Fréttablaðið - 07.09.2006, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 07.09.2006, Blaðsíða 86
50 7. september 2006 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is > Alfreð á einu miðana á HM Það er mikil stemning fyrir HM í handbolta sem fram fer í Þýskalandi í byrjun næsta árs en Þjóðverjar lofa stærsta hand- boltamóti sem haldið hefur verið. Íslendingar verða að sjálf- sögðu með á mótinu og fer hver að vera síðastur að tryggja sér miða en uppselt er á alla leiki í riðli Íslands, sem fram fer í Magdeburg, fyrir utan 500 stykki sem eru eyrnamerkt Alfreð Gíslasyni landsliðsþjálfara. Alfreð sagði í samtali við Fréttablað- ið í gær að hann gæti ekki haldið miðunum endalaust og því mega ferðaskrifstofur sem hafa hug á að bjóða upp á ferðir á mótið endilega vera í sambandi við HSÍ áður en Alfreð missir miðana. Mótið verður án vafa mikil veisla og nauðsynlegt að strákarnir okkar fái góðan stuðning. HANDBOLTI Alfreð tók óvænt við Gummersbach eftir frækinn sigur á Svíum með landsliðinu í sumar. Hann átti ekki að hefja störf fyrr en næsta sumar en forráðamenn félagsins sóttu það nokkuð hart að fá hann strax til starfa og það gekk eftir þar sem Velimir Klajic lét af störfum. „Undirbúningurinn var mjög strembinn og gekk nokkuð illa enda hafði liðið ekki verið að leika neina taktík undanfarin ár. Ég þurfti eiginlega að byrja frá grunni og það var nokkur áskorun. Það hefur samt gengið ótrúlega vel að laga leikmenn að breyttum aðstæðum,“ sagði Alfreð, sem sagðist vera ánægður með að vera kominn aftur í slaginn með félags- liði eftir nokkra mánuði á hliðar- línunni. Miklar breytingar eru á liði Gummersbach frá síðustu leiktíð en liðið missti meðal annars kór- esku stórskyttuna Yoon. Liðið hefur líka fengið liðsstyrk en alls komu átta nýir leikmenn í hópinn í sumar þannig að Alfreð er svo gott sem með nýtt lið í höndunum. „Það hefur komið pínu á óvart að við skyldum hafa unnið fyrstu þrjá leiki okkar en það kemur mér ekkert á óvart. Liðið er orðið sam- hæfðara en margir bjuggust við á þessum tímapunkti,“ sagði Alfreð en hversu hátt setur hann markið fyrir þetta tímabil? „Ég sagði fyrir tímabilið að það væri frábær árangur ef við næðum þriðja sæt- inu. Ef við náum að vera í sjötta sæti um jólin þá eigum við mögu- leika á að ná þriðja sætinu enda erum við að spila marga erfiða leiki fram að áramótum.“ Gummersbach mætti meistur- um Kiel á útivelli í gærkvöldi og vann glæstan sigur og heimsækir síðan Viggó Sigurðsson og félaga í Flensburg á laugardag. Þessir tveir leikir eru prófsteinn fyrir liðið og Alfreð veit betur hvar liðið er statt eftir þessa leiki. „Það er gott að vera taplaus fyrir þessa leiki en nú er komið að alvöru prófi og við bíðum spenntir. Það verður gaman að heimsækja Viggó um helgina og það verður við ramman reip að draga í báðum leikjunum en við mætum tiltölulega afslappaðir til leiks,“ sagði Alfreð sem er með þrjá Íslendinga í herbúðum liðs- ins - Guðjón Val Sigurðsson, Róbert Gunnarsson og Sverre Andreas Jakobsson - og Guðjón er fyrirliði liðsins. „Gaui var eiginlega orðinn fyrirliði liðsins í augum leikmanna í fyrra og það var því auðveld ákvörðun að afhenda honum band- ið og hann hefur staðið sig vel í þessu hlutverki eins og búast mátti við,“ sagði Alfreð. henry@frettabladid.is Þurfti að byrja frá grunni Alfreð Gíslason hefur farið vel af stað með úrvalsdeildarlið Gummersbach í þýska handboltanum en mikið breytt lið félagsins vann fyrstu fjóra leiki sína. Alfreð segist hafa þurft að vinna mikla vinnu á undirbúningstímabilinu. LÍFLEGUR Alfreð Gíslason lifir sig inn í leikina af hliðarlínunni. Hann mætir Viggó Sigurðssyni á laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/BONGARTS Knattspyrnukonan Hólmfríður Magnúsdóttir skipti nýlega úr KR yfir danska liðið Fortuna Hjörring. Hún lék sinn fyrsta leik fyrir félagið á þriðjudaginn og skoraði eitt mark í 11-0 sigri Fortuna á Horsens í dönsku bikarkeppninni, en Horsens er deild neðar Fortuna Hjörring í Danmörku. Fréttablaðið hafði samband við Hólmfríði og hún var mjög ánægð með þessa byrjun. „Það er mjög gaman að skora í fyrsta leik. Þetta lið er í deild fyrir neðan okkur og það er mjög gott að byrja á svoleiðis leik til að komast inn í þetta. Ég fékk líka fleiri færi til að skora,“ sagði Hólmfríður. Hólmfríður lét mjög vel af nýja félaginu og sagði aðstöðuna alla til fyrirmyndar. „Mér líst mjög vel á þennan klúbb, það er allt gert fyrir mann. Þetta er líka bara kvennaklúbbur þannig að við fáum alla athyglina. Ekki eins og í KR þar sem karlaliðið fær alla athyglina.“ Fortuna Hjörring gerði í síðustu viku jafntefli við liðið í sjötta sæti deildarinnar og Hólmfríður sagði að danska deildin væri jafnari en sú íslenska. Hún sagði einnig að æfingarnar væru öðruvísi. „Ég fór á fyrstu æfinguna mína á mánudaginn, daginn fyrir leik, og það var miklu meira tempó og þó að leikurinn í gær hafi verið gegn liði sem er mun lakara en okkar var spilað á fullum krafti þar til flautað var af,“ sagði Hólmfríður. „Það er miklu meiri alvara í þessu hérna úti en heima. Á leikjum milli liða sem eru í toppbaráttunni þá koma alveg á bilinu tvö til þrjú þúsund áhorfendur. Það er meira en á landsleikjum heima,“ bætti Hólmfríður við. Hólmfríður er ekki í vafa um að fleiri íslenskar stelpur eigi erindi til útlanda til að spila fótbolta. „Þær sem geta eitthvað ættu bara að drífa sig út því þær geta þetta alveg ef viljinn er fyrir hendi. Það myndi kannski líka jafna deildina heima. Það er bara að þora þessu. Maður verður bara að taka af skarið og kemur þá bara reynslunni ríkari ef manni líkar þetta ekki,“ sagði Hólmfríður. Fortuna Hjörring er í öðru sæti deildarinnar og næsti leikur liðsins er á sunnudaginn úti gegn Skovlund, sem situr í þriðja sæti deildarinnar. „Hér er mun meiri samkeppni um sæti í byrjarliðinu en heima. Ég vona bara að ég fái að byrja inni á í þeim leik,“ sagði Hólmfríður að lokum. HÓLMFRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR: FÓR VEL AF STAÐ HJÁ SÍNU NÝJA FÉLAGI OG SKORAÐI MARK Í FYRSTA LEIK Ekki eins og hjá KR þar sem karlarnir fá alla athyglina FRJÁLSAR Spretthlauparinn magnaði Jón Oddur Halldórsson gerði sér lítið fyrir í gær og vann til bronsverðlauna í 100 metra hlaupi á HM fatlaðra en mótið fer fram í Hollandi. Jón Oddur kom inn í úrslitin með sjötta besta tímann en bætti um betur í úrslitahlaupinu og hrifsaði bronsið. Sigurvegari varð Mokgalagadi Teboho frá Suður- Afríku en hann bætti eigið heimsmet sem hann setti á ÓL í Aþenu árið 2004. Teboho kom í mark á 12,98 sekúndum. - hbg Jón Oddur Halldórsson: Fékk brons á HM fatlaðra JÓN ODDUR Vann til verðlauna á HM í gær. FÓTBOLTI Carlos Dunga, þjálfari brasilíska landsliðsins í knatt- spyrnu, sagði að hann hefði heillast af Ryan Giggs, leikmanni Manchester United, á þriðjudag- inn þegar Brasilía mætti Wales. „Allir þjálfarar í heiminum myndu vilja hafa leikmann eins og Giggs í sínu liði og ég er engin undantekning þar á,“ sagði Dunga. „En í hreinskilni sagt er ég ekki viss um hvar ég ætti að láta hann spila. Við erum með svo marga frábæra leikmenn í Brasilíu og ef hann væri brasil- ískur ætti ég í enn meiri vand- ræðum með að velja liðið,“ sagði Dunga. - dsd Dunga um Ryan Giggs: Heillaður af Ryan Giggs RYAN GIGGS Þótti leika mjög vel í þær 45 mínútur sem hann var á vellinum gegn Brasilíu á þriðjudaginn. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FORMÚLA Þýskir fjölmiðlar hafa haldið því fram undanfarið að Michael Schumacher muni til- kynna á sunnudaginn að hann ætli að hætta að loknu yfirstandandi tímabili í formúlu 1. Fjölmiðlar hafa gengið svo langt að halda því fram að hann muni tilkynna um ákvörðun sína eftir Formúlu- keppnina um helgina. Talsmenn Ferrari hafa reynt að draga úr þessum fréttum en athygli vekur að þeir ganga ekki svo langt að hafna vangaveltum fjölmiðla og hefur það síst dregið úr umfjölluninni. „Við getum ekki svarað þessum fréttum en það verður tekin ákvörðun eftir keppnina á Monza um næstu helgi,“ sagði Sabine Kehm, fjölmiðlafulltrúi Ferrari, í gær en það yrði vissulega tákn- rænt ef Schumacher tilkynnti um endalokin á heimavelli Ferrari á Ítalíu. - dsd Sögusagnir um framtíð Michaels Schumacher magnast með hverjum deginum: Schumacher sagður ætla að tilkynna um endalok ferils síns á sunnudag ER HANN AÐ HÆTTA? Michael Schu- macher er sigursælasti ökumaður í sögu formúlu 1. Þetta gæti verið hans síðasta tímabil. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Kevin Nolan, miðvallar- leikmaður hjá Bolton, segir að hann ætti mun meiri möguleika á að komast í enska landsliðið ef hann væri hjá stærra félagi en Bolton er. „Í hreinskilni sagt þá er ég nokkuð viss um að ég væri kominn í enska landsliðið ef ég væri að spila fyrir Manchester United og Liverpool,“ sagði Nolan í gær. „Með fullri virðingu fyrir Bolton líta margir á það sem lítið félag. Ég er algjörlega ósammála því,“ bætti Nolan við. Nolan hefur undanfarið verið í sambandi við Steve Staunton, þjálfara írska landsliðsins, um að spila fyrir Íra og hann segist hafa fullan stuðning frá framkvæmda- stjóra sínum, Sam Allardyce. - dsd Kevin Nolan: Gæti leikið fyrir Írland KEVIN NOLAN Íhugar það nú að spila fyrir Írland. Hann hefur enn ekki fengið tækifæri með Englandi. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES F1 Finninn Kimi Räikkönen er búinn að jafna sig af þeim meiðslum sem hafa verið að plaga hann og mun því keppa í Formúlu 1-mótinu um helgina. „Bakið á mér var að plaga mig og þess vegna varð ég að taka mér smá hvíld og það dugði því ég er 100% klár í slaginn fyrir helgina,“ sagði Finninn hressi. - hbg Kimi Räikkönen: Búinn að jafna sig í bakinu FORMÚLA Renault skýrði frá því í gær að finnski ökuþórinn Heikki Kovalainen myndi taka sæti Fernando Alonso á næsta ári þegar Alonso flytur sig um set og gengur í raðir McLaren. Kova- lainen hefur verið þróunaröku- maður hjá Renault frá árinu 2004. „Ég er mjög spenntur yfir því að fá tækifæri til að sýna hvað ég get,“ sagði Kovalainen. „Á næsta ári byrjar nýr kafli í mínu lífi. Það verða gerðar miklar vænting- ar en ég mun ekki líta á það sem auka pressu á mig.“ Giancarlo Fisichella mun áfram keyra fyrir Renault en hann framlengdi nýlega samning sinn um eitt ár. - dsd Nýr ökumaður til Renault: Kovalainen í stað Alonso
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.