Fréttablaðið - 01.09.2006, Side 79
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
9. hver vinnur!
Sendu SMS skeytið JA ABF á númerið 1900 og þú gætir unnið miða fyrir tvo.Vinningar eru: Bíómiðar fyrir tvo, DVD myndir, varningur tengdurmyndinni og margt fleira!
[ KVIKMYNDIR ]
UMFJÖLLUN
Volver (Endurkoman) er með betri
myndum spænska leikstjórans
Pedro Almodóvar enda njóta öll
helstu höfundareinkenni hans sín til
fullnustu. Myndin er mikið fyrir
augað og þar vegur útpæld og
skemmtileg litanotkun þungt ásamt
kúnstugum sviðssetningum. Þá
spillir ekki fyrir að sagan sem Alm-
odóvar segir er áhugaverð; harm-
ræn og kómísk í senn. Almodóvar
er sterkastur á svellinu þegar hann
fjallar um konur og Volver er sann-
kölluð konumynd og þeir fáu karlar
sem koma við sögu eru mannleysur
eða skítalabbar sem þjóna þeim til-
gangi einum að hrinda atburða-
rásinni af stað með því að kalla
sorg og vandræði yfir konurnar.
Það borgar sig að hafa sem fæst
orð um söguþráðinn sem hverfist
um fjórar konur; systurnar Rai-
mundu og Sole, látna móður þeirra
og Paulu, unglingsdóttur Raimundu.
Þegar eiginmaður Raimundu mis-
notar Paulu kynferðislega grípur
hún til sinna ráða og setur um leið
tilveru sína heldur betur úr skorð-
um. Draugur móður hennar gerir
vart við sig um svipað leyti og
Raimunda þarf því að gera upp for-
tíðina um leið og hún leysir úr
flækjunni sem líf hennar er komið í
en mamma gamla á þó eftir að reyn-
ast dætrum sínum og barnabarni
haukur í horni.
Leikkonurnar fjórar í þessum
burðarhlutverkum eru fantagóðar
en Penélope Cruz ber af og hefur
ekki verið betri síðan hún fluttist til
Hollywood og gekk inn í hvert
froðuhlutverkið á fætur öðru. Hér
sýnir hún allt sem í sér býr og
blómstrar í bitastæðu hlutverki
Raimundu. Þórarinn Þórarinsson
Áhrifarík endurkoma
VOLVER Á ICELAND FILM FESTIVAL
LEIKSTJÓRI: PEDRO ALMODÓVAR
AÐALHLUTVERK: PENÉLOPE CRUZ, CARMEN
MAURA, LOLA DUEÑAS, BLANCA PORTILLO
Niðurstaða: Almodóvar snýr hér aftur í topp-
formi með mynd sem telst tvímælalaust til
hans betri verka. Penélope Cruz sýnir stórleik í
Volver sem er dæmigerð Almodóvar-mynd og
því vitaskuld alveg dásamleg.
Plötusnúðurinn Ewan Pearson
þeytir skífum á „Dansa meira“ -
kvöldi Party Zone og Barsins
næstkomandi laugardagskvöld.
Pearson, sem er búsettur í Berl-
ín, er þekktur endurhljóðblandaði
og hefur meðal annars endurhljóð-
blandað lög fyrir Depeche Mode,
Chemical Brothers, Moby og
Franz Ferdinand. Nýlega gaf hann
út sitt fyrsta lag undir eigin nafni
á safnplötu þar sem Hafdís Huld
syngur.
Stuðið á Barnum byrjar klukk-
an 22.00 og er ókeypis inn. ■
Ewan þeytir
skífum
EWAN PEARSON Ewan þeytir skífum á
Barnum á laugardagskvöld.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Nú fylgir USS!
kortið með öllum
live! símum
USS!
Símatilboð
Fullt verð 16.900 kr.
USS! kortið fylgir með
Samsung X660v
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI