Fréttablaðið - 07.09.2006, Side 89
FIMMTUDAGUR 7. september 2006 53
ÍSLENSKA LIÐIÐ
ÁRNI GAUTUR ARASON 7
Gat lítið gert að mörkunum og átti ágætan dag
þrátt fyrir nokkur augnablik þar sem hann virtist
ætla að hætta sér í ógöngur.
GRÉTAR RAFN STEINSSON 8
Besti maður íslenska liðsins. Náði að halda
hinum hættulega Kahlenberg niðri og virtist
langfrískasti maður vallarins.
ÍVAR INGIMARSSON 6
Reyndi hvað hann gat en átti á köflum erfitt
uppdráttar gegn sterkum dönskum sóknar-
mönnum.
HERMANN HREIÐARSSON 5
Missti af boltanum í fyrsta marki Dana er hann
klikkaði á rangstöðugildrunni. Virtist stundum
vera með tvo vinstri fætur en átti betri leik í
síðari hálfleik.
INDRIÐI SIGURÐSSON 5
Átti í vandræðum með Rommedahl sem skor-
aði fyrra markið og lagði upp það síðara. Gekk
betur í seinni hálfleik en hefur margoft leikið
betur en hann gerði í gær.
KÁRI ÁRNASON 7
Var hörkuduglegur og reyndi hvað hann gat að
leysa sína stöðu sem breyttist í hálfleik. Vantaði
þó talsvert upp á frumkvæðið í sóknarleiknum
og þar virtist hann óstyrkur.
JÓHANNES KARL GUÐJÓNSSON 5
Fékk gult strax á 4. mínútu sem er ávallt slæmt
fyrir mann í hans stöðu. Komst aldrei almenni-
lega í takt við leikinn og gerði sig stundum
sekan um slæm mistök.
BRYNJAR BJÖRN GUNNARSSON 6
Barðist mikið en eins og svo margir aðrir átti hann
erfitt uppdráttar. Danir stjórnuðu miðjunni og við
því gat Brynjar ekkert gert.
HJÁLMAR JÓNSSON 4
Fékk tvær skottilraunir í fyrri hálfleik sem heppn-
uðust illa, afar neyðarlegt. Var einfaldlega ekki
með á nótunum, las leikinn illa og gaf margar
slæmar sendingar.
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN 5
Fékk óþarfa spjald í síðari hálfleik fyrir að henda
boltanum í burtu. Venjulega fyrirgefst honum
letin í varnarleiknum en þegar annað gengur
ekki upp er því ekki að heilsa. Sérstaklega í leik
gegn liði eins og Danmörku.
GUNNAR HEIÐAR ÞORVALDSSON 7
Eins og alltaf hljóp hann eins og vitleysingur
allan leikinn og barðist fyrir öllum boltum. Það
er lofsvert í leikjum sem þessum þar sem menn
mega einfaldlega ekki gefast upp.
VARAMENN
VEIGAR PÁLL GUNNARSSON 7
Leysti Hjálmar af hólmi á 66. mínútu og átti
fríska innkomu. Hefði mátt koma fyrr af bekkn-
um.
STEFÁN GÍSLASON -
Leysti Brynjar af hólmi á 76. mínútu.
ARNAR ÞÓR VIÐARSSON -
Leysti Kára Árnason af hólmi á 83. mínútu.
Laugardalsv., áhorf: 10 þúsund
Ísland Danmörk
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 5–10 (2–6)
Varin skot 3–2
Horn 3–1
Aukaspyrnur fengnar 18–19
Rangstöður 4–1
0-1 Dennis Rommedahl (5.)
0-2 Jon Dahl Tomasson (33.)
0-2
Ivanov, Rússland (6)
FÓTBOLTI Danir unnu í gær sterkan
2-0 sigur á íslenska landsliðinu á
Laugardalsvelli en mörk Dana
skoruðu þeir Dennis Rommedahl
og hinn íslenskættaði Jon Dahl
Tomasson í fyrri hálfleik. Eins og
ávallt má velta fyrir sér hvað
hefði gerst ef Eiður Smári hefði
skorað úr algeru dauðafæri í fyrri
hálfleik en í næstu sókn Dana
skoruðu gestirnir síðara mark sitt.
Sigur Dana var þó í hæsta máta
sanngjarn.
Áhorfendur tóku vel undir í
íslenska þjóðsöngnum áður en
leikur hófst og íslensku leikmenn-
irnir stöppuðu stálinu hver í annan
rétt eins og í Belfast. Það var allt
til staðar, frábært veður, full stúka
og bullandi þjóðarstolt.
Íslenska liðið var þétt en
snemma kom í ljós að Danir áttu
mun auðveldara með að komast að
markinu en síðustu andstæðingar
liðsins. Skot Thomas Gravesen
strax á þriðju mínútu bar vott um
að restin af leiknum yrði ekki auð-
veld. Jóhannes Karl fékk strax
gult spjald á fjórðu mínútu leiks-
ins sem vissi ekki á gott.
Á fimmtu mínútu splundruðu
Danirnir vörn Íslendinga. Christi-
an Poulsen gaf háa sendingu inn á
Dennis Rommedahl og klikkaði
íslenska vörnin á rangstöðugildr-
unni. Rommedahl tók snyrtilega
við boltanum og skilaði honum
örugglega í netið. Skelfileg byrjun
á leiknum og greinilegt að Morten
Olsen hefur lesið leik íslenska
liðsins eins og opna bók.
Greinilegt að Íslendingar ætl-
uðu að reyna að halda ótrauðir
áfram en þrátt fyrir nokkra ágæta
tilburði gerði liðið of mörg ódýr
mistök og voru Íslendingar heppn-
ir að þau kostuðu liðið ekki fleiri
mörk í upphafi leiks.
Á 30. mínútu fékk Eiður Smári
besta færi leiksins. Ívar átti langa
sendingu inn í teig og Eiður gerði
vel með því að halda aftur af varn-
armanninum og leggja af stað á
hárréttum tíma. Hann var á auðum
sjó, í frábæru skotfæri, en lét
verja frá sér.
Skömmu síðar átti íslenska liðið
innkast á vallarhelmingi Dana. Það
heppnaðist illa og Danir fengu
skyndisókn. Gravesen átti fasta
sendingu fram á völlinn sem
Rommedahl hljóp með, dró að sér
íslensku vörnina og renndi boltan-
um á Tomasson sem ýtti honum
yfir línuna.
Eins góður og fyrri hálfleikur-
inn var í Belfast var frammistaðan
gegn Dönum fyrir hlé slæm.
Íslenska liðið var einfaldlega og
algerlega yfirspilað og var þar að
auki óheppið. Síðara markið var
ódýrt og Eiður hefði átt að skora.
Vörnin átti afar slæman dag og átti
mjög erfitt með að halda aftur af
þeim Rommedahl og Tomasson.
Íslenska liðið reyndi að færa sig
framar á völlinn í síðari hálfleik og
sækja en það gekk afar erfiðlega
gegn sterkri danskri vörn. Það hélt
ágætlega sínum hlut í vörninni en
annars einkenndist leikurinn af
baráttu á miðjunni í upphafi síðari
hálfleiks.
Dönum tókst einfaldlega að
klippa á allar leiðir Íslendinga að
danska markinu og létu ekki grípa
sig í bólinu með hinu fræga van-
mati á íslenska liðinu. Þarna var
mætt lið sem var með einfalt verk-
efni, að verjast vel og sækja hratt
sem gekk fullkomlega eftir.
Íslenska liðið var yfirspilað og
enginn leikur betur en andstæðing-
urinn leyfir. Það er þó pínlegt að fá
á sig tvö mörk í fyrri hálfleik og
hlýtur það að skrifast á einfalt ein-
beitingarleysi. Kannski að Íslend-
ingar voru ósjálfrátt værukærir
eftir góða frammistöðu í Belfast en
staðreyndin er sú að danska liðið
er á allt öðrum og hærri stalli en lið
Norður-Íra.
Það má læra af leiknum og
halda áfram með uppbyggingu
íslenska landsliðsins.
eirikur.asgeirsson@frettabladid.is
Sama gamla sagan gegn Dönum
Ísland átti aldrei möguleika gegn gríðarsterku liði Dana á Laugardalsvelli í gær. Handrit leiksins hefði get-
að verið skrifað af Dana en skömmu eftir að Eiður Smári brenndi af dauðafæri gerðu Danir út um leikinn.
HITI Í HERMANNI Hermann Hreiðarsson átti erfitt með að sætta sig við tapið og lét
skapið hlaupa með sig í gönur á köflum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SVEKKTUR Eiður Smári Guðjohnsen átti erfitt með að leyna vonbrigðum sínum eftir
tapið gegn Danmörku á Laugardalsvelli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI „Það er leiðinlegt að tapa
og það virðist aldrei verða
skemmtilegra,“ sagði Eyjólfur
Sverrisson landsliðsþjálfari frem-
ur bitur í bragði. Hann sagði að
íslenska liðið hefði tapað leiknum
í byrjun. „Mér fannst að við
bærum of mikla virðingu fyrir
Dönunum og þeirra tæknilega
leik. Við vorum of langt frá þeirra
mönnum og áttum að vera mun
þéttari fyrir. Þeir nýttu sér þetta
vel og spiluðu í gegnum okkur.“
Hann segir að Dennis Romm-
edahl, sem skoraði fyrra mark
Dana, hafi skorað tvö sams konar
mörk í leik Dana gegn Portúgal í
síðustu viku. „Það er grátlegt að
vita af því að hann hafi skorað, að
mér skilst rangstöðumark, og ekki
síður dapurt að hann hafi endur-
tekið það sem hann gerði gegn
Portúgölum tvisvar. Það sýnir að
akkúrat þarna vorum við ekki
alveg á tánum.“
Eyjólfur segir að margt hefði
getað breyst ef íslenska liðið hefði
nýtt þau tvö dauðafæri sem það
fékk í fyrri hálfleik. „Lukkan þarf
líka að vera á okkar bandi. Við
nýttum okkar færi í Belfast en
ekki nú.”
Hann segir ætla að setjast yfir
upptökur af leiknum og greina
hann vel svo hægt verði að draga
lærdóm af honum. - esá
Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari var vitanlega ósáttur eftir tapið í gær:
Það er alltaf leiðinlegt að tapa og skánar ekki
RÁÐÞROTA Landsliðsþjálfararnir Eyjólfur og Bjarni áttu engin svör við leik Dana í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
sagði eftir leik í gær að hugur
íslensku landsliðsmannanna hefði
verið í góðu standi fyrir leik en
þegar hann hófst hafi ef til vill
vantað upp á einbeitinguna. „Það
var allt til staðar til spila okkar
besta leik en það verður erfitt
þegar við fáum mark á okkur
snemma, það setti okkur út af lag-
inu. Ég get líka tekið það á mig að
það hefði ef til vill breytt miklu ef
ég hefði nýtt færið mitt í fyrri
hálfleik en í staðinn skora þeir
strax í kjölfarið ódýrt mark. Það
var vendipunktur leiksins.“
Hann sagði að oft þegar slík
staða komi upp, minnki sjálfs-
traust leikmanna ósjálfrátt. „Við
þorðum ekki að halda boltanum
eins vel og við getum. Eftir á að
hyggja hefðum við ef til vill átt að
spila allan leikinn eins og við gerð-
um í síðari hálfleik, með auka-
mann á miðjunni. Þá virtumst við
loka svæðunum vel og þeirra send-
ingarleiðum. Í fyrri hálfleik gáfum
við þeim of mikinn tíma á boltan-
um en það er auðvelt að vera vitur
eftir á.“
Eiður sagði aðspurður að
íslenska liðinu virðist einfaldlega
ganga alltaf illa á móti Dönunum.
„Það sterkasta við danska liðið er
að leikmennirnir eru mjög sam-
stilltir. Þeir spiluðu sinn fótbolta,
eins og þeir gera alltaf - spiluðu
upp á góða hreyfingu fram á við
og að fá boltann inn fyrir vörnina.
Við vissum þetta alveg en það er
oft erfitt að koma í veg fyrir það
þó það sé fyrirsjáanlegt.” - esá
Eiður Smári Guðjohnsen landsliðsfyrirliði segir liðið hafa skort einbeitingu:
Þorðum ekki að halda boltanum
BESTA FÆRIÐ Eiður Smári fékk sannkallað dauðafæri í stöðunni 0-1 en brást bogalist-
in. Skömmu síðar kláruðu Danir leikinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM