Fréttablaðið - 07.09.2006, Blaðsíða 48
■■■■ { austurland } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■6
Busunin hófst á fimmtudeginum
þegar því var beint til nýnema að
mæta í óhefðbundnum klæðnaði
í skólann, strákar mættu margir í
kvennmannsfötum og öfugt. Að
auki var nýnemunum meinað að
nota stigana í húsinu og þurftu
í staðinn að hlaupa hringinn í
kringum húsið til þess að komast
á milli hæða.
Á föstudag fór aðaldagskráin
fram þar sem meðal annars var
farið með nýnemana í ýmsa leiki,
þeir látnir skríða í gegnum drullu-
braut og drekka mysu sem margir
skiluðu fljótlega upp úr sér aftur.
Lilja Kristín Jónsdóttirm, for-
maður Nemendafélags Mennta-
skólans á Egilsstöðum, segir bus-
unina hafa gengið vel fyrir sig og
yngri jafnt sem eldri nemendur
hafi skemmt sér saman þessa daga.
„Þau voru öll ánægð með þetta
og sumir kvörtuðu meira að segja
undan því hversu léttvægt þetta
var í ár, sem er kannski alveg rétt
hjá þeim.“ - vör
Nýnemar boðnir
velkomnir
Nýnemar í Menntaskólanum á Egilsstöðum voru boðnir
velkomnir af eldri nemendum skólans með hefðbundnum
hætti fyrir síðustu helgi.
Nýnemarnir fengu hlýlegar móttökur frá eldri nemendum skólans. MYNDIR/ESTHER GUNNARSDÓTTIR
Ánægjan skein úr augum nýnemanna.
Þessi ungi maður þurfti að láta gera sér það að góðu að borða gras í tilefni dagsins.Fæstir voru hrifnir af því sem á boðstólum var.
Leyndarmálið
í Hlíðinni
Það glittir aðeins í haustlitina
umhverfis Hótel Svartaskóg í
Jökulsárhlíð.
Þrátt fyrir að Hótel Svarta-
skógur hafi verið starfrækt í
tíu ár telst það enn eitt best
geymda leyndarmál Austur-
lands. Þannig á það líka að
vera því það finnst gestum
skemmtilegast, að sögn Bene-
dikts Hrafnkelssonar sem stýrir
hótelinu ásamt Helgu Jónsdótt-
ur, konu sinni. Ekki er hótelið
þó svo vel falið að enginn finni
það enda gengi reksturinn þá
ekki upp. Hrafnkell segir mikið
annríki hafa sett svip sinn á
sumarið eins og undanfarin ár
og þá séu þau hjón á vakt frá
því snemma á morgnana og
langt fram á kvöld, jafnt helga
daga sem aðra. Nú horfa þau
hins vegar fram á rólegri tíma
þótt veiðimenn og ýmsir aðrir
ferðalangar þurfi húsaskjól
næstu vikurnar. Hótelið getur
tekið mest 50 manns í gist-
ingu í einu, bæði innan dyra
og í litlum húsum í skóginum.
Þar er opið daglega út þennan
mánuð en svo eftir samkomu-
lagi fyrir hópa.
Helga og Benedikt, hótelhaldarar í
Svartaskógi, taka vel á móti gestum.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN