Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.09.2006, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 07.09.2006, Qupperneq 22
 7. september 2006 FIMMTUDAGUR22 fréttir og fróðleikur Svona erum við 1965 23 ,1 á rs 26 ,3 á ra 21 ,4 á ra 1985 2005 Tryggingasvik mælast aðeins þrjú til fjögur hér á landi á ári en talið er að þau séu í raun í kringum tvö þúsund. Litið er léttvægum augum á tryggingasvik meðal almennings en öll tjón verða til þess að iðgjöld tryggingataka hækka, þar á meðal tryggingasvikin. Hvaða ástæður eru fyrir tryggingasvikum? Margt heiðarlegt fólk lítur ekki á það að ýkja kröfur sem glæp. Fólki finnst það eiga inni hjá tryggingafélaginu þar sem það hafi borgað iðgjald í mörg ár. Almenningur hefur litla samúð með tryggingafélaginu og lítur á tryggingasvikin sem glæp án fórnarlambs og ofbeldis. Talin er lítil hætta á að komist upp um brotið. Hverjir svíkja úr tryggingunum? Tryggingasvikurum er flokkað í þrjá hópa. Venjulegir tryggingasvikarar eru góðir og gegnir þjóðfélagsþegnar með hreina sakaskrá. Fólkið fellur í freistni og fremur tryggingasvik þegar það hefur orðið fyrir skakkaföllum sem leiða til tímabundinna fjárhagslegra erfiðleika. Kröfurnar eru upplognar og ýktar. Annar hópurinn er þekktir afbrotamenn sem stunda tryggingasvik með öðrum afbrotum. Afbrotin eru líkleg til að tilheyra flokki fjársvika og auðgunarbrota. Í þessum hópi vinnur fólk hlutastörf og aflar sér aukatekna eða jafnvel lífsviðurværis að öllu leyti með afbrotum. Í þriðja lagi er skipulögð tryggingasvikastarfsemi. Þessir afbrotamenn svíkja út hæstu upphæðirnar og eru flestir atvinnuafbrotamenn. Oft tilheyra þeir skipulögðum samtökum eða afkastamiklum hópi manna og geta framið flókin og dýr tryggingasvik sem byggja á sviðsettum atburðum. Eru þessir hópar starfandi hér? Reikna má með að þessir hópar séu allir starf- andi hér á Íslandi en langflestir tilheyra fyrsta hópnum. FBL-GREINING: STAÐA TRYGGINGASVIKA MEÐAL ALMENNINGS: Heiðarlegt fólk ýkir tjónakröfurnar Ríkur áhugi á stjórnmálum og brennandi löngun til að hafa áhrif á samfélagið duga ekki ein og sér til að fólk helli sér í prófkjörs- baráttu. Fjárráðin þurfa að vera rúm og þeir sem ekki eiga peninga eða treysta sér ekki til að biðja um styrki þurfa að vera reiðubúnir að steypa sér í skuldir. Til eru dæmi um stjórnmálamenn sem eru heilt kjörtímabil að greiða niður bankalán sem þeir tóku til að kosta þátttöku í próf- kjöri. Þeir hinir sömu afréðu að standa sjálfir straum af kostnað- inum við prófkjörsbaráttu sína, þeir vildu ekki biðja um styrki hjá fólki og fyrirtækjum. Kostnaður við prófkjör var til umræðu á fundi fulltrúaráðs Sam- fylkingarinnar í Reykjavík í síð- ustu viku. Stjórn fulltrúaráðsins lagði til að frambjóðendur verðu að hámarki einni milljón króna til prófkjörsbaráttunnar en vegna efasemda og andstöðu var ákveð- ið að ræða málið og afgreiða síðar. Sama dag og fundurinn var hald- inn birtist grein eftir Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúa Sam- fylkingarinnar, í Morgunblaðinu þar sem hann upplýsti að próf- kjörsbarátta hans vegna borgar- stjórnarkosninganna í vor hefði kostað á milli fimm og sex millj- ónir króna. Í prófkjörsreglum Samfylkingarinnar var mælst til þess að frambjóðendur stilltu auglýsingakostnaði í hóf. Þótt milljónirnar fimm til sex hafi ekki allar runnið til auglýsinga má efast um að svo mikill kostn- aður hafi verið í anda reglnanna. En sé litið til orðalagsins og hug- mynda stjórnar fulltrúaráðsins um eina milljón nú, má sjá að langur vegur er frá hugmyndum stjórnarinnar til þess sem ein- staka frambjóðendur flokksins hafa varið í baráttu um sæti á framboðslistum. Sjálfboðaliðar til aðstoðar Þó má ekki draga of víðtækar ályktanir af kostnaði Stefáns Jóns. Ásta R. Jóhannesdóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, varði til dæmis mun lægri fjárhæð til próf- kjörsbaráttu vegna þingkosning- anna 2003. „Flest okkar sem sótt- ust eftir efstu sætunum vörðum á aðra milljón króna fyrir síðustu þingkosningar,“ sagði Ásta í sam- tali við Fréttablaðið. Eins og geng- ur hafa sumir kostað meira til en aðrir minna. Þá er rétt að hafa í huga að ekki er greitt fyrir hvert einasta handtak sem unnið er í prófkjörsbaráttu; algengt er að fólk leiti til vina og kunningja um sjálfboðaliðastörf og greiða af ýmsu tagi og getur virði slíkrar aðstoðar hlaupið á dágóðum fjár- hæðum. Það er skoðun Ástu að rétt sé að binda kostnað frambjóðenda við ákveðið hámark. „Ég vil að kostn- aði verði haldið niðri, annars er fólki mismunað eftir aðgangi þess að fjármagni,“ segir hún. Mat hennar er að hægt sé að setja ákveðnar viðmiðunarreglur og hæglega sjáist ef frambjóðendur fara fram úr þeim. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lítur málið öðrum augum og vill að frjálsræðið sé sem mest. Í samtali við Fréttablaðið benti hann á að frambjóðendur hefðu misjafna þörf til að auglýsa, nýliðar þyrftu, eðli málsins samkvæmt, að aug- lýsa meira en þeir sem hafa setið lengi á þingi. Enginn þrýstingur frá fyrirtækjum Sumir hallast að því að rétt sé að meina frambjóðendum í prófkjör- um að sækja sér styrki til fólks eða fyrirtækja enda geti menn ætlast til greiða í staðinn eftir að viðkomandi hefur náð kjöri. Sig- urður Kári segist hafa leitaði til vina og vandamanna og fjársterk- ari aðila þegar hann tók þátt í próf- kjöri fyrir tæpum fjórum árum en hafnar alfarið kenningum um að lýðræðinu stafi hætta af slíku fyr- irkomulagi. „Ég hef aldrei fundið fyrir neinum þrýstingi frá þeim sem hafa stutt mig og ef eitthvað slíkt væri inni í myndinni myndi ég einfaldlega afþakka stuðning- inn,“ segir Sigurður. Líkt og áður sagði eru dæmi um að það taki stjórnmálamann heilt kjörtímabil - fjögur ár - að greiða af lánum vegna þátttöku í próf- kjöri. Augljóst er að slík staða hugnast ekki öllum eða þá að fólk treysti sér hreinlega ekki til að steypa sér í skuldir vegna stjórn- málastarfa. Einar Mar Þórðarson, stjórnmálafræðingur við Félags- vísindastofnun Háskóla Íslands, segir engan vafa leika á að kostn- aður aftri fólki frá þátttöku í próf- kjörum - og þar með stjórnmálum. ¿Það á ekki síður við um konur og kostnaðurinn vegna prófkjörs- þátttöku er án efa ein af skýring- um þess að konur sækja síður í stjórnmál en karlar,“ segir Einar Mar. Af þessu eina atriði má sjá að prófkjör geta verið þröskuldur á leið fólks til áhrifa í samfélaginu. Það er svo allt önnur saga með hvaða hugarfari greitt er af lánum vegna stjórnmálaþátttöku. Þeir sem ná markmiðum sínum borga vísast með glöðu geði en afborg- anirnar hljóta að vera þeim þung- ar sem ekki ná kjöri. Getur tekið heilt kjörtímabil að greiða niður lán vegna prófkjörs MERKT Í RÉTTA REITI Skiptar skoðanir eru um hvort hámarka eigi kostnað þátttakenda í prófkjörum stjórnmálaflokkanna. Ásta R. Jóhannesdóttir í Samfylkingunni vill setja þak í prófkjöri flokks síns en Sigurður Kári Kristjánsson Sjálfstæðisflokki vill að frjáls- ræðið sé sem mest í sínum flokki. ALGENGIR ÚTGJALDALIÐIR VEGNA PRÓFKJÖRS — Húsaleiga vegna kosningaskrif- stofu — Rekstur kosningaskrifstofu — Starfsmaður/starfsmenn — Hönnun og birting auglýsinga — Hönnun, prentun og dreifing bæklinga — Símakostnaður — Gerð heimasíðu — Tölvukostnaður — Myndatökur — Ráðgjöf — Fundir — Móttökur LEIKUR AÐ TÖLUM Afborganir af hefðbundnu skulda- bréfaláni upp á eina milljón króna til fjögurra eru á milli 20 og 25 þúsund krónur á mánuði. Afborganir af slíku láni upp á fimm milljónir króna eru um 130 þúsund krónur á mánuði. Þingmenn fá um 300 þúsund krónur útborgaðar um hver mánaðamót. EINAR MAR ÞÓRÐARSON stjórnmálafræð- ingur ÁSTA R. JÓHANNES- DÓTTIR alþingis- maður > Meðalaldur mæðra við fæðingu frumburðar Reynum að ráða þrosk- að fólk Sumar verslanir hafa átt í erfiðleik- um með að fá starfsfólk til starfa í haust. Guðríður Baldursdóttir, starfsmannastjóri Kaupáss, segir að árstíminn sé almennt erfiður hvað ráðningar varðar, fólk komi börnunum í gang í skólanum áður en það fari að líta eftir starfi. Er þessi árstími erfiðari nú en áður? Já, að einhverju leyti. Álagið er að aukast hjá krökkum í skólanum. Það er gert ráð fyrir að viðvera unglinga og ungs fólks sé meiri en áður og þá hafa þau minna svigrúm til að vera í vinnu með skóla. Hvernig hefur ykkur gengið að fá fólk? Okkur hefur gengið vel. Í Nóatúni eru fleiri sem vilja komast að en pláss er fyrir. Það er helst eftir að manna almenna dagvinnu. Við vonum að fólk fari að líta í kringum sig þegar skól- arnir eru komnir í gang og fólk sér hvaða svigrúm það hefur gagnvart börnum. Á hvaða aldri er fólk í vinnu hjá ykkur? Á sumrin er starfs- fólkið aðeins yngra en á veturna. Algengt er að 17-19 ára krakkar ráði sig í sérstök störf yfir sum- arið og komi svo aftur til okkar á haustin í kvöld- og helgarvinnu. Við reynum að ráða eins þroskað fólk og við mögulega getum en í sumar höfum við gert undantekn- ingar niður í 14-15 ára. Hvaða reglur gilda um vinnu krakkanna? Aðrar gilda um vinnu barna og unglinga á sumrin eða veturna. Krakkarnir mega vinna tvær stundir á dag á veturna með skóla en meira á sumrin þegar þeir eru í fríi. SPURT OG SVARAÐ VINNA UNGLINGA MEÐ SKÓLA GUÐRÍÐUR H. BALDURSDÓTTIR, STARFSMANNASTJÓRI KAUPÁSS FRÉTTASKÝRING BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON bjorn@frettabladid.is Allt um allt sem skiptir máli í Reykjavík Heimild: Hagstofa Íslands SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON alþingismaður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.