Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.09.2006, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 07.09.2006, Qupperneq 6
6 7. september 2006 FIMMTUDAGUR SRÍ LANKA Norræna eftirlitssveitin, SLMM, mun ekki bregðast við beiðni Tamílatígra síðan á mánudaginn, en hún var þess efnis að skorið yrði úr um hvort eiginlegt stríð væri hafið á eyjunni og hvort vopnahléssamningurinn væri fallinn úr gildi. Þorfinnur Ómarsson, talsmaður SLMM, sagði í viðtali við Fréttablaðið að það væri ekki í verkahring SLMM að rifta friðarsamningum. „Til að vopnahléið falli úr gildi þarf annað- hvort ríkisstjórn Srí Lanka eða Tamílatígrarnir að senda skriflega yfirlýsingu þess efnis til norsku ríkisstjórnarinnar. Norska ríkisstjórn- in, sem fer með forræði í friðarferlinu, gæti einnig ákveðið að pakka saman og hætta þessu, en það gerum við ekki.“ Eftirlitssveitin mun hins vegar senda frá sér á næstu dögum ályktun um hvort ákvæði vopna- hléssamningsins hafi verið brotin þegar árásin á vatnsveituna var gerð í síðasta mánuði, en hún tengist núverandi átökum við Sampur. Tamílatígrarnir sögðu í gær á fundi við norska sendiherrann að ef þeim yrði ekki skil- að Sampur-svæðinu aftur myndu þeir líta á það sem stríðsyfirlýsingu frá stjórnarhernum. Þorfinnur segir að ef stríð brjótist út og samn- ingnum verði sagt upp með formlegum hætti, njóti SLMM tveggja vikna friðhelgi til að yfir- gefa eyjuna. „En ég sé það ekki í stöðunni, ég held að enginn sé að fara að segja þessum samningi upp, báðir aðilar hafa það mikinn hag af honum,“ sagði Þorfinnur í gær. - kóþ LIÐSMAÐUR SÉRSVEITAR STJÓRNARHERSINS Þessi her- maður fylgist sérstaklega með hjólhestum, en þeir eru vin- sæl flutningatæki fyrir sprengjur og önnur vopn. PHOTOS/AFP Þorfinnur Ómarsson, talsmaður norrænu eftirlitssveitarinnar á Srí Lanka: Eftirlitssveitin lýsir ekki yfir stríði DÓMSMÁL Sextán ára piltur hefur verið úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald. Hann er grunaður um að hafa stungið 25 ára gamlan karlmann í bakið með hnífi í Laugardal aðfaranótt þriðjudags. Honum er einnig gert að sæta geðrannsókn. Lögreglan greindi frá því að fórnarlambið og árásarmaðurinn hefðu verið kunnugir og svo virð- ist sem árásin hafi verið tilefnis- laus. Þeim særða tókst að aka á slysadeild og reyndust meiðsl hans ekki eins alvarleg og fyrst var talið. Pilturinn hefur játað verknaðinn. Gæsluvarðhaldsúr- skurðurinn hefur verið kærður til Hæstaréttar. - kk Sextán ára hnífsstungumaður: Þriggja vikna gæsluvarðhald MATARVERÐ Matarverð lækkar á Íslandi ef Íslendingar gera eins og Svíar, afnema tolla og vörugjöld og lækka virðisaukaskatt. Þetta er mat Thomas Svaton, framkvæm- dastjóra samtaka um verslun og þjónustu í Svíþjóð, sem segir frá þróun matarverðs í Svíþjóð frá árinu 1990 á fundi hjá Samtökum verslunar og þjónustu nú í morg- unsárið. Innganga í Evrópusambandið myndi líka stuðla að lægra mat- vöruverði, að mati Svaton, sem bendir á að íslenskir bændur fengju stuðning frá ESB með sama hætti og sænskir bændur hafa fengið. Hann telur líklegt að inn- koma erlendrar lágvöruverðs- verslunar, á borð við Lidl, hefði örvandi áhrif á samkeppnina. Matvöruverð hefur lækkað verulega í Svíþjóð frá árinu 1990 þegar sænska ríkið ákvað að hætta stuðningi og niðurgreiðslu á land- búnaðarvörum. Árið 1995 gengu Svíar inngöngu í ESB og lækkuðu um leið virðisaukaskatt á mat úr tuttugu og fimm prósentum í tólf prósent. Sænskur matvælaiðnað- ur hafði þá gengið í gegnum mikla hagræðingu og tekist að lækka kostnað sinn. Matarverð lækkaði verulega. Matarverð hélst stöðugt á árun- um 