Fréttablaðið - 01.09.2006, Page 76
1. september 2006 FÖSTUDAGUR
Börnin fá að sjálfsögðu eitthvað
við sitt hæfi um þessa helgi enda
eru foreldrarnir uppteknir við að
komast yfir sem flestar myndir á
IFF-kvikmyndahátíðinni. Teikni-
myndin Antbully eða Maurahrell-
ir verður frumsýnd í Sambíóun-
um nú um helgina en hún segir frá
hinum tíu ára gamla Lúkasi sem á
erfitt uppdráttar. Hann er fluttur
til nýrrar borgar ásamt fjölskyldu
sinni og á í miklum erfiðleikum
með að laga sig að breyttum
aðstæðum og eignast vini. Reynd-
ar virðast skólafélagar Lúkasar
hafa meira gaman af því að níðast
á stráknum en að gera hann að
vini sínum. Lúkas ákveður að
fyrst hann þurfi að þola slíkan
yfirgang skuli einhverjir aðrir fá
að kenna á kröftum hans og fyrir
valinu verða maurar.
Lúkas veit hins vegar ekki að
maurahersingin er ekki jafn vit-
laus og hún er lítil því galdram-
aurinn Zoc hefur bruggað töfras-
eyð sem breytir Lúkasi á
augabragði í dreng í maurastærð.
Stráksi er ekki par ánægður til að
byrja með en verður að sjálfsögðu
að leggja sitt af mörkum ef ekki á
illa fyrir honum að fara og nýtur
aðstoðar hinnar „gullfallegu“
Hova sem þarf að beita öllum
ráðum til að forða honum frá
vandræðum.
Í mauralíki
LÚKAS OG HOVA Hjúkrunarkonan Hova tekur Lúkas upp á sína arma til að forða
honum frá frekari vandræðum.
TÖFRAMAÐURINN ZOC Hefur bruggað
töfraseið sem breytir Lúkasi á auga-
bragði í dreng í maurastærð.
Bjólfskviða, sem kvikmynd-
uð var á Íslandi árið 2004,
var frumsýnd í Háskóla-
bíói í gærkvöld. Leikstjór-
inn Sturla Gunnarsson
ræddi við Fréttablaðið frá
Vancouver, þar sem hann
er staddur við upptökur á
nýrri sjónvarpsþáttaröð.
„Bjólfskviða var tekin upp á 47
dögum á Íslandi haustið 2004, sem
var afar stormasamt og það virð-
ist hafa komið vel út fyrir okkur
því flestir kvikmyndagagnrýn-
endur hér segja íslensku náttúr-
una vera einn aðalkarakterinn í
myndinni,“ segir Sturla Gunnars-
son leikstjóri.
Kvikmyndin var frumsýnd í
gærkvöld í Háskólabíói, en hún
hefur þegar verið sýnd í Kanada
og Bandaríkjunum, sem og í
nokkrum Evrópulöndum. Hún
verður frumsýnd í Bretlandi í
september.
„Mér þykir það afar leitt að
komast ekki sjálfur á frumsýning-
una á Íslandi, en ég er því miður
bundinn yfir vinnu,“ segir Sturla,
en hann hóf tökur á sjónvarps-
þáttaröðinni Intelligence, sem
fjallar um njósnir, í Vancouver í
Kanada í fyrradag.
Hins vegar var aðalleikari
myndarinnar, Gerard Butler, við-
staddur frumsýninguna við mikla
hrifningu yngri kvenna.
„Myndin hefur verið vel sótt
bæði í Kanada og í Bandaríkjun-
um og hún hefur fengið blandaða
en jákvæða gagnrýni. Það hefur
verið svona „cult“ stemning í
kringum hana, sumir koma íklædd-
ir víkingabúningi til að fara í bíó.
Svo hafa heilu rúturnar af stelp-
um komið á margar sýningar í röð,
og þá eru þær að elta Gerry,“ segir
Sturla og hlær. „Þær komu marg-
ar með rútum á sýningar um öll
Bandaríkin og sumar pöntuðu sér
rútu og fóru í svona stelpu-helgar-
ferð til Kanada til að sjá myndina
kannski tvisvar-þrisvar sinnum.
Svo fóru þær með rútunni heim
aftur.“
Myndin hefur eflt ferðamanna-
iðnaðinn á Íslandi, því eftir að
Sturla skrifaði stóra grein um
hana í Globe and Mail, eitt virtasta
dagblað Kanada, hefur hann frétt
af ferðum margra Norður-
Ameríkana til Íslands, þar sem
fólkið leitar uppi staðina sem
sýndir eru í myndinni.
Hann ítrekar hversu leitt
honum þykir að hafa ekki komist.
„Bjólfskviða var erfið og margir
leikaranna og annarra starfs-
manna hafa ekki séð hana enn og
ég hefði gjarnan viljað vera á
staðnum með þeim,“ segir Sturla,
sem er fæddur á Íslandi en flutti
sex ára gamall með foreldrum
sínum til Kanada. Hann var í alls
sex mánuði á Íslandi að vinna að
gerð myndarinnar.
Þess má geta að Bjólfskviða
var með söluhæstu myndum í
Kanada í fjórar vikur, þar sem hún
gekk í 16 vikur eftir frumsýning-
una þar í apríl.
smk@frettabladid.is
Náttúran ein af persónunum
STURLA LEIKSTÝRIR Sturla Gunnarsson leikstjóri, fyrir miðju, sést hér sýna Gerard
Butler, t.v. og Rory McCann tilþrifin við tökurnar á Bjólfskviðu haustið 2004. Myndin
var frumsýnd á Íslandi í gær. B&G PRESS GALLERY
ÞAR SEM ÍSLENDINGUM
FINNST SKEMMTILEGAST AÐ DJAMMA
NÁNARI UPPLÝSINGAR
LAUGARD. 2. SEPT. 2006
PAPAR
DANSLEIKUR
STÓR
PAPAR
MIÐAVERÐ 1000 KR.
HÚSIÐ OPNAR KL. 23
ALDURSTAKMARK 20 ÁRA
������������������ �������
�� ������������������������������������������������
�����������������
���������������������� �����������������
���������������������� ������ ���������������
�������������������
��������
�
�
�
���
��
��
��
���
��
��
��
��
���
�� �������������������
��������������������
�������������������
�������� �����������
�������������� ����
����� ������� �� ����
��� �������� ������