Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.09.2006, Qupperneq 67

Fréttablaðið - 07.09.2006, Qupperneq 67
FIMMTUDAGUR 7. september 2006 AF NETINU Umræðan Samstarf stjórnar- andstöðu Morgunblaðið hefur undan- farið rekið mjög harðan áróður fyrir því, að Vinstri grænir og Sjálf- stæðisflokkurinn tækju upp samstarf. Fyrst rak blaðið áróður fyrir því, að Vinstri grænir og íhaldið mynduðu meirihluta í borgar- stjórn Reykjavíkur en síðan hóf blaðið áróður fyrir samstarfi þessara flokka um landsstjórn- ina. Morgunblaðið sér fram á það, að Framsókn dugi ekki lengur sem hækja fyrir íhaldið í ríkis- stjórn og því þurfi að koma upp nýjum samstarfsaðila. Það varð því algert reiðarslag fyrir Morg- unblaðið, þegar Steingrímur J. Sigfússson formaður VG varpaði fram þeirri tillögu í síðustu viku, að stjórnarandstaðan ætti að mynda ríkisstjórn og koma íhald- inu frá völdum. Þá varð ljóst, að áróður Morgunblaðsins hafði engan árangur borið. Morgun- blaðið brást þannig við, að það réðist harkalega á Steingrím J. í Reykjavíkurbréfi sunnudaginn 3. september. Allt Reykjavíkurbréf- ið er helgað hörðum árásum á Steingrím J. og virðist blaðið ger- samlega hafa misst stjórn á sér. Blaðið grípur m.a. til þess ráðs að halda því fram, að Steingrímur J. sé mikið til einn um þessa skoðun innan VG að vilja mynda það sem Mbl. kallar vinstri stjórn. Síðan kemur gamli söngur Mbl. um hvað vinstri stjórnir séu slæmar og að það væri algert óráð að mynda slíka stjórn. Íhaldið verður að vera með! Hvað er Morgunblaðið að segja í þessu Reykjavíkurbréfi. Jú, blað- ið er að segja að Vinstri grænir, og það gildir auðvitað um Sam- fylkinguna líka, verði alltaf að mynda stjórn með Sjálfstæðis- flokknum. Vinstri stjórnir gangi ekki. Sjálfstæðisflokkurinn verði alltaf að vera innan borðs. Morg- unblaðið gengur svo langt í áróðri sínum, að blaðið segir, að ef Stein- grímur J. berjist fyrir stjórn stjórnarandstöðunnar geti hann glutrað niður öllu fylgi VG og með baráttu fyrir slíkri stjórn sé hann í raun að berjast gegn vinstri flokkunum! Það er ekki heil brú í þessum málflutningi Mbl. En skrifin eru skiljanleg vegna þess, að Mbl. óttast það að íhaldið verði sett út í kuldann, ef Samfylking, VG og Frjálslyndir myndi ríkisstjórn. Mbl. þykist ekki skilja það, að fylgisaukning VG stafar m.a. af harðri baráttu flokksins gegn Sjálfstæðis- flokknum og ríkis- stjórn hans. Það væru hrein svik við kjósendur, ef flokk- arnir sem barist hafa hatrammlega gegn Sjálfstæðisflokknum héldu þeim flokki áfram við völd eftir að stjórnin væri fall- in. Söngurinn um „vinstri stjórnir“ Sjálfstæðisflokkurinn og Mbl. ráku lengi þann áróður, að „vinstri menn“ gætu ekki komið sér saman um stjórn Reykjavík- urborgar og að þeir gætu ekki stjórnað fjármálum borgarinnar. Þetta var kallað glundroðakenn- ingin. R-listinn afsannaði þessa kenningu rækilega. R-listinn sýndi, að vinstri flokkarnir gátu starfað vel saman og þeir stjórn- uðu fjármálum borgarinnar betur en íhaldið. Nú notar Mbl. svipaða kenningu í landsmálunum. Nú segir blaðið, að „vinstri flokkar“ geti ekki stjórnað landinu. Það verði alltaf verðbólga undir þeirra stjórn. Þetta er rugl. Í fyrsta lagi er ekki verið að tala um neina vinstri stjórn. Ef stjórn- arandstaðan myndar ríkisstjórn er það engin vinstri stjórn, þar eð Frjálslyndi flokkurinn er enginn vinstri flokkur. Í öðru lagi gleym- ir Mbl. því, að verðbólgan er komin á skrið nú undir stjórn íhaldsins. Í þriðja lagi hefur sjálf- stæðismönnum tekist bærilega að magna upp verðbólguna. Mesta verðbólgan var þegar rík- isstjórn Gunnars Thoroddsen var við völd. En það var verkalýðs- hreyfingin sem tók í taumana og stöðvaði verðbólguna með þjóð- arsáttinni. Sjálfstæðisflokkurinn hafði ekkert með það að gera. Að sjálfsögðu geta Samfylk- ing, VG og Frjálslyndir stjórnað efnahagsmálum hér eins vel og jafnvel betur en núverandi ríkis- stjórn. Og það sem þessir flokk- ar mundu gera fyrst og fremst er að leiðrétta misskiptinguna, ójöfnuðinn, sem núverandi stjórnarflokkar hafa leitt yfir þjóðina. Harkaleg árás á Steingrím J! BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON VG nær Samfylkingunni Það er þó jákvætt fyrir Steingrím í þessu að vg hefur verið að sigla nær og nær samfylkingunni í fylgi og sam- fylkingin hefur verið að færa sig meira og meira til vinstri eftir að isg tók við sem formaður. Jonni2 skrifar á skoðun á Vísir.is Umferðaröryggi Umræða um pistil Ingu Rósar í Fréttablaðinu Það þarf alltaf dauðaslys til að eitt- hvað sé gert í svona málum. Fólk sem hefur ekki þolinmæði í að ferðast á vegum landsins ættu að sleppa því. Oft er sagt að þeir sem eiga jeppa þykjast eiga veginn, því hef ég sjálf tekið eftir oftar en einu sinni. Fólk sýnir ekki virðingu í umferðinni. Allan daginn er fólk svo mikið að flýta sér að það svínar fyrir aðra, sem getur endað með stórslysi. Sumir eru svo frekir og dónalegir í umferðinni að það getur pirrað hið rólegasta fólk. Nú þegar vetur konungur fer að láta sjá sig skulum við reyna að muna eftir því að aka enn varlegar. Hugsið um þá sem þið gætuð verið að stofna í hættu í umferðinni með ykkar eigin glæfraskap. Sýnið tillitsemi og þolinmæði. Aldrei má heldur gleyma beltunum. Hafrun skrifar á skoðun á Vísir.is Þórhallur H. Þórhallsson keyrir úr Grafarvogi á hverjum degi Ég fer á hverjum morgni úr Grafar- vogi og niður í miðbæ, síðan heim um kl 17. þetta er eins og ferðast í rússibana. Geðveiki og frekja einkennir umferðina. Svo eru þessar götur og gatnamót þar sem hægri réttur gildir. Stórara götur eins og Langirimi, hann á auðvita að vera aðalbraut eins og Fannafoldinn. Svo er það gatnamót Stuðlaháls og Krókháls. Þetta eru bara gatnamót til þess að búa til stórhættu. Því verður ekki breytt fyrr en dauðaslys eiga sér stað þarna. Þórhallur skrifar á skoðun á Vísir.is Það væru hrein svik við kjós- endur, ef flokkarnir sem barist hafa hatrammlega gegn Sjálf- stæðisflokknum héldu þeim flokki áfram við völd eftir að stjórnin væri fallin.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.