Fréttablaðið - 01.09.2006, Qupperneq 82
50 1. september 2006 FÖSTUDAGUR
FÓTBOLTI Tottenham keypti í gær
franska miðjumanninn Steed
Malbranque frá Fulham. Félagið
borgaði Fulham tvær milljónir
punda fyrir Malbranque og
lánar Wayne Routledge til Ful-
ham í eitt ár.
Malbranque hefur ekki verið
í náðinni hjá Fulham eftir að
hafa lent upp á kant við Chris
Coleman, framkvæmdarstjóra
Fulham, og hafði óskað eftir því
að vera seldur frá félaginu.
Routledge var í láni hjá Ports-
mouth á síðustu leiktíð en hann
hefur ekki náð að festa sig í sessi
hjá Tottenham eftir að liðið
keypti hann frá Crystal Palace
fyrir rúmu ári síðan.
Þá er það einnig ljóst að
Frakkinn Pascal Chimbonda,
sem lék með Wigan á síðustu
leiktíð, hefur gengið til liðs við
Tottenham. - dsd
Martin Jol styrkir lið sitt fyrir komandi átök:
Malbranque til Tottenham
Námskeiðið Súperform á fjórum vikum hjá Goran
Kristófer, íþróttafræðingi, er hannað til að koma þér af
stað á mjög árangursríkan og einfaldan hátt. Tilgangur
námskeiðsins er að koma þér á æðra stig hvað varðar
líkamlega og andlega heilsu.
Ef þú vilt:
Léttast
Styrkjast
Efla ónæmiskerfið
Bæta meltinguna
Hormóna jafnvægið
Andlega vellíðan
Auka minni og einbeitinguna
Auka orkuna
Komast í form
Bæta heilbrigði
Þú kynnist nýjum möguleikum í matarvali, mat sem örvar
fitubrennslu, hvernig þú átt að glíma við matar -og
sykurþörfina, hvernig þú ferð a því að brenna meira
og léttast.
Fimm tímar í viku – Brennsla, styrking og liðleiki
Takmarkaður fjöldi
Vikulegar mælingar
Eigið prógramm í tækjasal
Persónuleg næringarráðgjöf
Ráðgjöf við matarinnkaup
Fræðsla og eftirfylgni – 2 fyrirlestrar
Slökun og herðanudd í pottum að æfingu lokinni
Hollustudrykkur eftir hverja æfingu
Karlar kl. 7:30
Konur kl. 6:30, 10:00, 16:30 og 18:30
Nýtt námskeið hefst 11. september nk.
Skráning er hafin í síma 444 5090 eða
nordicaspa@nordicaspa.is. Námskeið greiðist við
skráningu – athugið síðast komust færri að en vildu.
4. september kl. 19-22 Losum okkur við fi tu- og sykurpúkann!
Ef þú er með auka belti um mjaðmirnar og mjúka fyllingu í mittinu þá eru þetta fi tupúkar.
Við hjálpum þér, með réttu mataræði sem er bæði hollt og bragðgott, að lostnað við þá.
Vertu með í heilsubyltingunni og taktu fyrstu skrefi n með okkur. Verð: 5.900 kr.
10 grunnreglur™ fyrir byrjendur - 2ja daga námskeið 5. og 6. september
Langar þig til að borða hollari og betri mat og fá um leið meiri orku, létta líkamann og lund,
og verða heilbrigðari á allan hátt? Þú hefur kannski fylgst með Heil og sæl á Skjánum og
hefur áhuga á að ná sama árangri og fólkið þar, en veist ekki hvernig á að hefjast handa.
Þá er þetta námskeið einmitt fyrir þig. Á aðeins tveimur kvöldstundum færðu leiðarkort í
réttri næringu og líkaminn verður þér ævinlega þakklátur. Verð: 12.000 kr. fyrir 2 kvöld.
VIÐ MÆLUM
MEÐ
UDO’S CHOICE
FÓTBOLTI Íslenska U-21 landsliðið í
knattspyrnu leikur í dag sinn
annan leik í undankeppni Evrópu-
mótsins. Andstæðingarnir að
þessu sinni eru Ítalir, sem mæta
til leiks með firnasterkt lið. Með
liðinu eru leikmenn sem spila með
nokkrum af stærstu félagsliðum
heims og má þar nefna Giuseppe
Rossi, leikmann Manchester Unit-
ed, og Giorgio Chiellini hjá
Juventus, en hann var orðaður við
Chelsea fyrr í sumar.
„Þetta er bara tilhlökkun,“
sagði Lúkas Kostic, þjálfari
íslenska liðsins. Hann sagðist
búast við erfiðum leik en taldi
íslenska liðið eiga ágæta mögu-
leika gegn Ítölum. „Ég er búinn að
skoða þá vel og ég hef séð ákveð-
inn veikleika hjá þeim sem við
munum reyna að nýta okkur. Þeir
hafa mjög góðan leikstjórnanda
og við verðum að koma í veg fyrir
að hann fái tíma og svo eru þeir
mjög hættulegir í skyndisóknum,“
sagði Lúkas. Hann bætti því við að
þetta lið spilaði hefðbundinn
ítalskan bolta, leikmenn væru þol-
inmóðir og fljótir að refsa and-
stæðingunum ef þeir gerðu sig
seka um mistök.
Ítalska liðið æfði á Laugardals-
velli í gær og þar hitti Fréttablað-
ið Gianfranco Zola, aðstoðarþjálf-
ara ítalska liðsins, að máli. „Við
sáum leik íslenska liðsins gegn
Austurríki. Þetta verður erfiður
leikur því við erum að mæta mjög
skipulögðu liði en ég er bjartsýnn.
Fótbolti er hefur mjög sérstaka
þýðingu fyrir mig og ég er alltaf
bjartsýnn fyrir leiki,“ sagði Zola.
Þetta er fyrsti leikur Ítala í undan-
keppninni og fyrsti leikur liðsins
undir stjórn Pierluigi Casiraghi og
Gianfranco Zola í alvöru keppni,
en eini leikurinn sem þeir hafa
stýrt til þessa var æfingaleikur
gegn Króatíu.
Leikurinn er á Laugardalsvell-
inum, byrjar kl. 19.00 í kvöld og
það er frítt á völlinn.
dagur@frettabladid.is
Firnasterkt lið hjá Ítölum
Íslenska landsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri mætir í dag liði Ítala.
Ítalir mæta með mjög sterkt lið og Gianfranco Zola er bjartsýnn fyrir leikinn.
PIERLUIGI CASIRAGHI OG GIANFRANCO ZOLA Þjálfarar ítalska liðsins leggja hér á ráðin
á æfingu liðsins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
FÓTBOLTI Keflvíkingurinn Hólmar
Örn Rúnarsson er genginn til liðs
við danska úrvalsdeildarliðið Silke-
borg en eins og Fréttablaðið
greindi frá í gær hafa viðræður
staðið yfir í vikunni og tókst félög-
unum að komast að samkomulagi
síðari partinn í gær.
Fyrr í mánuðinum hafði það
verið tilkynnt á heimasíðu Silke-
borgar að Hólmar kæmi ekki fyrr
en 1. janúar, þegar félagaskipta-
glugginn opnaði á ný og Hólmar
væri laus undan samningi sínum.
En Silkeborg, sem hefur ekki geng-
ið vel í upphafi danska tímabilsins,
ákvað að Hólmar væri þess virði
að fá hann strax til félagsins.
„Ég er ánægður með þetta,“
sagði Hólmar við Fréttablaðið í
gær. „Það hefði auðvitað verið
gaman að klára tímabilið með
Keflavík, ná öðru eða þriðja sæt-
inu í deildinni og vinna bikarinn.
En nú fer maður bara í önnur verk-
efni.“
Hann segist kveðja Keflavík
með söknuði enda hafi það verið
hans félag alla tíð. Faðir hans,
Rúnar Arnarsson, er formaður
knattspyrnudeildar Keflavíkur og
hefur því samið við Silkeborg fyrir
hönd félagsins. Hólmar segir að
þrátt fyrir alla óvissuna sem hefur
ríkt lengi hafi hann ávallt verið
rólegur og sambandið við karl
föður hans hafi ekkert breyst. „Við
pabbi erum góðir vinir og þetta
var allt mjög fagmannlega unnið,“
sagði hann í léttum dúr.
Fyrir hjá Silkeborg eru
Keflvíkingurinn Hörður Sveinsson
og Bjarni Ólafur Eiríksson. Hólmar
hlakkar til að hitta þá og liðið allt
en hann fer utan í byrjun næstu
viku. Aðspurður segist hann ekki
viss um hvort hann fari beint í
byrjunarliðið.
„En þeim liggur greinilega
mikið á að fá mig þannig að maður
fær kannski sæti í leikmannahópn-
um,“ sagði Hólmar. - esá
HÓLMAR ÖRN Fagnar hér marki sem hann skoraði fyrir Keflavík gegn Fylki í fyrra-
sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hólmar Örn Rúnarsson fer strax til Danmerkur:
Svekkjandi að missa
af síðustu leikjunum