1995-2003 og fór heldur hækk- andi ef eitthvað var. Árið 2003 sótti þýska lágvöruverðskeðjan Lidl um sína fyrstu lóð í Svíþjóð. Matarverð fór lækkandi áður en Lidl opnaði fyrstu verslunina. Lidl hefur í dag tveggja til þriggja pró- senta markaðshlutdeild í Svíþjóð og matvöruverðið fer stöðugt niður á við. „Tilhugsunin ein um að Lidl komi til Íslands hefur áhrif á mat- vælaverðið,“ segir Svaton. „Ef Lidl sækir um lóð í Reykjavík kemur það verðlækkun af stað. Það sáum við í Svíþjóð,“ segir hann og telur Lidl til alls trúandi. Keðjan opni sex hundruð verslan- ir á ári í Evrópu og ekkert ólíklegt sé að þeir sjái tækifæri á Íslandi. Ágúst Einarsson, prófessor við Háskóla Íslands, telur hátt mat- vælaverð „heimatilbúinn“ vanda, lausnirnar séu til, aðeins vanti vilj- ann til að framkvæma. Ágúst telur matarverð lækka með lægri toll- um, vörugjöldum og virðisauka- skatti á matvælum. Einnig geti umbætur í landbúnaði skilað lægra verði. „Mikilvægasta þróunarað- stoðin sem við getum veitt er að létta tollum í alþjóðaviðskiptum,“ segir hann. ghs@frettabladid.is Vöruverð lækkar ef verndartollar hverfa Matarverðið lækkar ekki nema Íslendingar afnemi tolla og vörugjöld og lækki virðisaukaskatt. Innkoma erlendrar lágvöruverðsverslunar á íslenskan markað myndi lækka vöruverðið, að mati framkvæmdastjóra sænska SVÞ. HÁTT MATARVERÐ GETUR LÆKKAÐ Afnám innflutningstolla og stuðnings við land- búnaðinn myndi stuðla að lægra matarverði hér á landi. Þetta er mat Ágústs Einars- sonar prófessors og Thomas Svaton, framkvæmdastjóra í Svíþjóð. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA KJÖRKASSINN Fórstu í lax- eða silungsveiði í sumar? Já 26% Nei 74% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ertu búin(n) að fara í berjamó í sumar? Segðu þína skoðun á visir.is RÁÐSTEFNA Þróun Schengen- samstarfsins og það hvernig Ísland tengist samstarfi innan Evrópusambandsins á sviði réttarfars- og lögreglumála verður í brennidepli á ráðstefnu sem Evrópunefnd forsætisráð- herra og Háskólinn á Bifröst standa fyrir nú í vikulokin. Meðal fyrirlesara verða Erna Solberg, formaður norska Hægriflokksins, og Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumála- ráðherra og formaður Evrópu- nefndarinnar. Meðal spurninga er hvort flötur sé á því að fella samstarf ESB á sviði innanríkis- og dómsmála inn í EES-samning- inn. Ráðstefnan fer fram að Gullhömrum í Grafarholti í Reykjavík á morgun. - aa Ráðstefna um Evrópumál: Schengen-sam- starfið rætt STJÓRNMÁL Gunnar Örlygsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjör- dæmi, hefur ekki ákveðið hvort hann sækist eftir áframhaldandi þingmennsku. „Ég mun taka ákvörðun í október um hvort ég velji pólitíkina eða þau verkefni sem bíða mín í sjávarútvegi á sviði sölu- og markaðsmála,“ sagði Gunnar í samtali við Fréttablaðið í gær. Áður en Gunnar settist á þing stundaði hann ýmis störf á sviði sjávarútvegs, meðal annars sjómennsku, sölu og útflutning. Gunnar var kjörinn á þing fyrir Frjálslynda flokkinn í kosningun- um 2003 en gekk í Sjálfstæðis- flokkinn á vordögum 2005. - bþs Gunnar Örlygsson: Ákveður sig í næsta mánuði GUNNAR ÖRLYGSSON WASHINGTON, AP George W. Bush Bandaríkjaforseti viðurkenndi í gær í fyrsta sinn tilvist leynilegra fangelsa víða um heim, þar sem leyniþjónustan CIA hefur haldið föngum sem grunaðir eru um hryðjuverkastarfsemi. Hann sagði þó ekkert hvar þessi fangelsi væru. Hann nefndi nokkra af föngunum á nafn og sagði að fjórtán fangar myndu verða fluttir til fangelsis Banda- ríkjahers við Guantanamo á Kúbu, þar sem þeir yrðu sóttir til saka. „Það hefur verið nauðsynlegt að flytja þessa menn í umhverfi þar sem hægt er að halda þeim í leynum, gefa sérfræðingum færi á að yfirheyra þá og, þegar svo ber undir, sækja þá til saka fyrir hryðjuverk,“ sagði Bush. Bandarísk stjórnvöld hafa til þessa ekki viljað viðurkenna að þessi leynilegu fangelsi væru til, en þau hafa engu að síður sætt harðri gagnrýni fyrir að starf- rækja þau. Ásakanir hafa gengið um að pyntingar hafi verið stund- aðar í sumum þessara fangelsa. Í gær birti jafnframt banda- ríski herinn nýja handbók um yfirheyrslur fanga, sem verið hefur í smíðum í meira en ár. Þar eru settar strangar reglur um mannúðlega meðferð fanga, og meðal annars er lagt blátt bann við því að hræða fanga með hund- um, hylja höfuð þeirra alveg með hettum og beita svonefndri vatns- brettaaðferð, sem veldur því að fanganum finnist hann vera að drukkna. Allar deildir bandaríska hers- ins þurfa að fara eftir þessum reglum, en leyniþjónustan CIA er þó óbundin af þeim þar sem hún stendur utan hersins. Starfsmenn leyniþjónustunnar hafa að hluta til séð um yfirheyrslur fanga, sem herinn hefur í haldi, meðal annars við Guantanamo á Kúbu og í Abu Graib fangelsinu í Írak. - gb GUANTANAMO Fjórtán fangar bætast brátt í hóp þeirra sem fyrir eru í fangelsi bandaríska hersins við Guantanamo á Kúbu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP George Bush Bandaríkjaforseti viðurkennir tilvist leynifangelsa: Segir leynifangelsi nauðsynleg JERÚSALEM, AP Ríkisstjórn Ísraels mun aflétta í kvöld herkví þeirri sem Líbanon hefur verið í síðan stríðið hófst. Alþjóðlegir gæslu- liðar eiga að taka við hlutverki Ísraela á flugvöllum og við hafnir Líbanons. Tilkynningin var gefin út stuttu eftir að utanríkisráð- herra Líbanons hótaði því að hafnar- og flugbannið yrði brotið innan skamms, ef Ísraelar afléttu því ekki sjálfir. Herkvíin hefur sætt harðri gagnrýni víða um heim, því hún hefur hamlað allri uppbyggingu og hjálparstarfi í landinu. Ísraelar sögðu hana nauðsynlega til að Hizbollah næðu ekki vopnum sínum á ný. - kóþ Árangur alþjóðlegs þrýstings: Herkví aflétt af Líbanon í kvöld BEIRÚT Alþjóðlegir gæsluliðar taka við flugvöllum og höfnum í Líbanon. THOMAS SVATONÁGÚST EINARSSON SJÁVARÚTVEGUR Íslendingar halda á karfaveiðar á alþjóðlega hafsvæðinu í Síldarsmugunni á næstunni. Íslenskur floti hefur aldrei áður veitt markvisst úr karfastofninum og varar Þor- steinn Sigurðsson, hjá Hafrann- sóknastofnun, eindregið við þeim. Hafrannsóknastofnunin benti sérstaklega á það í vor að ástand úthafskarfastofnsins á Reykjanes- hrygg væri með versta móti og sagði að grípa þyrfti til róttækrar veiðistjórnunar. - kdk Karfaveiðar í Síldarsmugunni: Segir veiðarnar stórhættulegar Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra skora á þingmenn og ríkisvald að láta gera hagkvæmniathugun á því að grafa jarðgöng gegnum Tröllaskaga milli Hjaltadals og Eyjafjarðar. Sam- tökin vilja einnig að gerð verði úttekt á að færa vegastæði á Holtavörðu- heiði. SAMGÖNGUR Jarðgöng á Tröllaskaga KJARAMÁL Næstum þrír af hverjum fjórum félagsmönnum VR njóta hlunninda sem hluta af launakjörum sem er nokkur aukning frá árinu 2004. Fleiri karlar fá hlunnindi en konur eða átta af hverjum tíu á móti tæplega sjö af hverjum tíu konum. Sem hlunnindi má nefna styrki í líkamsrækt og fría farsíma en 29 prósent þeirra sem tóku þátt í könnuninni fá fría farsíma frá vinnuveitenda sínum. Fleiri karl- ar eru með fría farsíma eða 48 prósent en aðeins 21 prósent kvenna. - hs Fríðindi færast í aukana: Fleiri karlar njóta fríðinda
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.