk strengjasveit leikur við opnun auk þess sem boðið verður upp á léttar veitingar. Sýningin er opin alla daga frá kl. 13.00-17.30 og stendur til 15. október.  20.00 Myndlistarsýningin Pakkhús postulanna opnar í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi við Tryggvagötu. Sýningarstjórar eru Huginn Arason og Daníel Björnsson. Ingibjörg Magnadóttir og Kristín Eiríksdóttir flytja gjörn- ing við opnunina með dyggri aðstoð. ■ ■ SÝNINGAR  10.00 Verk mæðgnanna Valgerðar Briem og Valgerðar Bergsdóttur eru til sýnis í Gerðarsafni. Sýningin stendur til 1. október.  13.00 Tumi Magnússon og Aleksandra Signer sýna vídeó og innsetningar í Listasafni ASÍ við Freyjugötu. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. Á næstunni: 08. september: Players, Kópavogi 09. september: Sjallinn, Akureyri Laugardagskvöld: Hlégarður Mosfellsbæ Um helgina: ��������� ��� ásamt saxó fónleikara! Munið tónleika Sálarinnar og Gospelkórs Reykjavíkur í Laugardalshöll 15. september. www.salinhansjonsmins.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.