Fréttablaðið - 01.09.2006, Side 88
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
UPPÚR 1970 ríkti hér kynslóð listamanna sem ég hef kosið
að kalla Kópíeringarkynslóðina.
Þá þótti ungu fólki ekkert athuga-
vert við að heyra Lónlí blú bojs
syngja Beach Boys lögin á
íslensku. Enginn kippti sér upp
við að Halli og Laddi íslenskuðu
Spike Jones. Það vissi enginn hver
Spike Jones var, hvað þá Beach
Boys. Þá var heimurinn svo stór
að enginn kippti sér upp við að
tónlistamenn „kópíeruðu“ erlenda
tónlist og íslenskuðu textana.
Fyrir hlustendum var þetta íslensk
tónlist, enda sungin á íslensku.
Í KJÖLFARIÐ reis Frumlega kyn-
slóðin. Hún gerði uppreisn gegn
Kópíeringarkynslóðinni. Fram
komu tónlistarmenn eins og Bubbi
og Björk, sem sömdu allt sjálf.
Blessunarlega gætir enn áhrifa
þessarar frumlegu kynslóðar, en
hún á í stríði við nýjan óvin.
NÚ ræður nefnilega „Wannabe“-
kynslóðin ríkjum í öllum heimin-
um. Hún er sýnu verri en litla
Kópíeringakynslóðin hér á litla
Íslandi fyrir 30 árum. „Wannabe“-
kynslóðin vill þykjast vera eitt-
hvað annað en hún er. Með sjón-
varpsþáttum eins og Idol, MTV
Becoming og Rock Star: Super-
nova sýnir „Wannabe“-kynslóðin
mátt sinn.
Í SUPERNOVA syngur hinn
íslenski Magni erlend rokklög,
eins og honum er lagið, en samt
alltaf með þeim formerkjum að
hann sé einhver annar. Hann er
ekki bara Magni í Á móti Sól. Hann
er Magni sem þykist þjást. Hann
er Magni sem þykist vera alveg
brjálaður og hann er Magni sem
málar sig í kringum augun. Ef
hann syngur lag með Nirvana er
rétt að hann slagi um sviðið eins
og heróínsjúklingurinn sem söng
það fyrst, því þannig telst Magni
ljá laginu karakter.
Í SUPERNOVA syngur Magni
þykjustulög fyrir þykjustu-
aðdáendur sem í þykjustunni elska
að hlusta á hann syngja. Dóm-
nefndin er skipuð þykjusturokk-
stjörnum, trommaranum í Mötley
Crüe, sem er frægastur fyrir að
hafa verið kærasti Pamelu Ander-
son, gítarleikara sem er frægur
fyrir að vera fyrrverandi kærasti
Carmen Electra og fyrrverandi
bassaleikara Metallica. Þessir
menn þykjast elska Magna.
ÞEGAR Magni verður svo kosinn
út þá kemur hann til Íslands og spil-
ar á böllum með Á móti sól, þar sem
spilaðir verða valdir hápunktar úr
efnisskránni í Rock Star: Super-
nova, öllum til mikillar ánægju.
„Wannabe“-
kynslóðin
�����������������������
����������
ÆVINTÝRABORGIR
Í AUSTURVEGI
Haustlitaferðir til Zagreb
Varsjá
Ljubljana
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
Zagreb 5. október
Verð frá 59.940,-
Ljubljana 12. og 19. október
Verð frá 65.460,-
Varsjá 28. september
Verð frá 60.780,-
SJÁ NÁNAR - www.urvalutsyn.is
AUGL†SINGASÍMI
550 5000
FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA