Fréttablaðið - 07.09.2006, Qupperneq 26
7. september 2006 FIMMTUDAGUR26
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 6.073 –0,13% Fjöldi viðskipta: 196
Velta: 2.171 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
ACTAVIS 64,50 +0,00% ... Alfesca 4,68 +0,00% ... Atlantic Petrol-
eum 568,00 -2,41% ... Atorka 6,25 +0,00% ... Avion 33,40 +0,30%
... Bakkavör 54,10 -0,19% ... Dagsbrún 4,97 -1,00% ... FL Group
18,70 -0,53% ... Glitnir 19,90 -0,50% ... KB banki 836,00 +0,00%
... Landsbankinn 25,50 +0,39% ... Marel 76,00 -0,65% ... Mosaic
Fashions 17,60 +0,57% ... Straumur-Burðarás 16,70 -0,60% ...
Össur 123,00 -1,21%
MESTA HÆKKUN
Icelandic Group +2,69%
Mosaic +0,57%
Landsbankinn +0,39%
MESTA LÆKKUN
Atlantic Petroleum -2,41%
Vinnslustöðin -2,33%
Flaga -1,97%
Ísraelska fyrirtækið Amiad Filt-
ration Systems, sem framleiðir og
dreifir vatnshreinsibúnaði, skilaði
um 150 milljóna króna hagnaði á
fyrra hluta árs og batnaði afkom-
an um fimm prósent á milli ára.
Atorka er meðal stærstu hlut-
hafa í Amiad en tólf prósenta hlut-
ur íslenska félagsins er metinn á
rúman hálfan milljarð króna. - eþa
Amiad hagnast
Stjórn Vistor hf. hefur samþykkt
að skipta félaginu upp í tvö aðskil-
in félög. Er það sagt gert til að
auka sóknarfæri og skerpa áhersl-
ur í starfseminni.
Nýtt dreifingarfyrirtæki að
nafni Distica hf. sinnir vörustjórn-
un og dreifingu fyrir Vistor og
aðra innan lyfja- og heilbrigðis-
geirans. „Vistor hf. mun einbeita
sér að markaðsstarfi fyrir umbjóð-
endur fyrirtækisins,“ segir í til-
kynningu, meðan Distica tekur við
dreifingarstarfsemi Actavis á
Íslandi frá og með áramótum.
Rekstur félaganna, sem bæði eru í
eigu eignarhaldsfélagsins Veritas
Capital hf., verður aðskilinn og
lúta þau sinni stjórninni hvort.
Gylfi Rútsson hefur verið ráðinn
forstjóri Distica. Forstjóri Vistor
er Hreggviður Jónsson. - óká
Vistor skipt í
aðskilin félög
Norska fjármálaráðuneytið hefur
sett á fót sérstakt eignastýringa-
svið sem ber ábyrgð á fjárfesting-
arstefnu norska ríkislífeyrissjóðs-
ins og framkvæmd hennar. Nýja
deildin hefur einnig umsjón með
því að framfylgja og endurskoða
siðareglur sjóðsins.
Lífeyrissjóðurinn skiptist í
tvær deildir; innlendar fjárfest-
ingar og erlendar fjárfestingar en
undir þær fellur gamli Olíusjóður-
inn. „Það er markmið ráðuneytis-
ins að norski ríkislífeyrissjóður-
inn verði best rekni sjóður í
heimi,“ segir í tilkynningu frá
ráðuneytinu.
Norski seðlabankinn greindi frá
því að hann myndi kaupa daglega
um níu milljarða króna í gjaldeyri
sem varið verður til fjárfestinga í
erlendum verðbréfum. - eþa
Styrkja norska
lífeyrissjóðinn
Data Íslandia var fulltrúi
Íslands á nýafstaðinni
stórráðsstefnu um upplýs-
ingatækni og gagnavistun í
Þýskalandi. Framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, sem er
í sameiginlegri eigu Símans
og Skýrr og vinnur með
Farice, vill nýjan sæstreng
til Írlands, ekki Skotlands.
Data Íslandia kynnti samkeppnis-
hæfni íslenskrar upplýsingatækni
á alþjóðlegum markaði á stærstu
ráðstefnu um upplýsingatækni og
gagnahýsingu á Storage Network
World - Europe 2006, í Frankfurt í
Þýskalandi sem lauk í gær. For-
svarsmenn fyrirtækisins segja að
vel hafi gengið, náðst hafi sam-
band við fjölda fyrirtækja og
næstu vikur fari í að vinna úr
gögnum.
Ráðstefnuna í Frankfurt sóttu
helstu ráðamenn lítilla og stórra
fyrirtækja og samtaka, bæði í opin-
bera geiranum og einkageiranum,
með það fyrir augum að afla sér
upplýsinga um það nýjasta og
besta í upplýsingatækni, hugbún-
aði og þjónustu, svo og öðrum
vörum tengdum vistun á rafræn-
um gögnum og stjórnun og rekstri
þeirra.
Data Íslandia var boðið að kynna
íslenska upplýsingatækni og sam-
keppnishæfni í aðalframsögu á
ráðstefnunni. Sol Squire, fram-
kvæmdastjóri Data Íslandia, segir
landið hafa verið kynnt sem ákjós-
anlegasta staðinn fyrir langtíma-
vistun á rafrænum gögnum í allri
Evrópu. „Hér er tæknigeta mikil
og hátt menntunarstig, efnahagur-
inn er stöðugur og umhverfið frið-
sælt. Hér getum við komið hlutum
í verk mun hraðar en
hægt er í öðrum
löndum, auk þess
sem landfræðileg
staðsetning og þjóð-
félagsgerð gerir
okkur að nokkurs konar stuðpúða
milli ólíkra viðskiptaheima.“
Við kynningu á landinu var einn-
ig mikil áhersla lögð á Farice
sæstrenginn og bendir Sol Squire á
að þeir hnökrar sem þar hafi orðið á
tengingum hafi allir verið í landi í
Skotlandi. „Rekstur strengsins hefur
verið áreiðanlegur og í raun aldrei
brugðist frá því að hann var tengd-
ur,“ segir hann og kveðst stefna á
viðskipti við stærstu fjölþjóðafyrir-
tæki í Evrópu og að hýsa fyrir þau
gríðarlegt magn af rafrænum gögn-
um. Hann segir þó einnig horft til
þess að á næstunni verði lagður nýr
sæstrengur og það muni gulltryggja
stöðu landsins sem vænlegrar mið-
stöðvar gagnahýsingar. „Best væri
að leggja nýjan streng beint til
Írlands í tengipunkta sem ná svo yfir
Atlantshafið. Eða tryggari tengingu
beint til Manchester eða Liverpool. Í
þessum efnum þarf að horfa til fram-
tíðar, en möguleikarnir eru ótrúlegir.
Það sagði mér framleiðandi eins
mest notaða vistunarbúnaðar í heimi
að hér hefðum við möguleika á að
búa til „gagnamiðstöð guðanna.“ Það
hljómar vel enda fengi ég þar með
hlutverk Þórs,“ segir hann og hlær.
Data Íslandia hefur notið fulls
stuðnings Fjárfestingarstofu Íslands
enda fara saman áherslur í kynning-
arstarfi. „Því er þetta kjörið tæki-
færi til að kynna íslenska upplýs-
ingatækni og þekkingariðnað og
Ísland sem raunhæfan fjárfestinga-
kost fyrir erlenda
aðila,“ segir Þórður
H. Hilmarsson, fram-
kvæmdastjóri Fjár-
festingarstofunnar.
Data Íslandia er
samstarfsvettvangur Símans og
Skýrr. Sol Squire segir þar engan
skugga hafa borið á þrátt fyrir
nýlegar breytingar í eignarhaldi
Skýrr. „Alls ekki, enda sýnir sig
þar að hagnaðarvæntingar vega
þyngra en einhverjar fyrirtækja-
væringar. Svo er fyrirtækjalands-
lagið líka svo síkvikt að fólk setur
slíkt ekki fyrir sig. Við vinnum
bara áfram að okkar góðu
málum.“ olikr@frettabladid.is
SOL SQUIRE Framkvæmdastjóri Data
Íslandia segir reynslu sína að ljósleiðarar
í Skotlandi laði að sér bæði skóflu og
rottur og því vænlegra að leggja nýjan
streng annað.
Mögulegur stuðpúði
ólíkra viðskiptaheima
Christer Gardell, sænsk-
ur kaupahéðinn sem
myndaði bandalag með
Burðarási í Skandia,
hefur eignast fimm pró-
senta hlut í Volvo og er
þar með orðinn annar
stærsti hluthafinn á
eftir Renault.
Í frétt Financial Times
(FT) segir Gardell að
með kaupunum vilji hann þrýsta á
stjórn að ganga á sjóði félagsins.
Hann vill að félagið greiði út tæpa
190 milljarða króna í arð eða kaupi
eigin hlutabréf á markaði og legg-
ur auk þess til að hlutar af starf-
semi Volvo verði seldir. Samkvæmt
heimildum FT er um að ræða flug-
þróunardeild og fjárfestingaarm
félagsins.
Félagið er undirverðlagt að mati
Gardells: „Það er verðlagt á 53 pró-
sent af veltu og endurspeglar ekki
viðvarandi arðsemi félagsins. Við
teljum að hlutfallið ætti að vera
eitt hundrað prósent.“
Gardell lofar verk
Leifs Johansson, for-
stjóra Volvo, en telur
að íhaldssamir stjórn-
armenn haldi forstjór-
anum niðri. Sjálfur
hefur Gardell óskað
eftir því að sitja stjórn-
arfundi sem áheyrnar-
fulltrúi og hyggst taka
sæti í stjórn á næsta aðalfundi.
Stjórn félagsins hefur álitið
mikilvægt að geta gripið í hand-
bært fé til að ráðast í yfirtöku á
öðrum fyrirtækjum.
Hlutur Renault er um 21 pró-
sent og er talið að hluturinn sé
falur fyrir rétt verð. Kemur því til
greina að Volvo kaupi hlutinn.
Hlutabréf í Volvo hækkuðu um
tvö prósent í gær og endaði hlutur-
inn í genginu 428. Kaupþing í Sví-
þjóð mælir nú með kaupum í Volvo
og metur bréfin á 446 sænskar
krónur á hlut. - eþa
Volvo er annar stærsti
framleiðandi vörubíla í
heiminum.
Gardell vill komast
í digra sjóði Volvo
Gamall bandamaður Burðaráss næststærstur í Volvo.
MARKAÐSPUNKTAR
Evrópusambandið hefur hækkað
hagvaxtarspá sína fyrir aðildarríki sam-
bandsins. Reiknað er með 2,7 prósenta
hagvexti innan ESB á árinu og 2,5
prósenta hagvexti á evrusvæðinu. Gangi
spáin eftir verður methagvöxtur.
Verð á Brent norðursjávarolíu hefur farið
lækkandi að undanförnu. Í gær fór fatið
undir 67 bandaríkjadali og virðist þrýst-
ingur til skamms tíma vera til lækkunar.
Samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins er töluverð hætta á að á
árinu 2007 hægi verulega á hagvexti
í heiminum en hagvöxtur hefur verið
mikill undanfarin ár.
Grædd eru geymd hlutabréf
Fjármálaþjónustufyrirtækið Exista, sem fer á
markað í næstu viku, er í eigu 38 hluthafa. Bakka-
bræður, þeir Ágúst og Lýður Guðmundssynir, fara
með 47 prósenta hlut sem metinn er á yfir eitt
hundruð milljarða króna. Aðrir hluthafar eru meðal
annars KB banki, sparisjóðir og lífeyrissjóðir auk
starfsmanna. Þá bregður fyrir litlum fjárfestum sem
voru eitt sinn hluthafar í Vátryggingafélagi Íslands
en gengu ekki að yfirtökutilboði sem
lagt var fram í VÍS í árslok 2004. Þegar
Exista keypti VÍS í maí fengu hluthafar
síðarnefnda félagsins hlutabréf í
Exista í staðinn. Það er fulljóst
að þessir sömu fjárfestar tóku
rétta ákvörðun að eiga bréf
sín áfram í VÍS - jafnvel þótt
félagið hafi verið tekið af
markaði, enda jókst verðmæti
VÍS um 150 prósent á einu og
hálfu ári.
Vista virðist á næstu grösum
Microsoft hefur gefið út síðustu vinnuútgáfu af nýj-
asta stýrikerfi sínu, Windows Vista, Release Candi-
date 1. Útgáfan er talin vísbending um að fyrirtæk-
inu takist að halda útgáfuáætlun sinni, en endanleg
útgáfa á að vera tilbúin í janúar næstkomandi. Með
þessu er stýrikerfið komið af svonefndu betapróf-
anastigi og einungis eftir minni háttar lagfæringar
og stillingar. Útgáfu Vista hefur hins vegar nokkrum
sinnum verið frestað og spurning hversu mikið er
óhætt að lesa í þessa þróun mála. Computerworld
í Danmörku rifjar hins vegar upp að þegar
Microsoft gaf út Wind-
ows XP, nýjustu útgáfu
stýrikerfisins, hafi liðið
um það bil tveir
mánuðir frá RC1
útgáfunni þar
til stýrikerfið
var afhent tölvu-
framleiðendum.
Peningaskápurinn...
Dótturfélag Baugs, Woodward
Foodservice, tilkynnti í gær um
kaup á samkeppnisaðilanum DBC
Foodservice. Woodward sér veit-
inga- og öldurhúsum, hótelum og
skólum í Bretlandi fyrir matvöru
af ýmissi gerð. Áætluð velta sam-
einaðs félags er 500 milljónir punda
á ári, sem nemur um 65,5 milljörð-
um íslenskra króna. Úr verður
þriðji stærsti birgðasali í veitinga-
þjónustu af þessu tagi í Bretlandi.
Baugur er orðinn mikilvægur
leikmaður á breskum smásölu-
markaði og vangaveltur um frek-
ari fyrirætlanir félagsins þar eru
oft líflegar. Í gær fullyrti Financial
Times að félagið hefði í hyggju að
taka yfir bresku verslanakeðjuna
Woolworths og fækka verslunum
hennar verulega. Baugur á um tíu
prósenta hlut í keðjunni og er
meðal stærstu hluthafa. Talsmenn
Baugs vilja ekki tjá sig um málið
og segja það ekki annað en vanga-
veltur.
Vitað er að margir hluthafar
Woolworths telja fýsilegan kost að
skipta upp félaginu og þykir líklegt
að Baugur deili þeirri skoðun. - hhs
Dótturfélag Baugs
eykur umfang sitt
Baugur einnig orðaður við áhuga á Woolworths.