Fréttablaðið - 07.09.2006, Síða 77
FIMMTUDAGUR 7. september 2006 41
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
SEPTEMBER
4 5 6 7 8 9 10
Fimmtudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
17.00 Sinfóníuhljómsveit Íslands
heldur tónleika í Smáralind.
Stjórnandi er Rumon Gamba.
17.00 Síðustu tónleikar í sumar-
tónleikaröð Smekkleysu og The
Reykjavik Grapevine fara fram
í húsakynnum Smekkleysu við
Klapparstíg 27 en þar leikur Benni
Hemm Hemm kl. 17. Síðar um
kvöldið leikur sveit hans ásamt
Retro Stefson á Café Amsterdam
kl. 21.
20.30 Jón Svavar Jósefsson
baritónsöngvari og Helga Bryndís
Magnúsdóttir píanóleikari halda
söngtónleika með áherslu á drauga-
og hestalög á Draugasetrinu
Hólmaröst á Stokkseyri. Miðar eru
seldir á staðnum en frítt er inn fyrir
drauga og ófermda.
22.00 Kassagítartónleikar á
Hressó. Fram koma Red Cup, Bela
og Pétur Ben.
■ ■ SKEMMTANIR
Hljómsveitin Jagúar leikur á
Barnum við Laugaveg 22 í kvöld.
Sveitina skipa Ingi Skúlason,
Samúel Jón Samúelsson, Kjartan
Hákonarson, Óskar Guðjónsson
Ómar Guðjónsson og Einar
Scheving.
■ ■ SÝNINGAR
10.00 Hafliði Hallgrímsson tón-
skáld sýnir myndverk sín á vegum
Listvinafélags Hallgrímskirkju.
Hafliði sýnir tólf verk af trúarlegum
toga í kirkjunni. Sýningunni stendur
fram í október.
11.00 Myndbandsverk Ólafar
Arnalds, Eins og sagt er, er til sýnis
í Þjóðmenningarhúsinu. Í verkinu
flytur Ólöf frumsamda tónlist og
syngur á átján tungumálum í níu
myndrömmum samtímis.
11.00 Samsýningin Mega vott
stendur yfir í Hafnarhúsinu.
Sýningin er opin alla daga frá 11-
17 nema á þriðjudögum. Á sýn-
ingunni eru verk eftir Ragnhildi
Stefánsdóttur, Önnu Eyjólfsdóttur,
Þórdísi Öldu Sigurðardóttur, Rúrí
og Jessicu Stockholder.
■ ■ SÍÐUSTU FORVÖÐ
10.00 Sýningunni Sú þrá að
þekkja og nema í anddyri
Amtbókasafnsins á Akureyri lýkur
um helgina. Sýningin fjallar um ævi
og störf Jónasar Jónassonar frá
Hrafnagili og er sett upp í tilefni af
150 ára afmæli hans.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
[ KVIKMYNDIR ]
UMFJÖLLUN
Fyrsta kvikmynd leikstjórans
Lawerence Dunmore fjallar um
bílífi Johns nokkurs Rochester,
tignarmennis, skálds og karldólgs
sem gerði talsverðan óskunda á
Bretlandi á sautjándu öld. Við-
fangsefnið er nokkuð spennandi
en úrvinnslan kunnugleg. Þótt The
Libertine sé um margt hefðbundið
búningadrama fer meira fyrir
sora og leðju en í Austen-mynd-
um.
Efnistökin slá hefðbundinn
takt; myndin hverfist um „ástar-
samband“ Rochester (Depp) og
leikkonunnar Lizzie Barry (Mort-
on) og deilur ólátabelgsins við
Karl konung II (Malkovich) sem
snúast um frelsi, siðprýði og aga-
leysi þess fyrstnefnda sem á end-
anum dagar uppi, marineraður í
áfengi og útsteyptur í ógeðfelld-
asta kynsjúkdómi sem ég hef séð á
hvíta tjaldinu.
Sviksemi og sígildar réttlæt-
ingar alkóhólistans í bland við
háðskar glósur Rochesters um
sjálfsblekkingu annarra verða að
engu þegar hann „þroskast“ og
lærir lexíur um ástina og guð
undir lok myndarinnar. Heillandi
hugmyndin um ást hans á leikhús-
inu og einu leið til þess að upplifa
sannar tilfinningar er gert hátt
undir höfði en hámark myndar-
innar, klámfengin háðungarsýn-
ing sem Rochester skrifar um
valdstjórn og girndir Karls kon-
ungs, missir algjörlega marks að
mínu mati. Bakgrunnur sögunnar
er einfaldlega of illa undirbyggð-
ur og persóna Rochesters of
ósannfærandi til að það gervilima-
grín gangi upp. Annars minnir
þessi mynd helst á subbulega
útgáfu af hinni ofmetnu kvikmynd
Shakespeare in Love.
The Libertine er vel leikin, það
mega þau Morton og Depp eiga þó
að textinn detti niður í tilgerðar-
vaðal á köflum og hagmælgi
Rochesters hljómi stundum eins
og velheppnað Stormskersgrín.
Aðrar persónur myndarinnar bera
aukaforskeyti sitt með rentu, þær
eru í hæsta máta óspennandi.
Félagar Rochesters eru sorglegur
hópur og kvenfólkið í myndinni
eru staðalmyndir, hórur/mæður/
meyjar sem lítið hafa fram að
færa nema fyrirgefningu sína.
Atburðarásin er óskýr og fyrir
utan nokkur hnyttin tilsvör kafnar
þessi mynd í þokunni og leðjunni
sem leikstjórinn hefur kosið að
maka hana út í en sú mynd sem
hann dregur upp af hirð- og leik-
húslífi sautjándu aldar í Bretlandi
er langt frá því að vera kræsileg
né áhugaverð þó að hún sé frum-
leg.
Frumleikinn felst einnig í kvik-
myndatökunni en hún verður að
teljast í flippaðara lagi miðað við
samhengi myndarinnar. Fálm-
kenndar tökubrellur og ofnotkun
þeirra fara nett í taugarnar á mér
því að mínu mati ættu slíkar til-
raunir ekki að sjást í lokaútgáfu
myndarinnar.
Músíkin í myndinni er allt of há
og áberandi og hljóðvinnslan ekki
til eftirbreytni heldur. Hins vegar
var myndin merkilega vel þýdd og
á liprara máli en oft sést á íslensk-
um bíótjöldum og á þýðandinn
hrós skilið fyrir virðingarverða
tilraun til að snara klúrheitum
Rochesters yfir á hið ástkæra
ylhýra. Kristrún Heiða Hauksdóttir
THE LIBERTINE
Leikstjóri: Laurence Dunmore
Aðalhlutverk: Johnny Depp, John Malkovich,
Rosamund Pike, Samantha Morton og Tom
Holland.
Niðurstaða: Óttaleg flatneskja fyrir utan
nokkur hnyttin tilsvör.
Forað, sori og flatneskja
Á næstunni:
Föstud. 15. sept: Laugardalshöll, ásamt Gospelkór Rvk.
Laugard. 16. sept: Höllin, Vestmannaeyjum
Föstud: Players, Kópavogi
Laugard: Sjallinn, Akureyri
Um helgina:
Síðsumar 2006
Munið tónleika Sálarinnar og Gospelkórs
Reykjavíkur í Laugardalshöll 15. september.
AÐEINS ÖRFÁIR MIÐAR EFTIR!
Miðasala: miði.is, Skífan, BT
www.salinhansjonsmins.is
������������������ �������
�� ������������������������������������������������
�����������������
����������������� ������������������
��������
�
�
�
���
��
��
��
���
��
��
��
��
���
�� ������ ����������������
���������������� ������
���������������������������
����������������������
���������������������������������
������� �� ���������� ��
����������� ������������ ��
���������������������������������� ��������
���������������������������������
LEIKHÚSTILBOÐ: Tvíréttaður
kvöldverður og leikhúsmiði
frá kr. 4300 - 4800
TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM
Sýningar í Landnámssetri
í september og október
Fimmtudag 7. september kl. 20 Uppselt
Föstudag 8. september kl. 20 Uppselt
Laugardag 9. september kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 10. september kl. 16 Uppselt
Miðvikudagur 13. september kl. 20 Uppselt
Föstudagur 15. september kl. 20 Uppselt
Laugardagur 16. september kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 17. september kl. 20 Uppselt
Laugardagur 23. september kl. 20 Uppselt
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI