Fréttablaðið - 07.09.2006, Side 49

Fréttablaðið - 07.09.2006, Side 49
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { heiti sérblaðs } ■■■■ 7 Eftirspurn eftir fasteignum á Aust- urlandi er góð og samkvæmt upp- lýsingum frá Fasteigna- og skipa- sölu Austurlands hefur hún haldist stöðug undanfarna 12-14 mánuði. „Það er mikið byggt í landshlutan- um og því erum við með margar nýbyggingar á skrá hjá okkur, þá helst á Egilsstöðum og Reyðarfirði en líka á Eskifirði og Fáskrúðsfirði,“ sagði starfsmaður fyrirtækisins í samtali við Fréttablaðið. Að hennar sögn eru margar eignir mjög eftirsóttar og slegist sé um sum hús. „Það er bæði fólk héðan frá landshlutanum og fólk af höfuðborgarsvæðinu sem er að sýna fasteignum hér áhuga.“ Að sögn fasteignasölunnar Domus er mikið líf á markaðnum um þessar mundir. „Auk þess sem heilu hverfin rísa um þessar mund- ir á Egilsstöðum og á fjörðunum eru frístundahús og frístundalóðir einnig mjög vinsæl.“ Næg eftirspurn Mikil uppbygging á sér stað á Austurlandi. Steinasafnið verðlaunað Hvatningarverðlaun Þróunar- félags Austurlands voru veitt í áttunda sinn hinn 29. júní síðastliðinn. Tilgangur verð- launanna er að heiðra þann aðila sem að mati dómnefndar félagsins er best að slíkri við- urkenningu kominn, fyrir vel unnin störf í þágu fyrirtækja eða stofnana á Austurlandi og/eða hafi verið öðrum í atvinnulífi á Austurlandi sér- stök hvatning eða fyrirmynd. Það var steinasafn Petru á Stöðvarfirði sem hlaut hvatn- ingarverðlaunin að þessu sinni fyrir metnaðarfullt safnastarf og framlag til ferðaþjónustu á Austurlandi. Verðlaunagripur- inn kom að venju úr höndum handverksfólks á Austurlandi og var að þessu sinni áletraður líparítslampi frá fyrirtækinu Álfasteini á Borgarfirði eystri. Petra segist vera búin að safna steinum alla tíð. „Já, í svona sjötíu ár. Allir krakk- ar hafa gaman af steinum. Alls staðar þar sem maður sér krakka eru þeir að tína steina. Ég átti bakka sem ég safnaði þeim í,“ segir Petra um upphaf safnsins. Í safninu gefur að líta fjöld- ann allan af fallegum steinum en sá sem er í mestu uppáhaldi hjá Petru sjálfri á sér eilitla sögu. „Það er holufylling, bergkristall með agat utan um, sem ég fann uppi í fjalli við Stöðvarfjörð. Það er orðið nokkuð langt síðan, fjörutíu eða fimmtíu ár. Þetta var svo skemmtilegur dagur, góður og fallegur, og ég var með all- nokkra krakka með mér. Við fundum tófugreni uppi í fjalli og þá var nú heldur betur líf,“ segir Petra en bætir við að grenið hafi sem betur fer verið tómt, enda stórhuga veiði- menn á ferð með henni, þótt ungir væru. Petra segist hætt að safna steinum en steinaríkið hennar er með vinsælli áningarstöð- um á Austurlandi. Talið er að um 20.000 ferðamenn heim- sæki safnið á hverju ári. - elí Frá verðlaunaafhendingunni. Frá vinstri eru Stefán Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Þróunarstofnunarinnar, Elísa María Sverrisdóttir sem er dóttir Petru, Petra sjálf og Ásbjörn Guðjóns- son, formaður stofnunarinnar. LJÓSMYND/GUNNAR GUNNARSSON Örugg fasteignaviðskipti hvar sem er Domus Egilsstaðir, Akureyri, Reykjavík. Domus fasteignasala Lyngási 5 - 7 , 700 Egilsstaðir Sími 545 0555 Steinasafnið er vinsæll áningarstaður enda gríðarlega fallegt. FRÉTTABLAÐIÐ/SVAVAR HÁVARÐSSON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.