Fréttablaðið - 07.09.2006, Side 39
7. september 2006 FIMMTUDAGUR9
Tíu krónur fyrir hverja einingu.
Frá og með 1. september hækkaði
skilagjald fyrir dósir, plast- og
glerflöskur úr 9 krónum í 10 krón-
ur fyrir hverja einingu. Hlutfalls-
lega kemur um 80-85% af slíkum
umbúðum til endurvinnslu, sem er
mikið hærra hlutfall en af öðrum
flokkum endurvinnanlegs
úrgangs, og má eflaust þakka það
skilagjaldinu.
Forsenda þess að hægt sé að
endurvinna skilagjaldsskyldar
umbúðir er að þeim sé skilað vel
flokkuðum. Mikil áhersla er lögð á
að flokka vel eftir umbúðategund
(dósir, plastflöskur og glerflösk-
ur) og að framvísa nákvæmri taln-
ingu á hverri umbúðategund fyir
sig þegar þeim er skilað á endur-
vinnslustöð.
Almenna reglan er að umbúðir,
fyrir utan þær umbúðir sem inni-
halda vín, þurfa að hafa innihaldið
vatn með eða án kolsýru, eða
vatnsblönduð efni til drykkjar, til
að vera skilagjaldsskyldar. Um er
að ræða tilbúna drykkjarvöru sem
hægt er að drekka beint úr við-
komandi umbúð.
Ekki er skilagjald á umbúðum
undir ávaxtaþykkni. mjólkur-
drykkjum, matarolíu, tómatsósu
eða þvottalög. Þessum umbúðum
er ekki hægt að skila til endur-
vinnslu.
Endurvinnslan hf. tekur við
þeim umbúðum sem berast til
Sorpu og baggar áldósir og plast-
umbúðir í pressum. Umbúðirnar
eru svo fluttar erlendis til endur-
vinnslu. Framleiðsla úr endurunn-
um áldósum eru nýjar áldósir og
úr gömlu plastflöskunum er fram-
leidd polyester ull sem nýtist í
fataiðnaði, teppaframleiðslu og
fleira. Flísföt eru þekktasta afurð-
in. Glerflöskur eru muldar og nýt-
ast sem jarðvegsfyllingarefni hér-
lendis.
Eftirtaldar umbúðir skilgreinast sem
skilagjaldsskyldar umbúðir:
— Ál- og stáldósir fyrir gosdrykki og bjór
33 cl og 50 cl.
— Plastflöskur fyrir gosdrykki 50 cl - 2
lítra.
— Dósir, plast- og glerflöskur fyrir
orkudrykki.
— Dósir, plast- og glerflöskur fyrir tilbúna
ávaxtasafa.
— Glerflöskur fyrir gosdrykki frá Vífilfelli
(allar einnota núna).
— Glerflöskur fyrir öl (bjór)
— Glerflöskur fyrir áfengi, bæði léttvín og
sterk vín.
(www.sorpa.is)
Skilagjald
hækkar
Skilagjald fyrir drykkjarumbúðir hefur
hækkað um eina krónu.
NORDICPHOTOS/ GETTY IMAGES
Hinn sígildi Savoy-vasi eftir
Alvar Aalto er sjötugur á þessu
ári. Af því tilefni er sýning á
honum og fleiri verkum meist-
arans í Art Formi á Skóla-
vörðustíg 20.
„Ég hreinlega tími ekki að taka
þessa hluti úr gluggunum hjá mér
svo ég veit ekki hvenær sýning-
unni lýkur,“ segir Hlöðver Sig-
urðsson, verslunareigandi í Art-
Form, og bendir á Savoy-vasann
og fleiri fagra muni í búðarglugg-
anum. Einn þeirra heitir Blómið
og er gerður úr fjórum hlutum.
„Alvar Aalto hannaði fyrir fyrir-
tækið Iittala í Finnlandi á sínum
tíma ákveðna línu, ekki bara þenn-
an eina vasa sem þekktastur er,
heldur líka margt annað,“ tekur
Hlöðver fram og beinir athyglinni
að borði inni í búðinni þar sem all-
margir vasar standa, fjölbreyttir
að lit og lögun. „Þetta eru allir þeir
vasar sem Iittala er með í fram-
leiðslu í dag,“ segir hann og bætir
við að fyrirtækið fagni 125 ára
afmæli á þessu ári. Hann segir þó
aðalástæðu sýningarinnar vera þá
að sjötíu ár séu liðin frá því að
Savoy-vasinn kom á markað. „Það
eru ekki allir hlutir sem endast
svo lengi og eru alltaf jafn ungleg-
ir og flottir,“ segir Hlöðver og
undir það er sannarlega hægt að
taka.
Alltaf jafn unglegur og flottur
Stóri Savoy-vasinn hefur aldrei komið til
landsins áður. Hann er 60 cm hár og er
falur fyrir 213 þúsund kr. ef áhugi er fyrir
hendi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Allir þeir vasar sem Iittala er með í framleiðslu í dag.
Lille Collection