Fréttablaðið - 25.09.2006, Qupperneq 2
2 25. september 2006 MÁNUDAGUR
SPURNING DAGSINS
���������������������������������������������������������������������� ������������
�������������
������������
�����������
�����������������������������������������������������������������
����
�����
�����
��
UMFERÐARMÁL Hæpið er að tala um
að umferðarátakið Nú segjum við
Stopp sé ekki að skila sér til öku-
manna þótt fleiri séu nú stöðvaðir
fyrir hraðakstur en áður. Þetta
segir Einar Magnús Magnússon,
upplýsinga-
fulltrúi
Umferðar-
stofu, um
ályktanir lög-
reglu um að
átakið sé ekki
að skila sér til
ökumanna.
Einar Magn-
ús telur að ekki
þurfi að þýða
að hraðakstur
hafi aukist þó
fleiri séu teknir. Ekki sé hægt að
leggja dóm á alla ökumenn þó að
einhverjir einstaklingar hafi ekki
látið segjast. Verið sé að kanna nið-
urstöður umferðargreina Vega-
gerðarinnar um þessi mál.
„Því miður er fólk úti í umferð-
inni sem virðist ekki vera við-
bjargandi. Við vitum að þær
aðgerðir sem nú hefur verið gripið
til ná sjaldnast eyrum þeirra for-
hertustu í umferðinni,“ segir
Einar. Hann telur að aukna lög-
gæslu og hert viðurlög við síendur-
teknum glæpum í umferðinni
þurfi til að ná til þess hóps. Ótal
dæmi séu um að réttarkerfið hafi
brugðist í þessum málum og úr
því þurfi að bæta.
„Með auknu umferðareftirliti
kemst upp um fleiri sem aka hratt.
Það þarf þó ekki að þýða að
hraðakstur hafi aukist frekar en
að dregið hafi úr honum með
minna eftirliti,“ segir Magnús.
- kdk
Upplýsingafulltrúi Umferðarstofu segir átak gegn hraðakstri hafa borið árangur:
Dregur ályktanir lögreglu í efa
UMFERÐ Upplýsingafulltrúi umferðar-
stofu segir tómt mál að tala um að
hraðakstur hafi aukist þó að fleiri séu
gripnir á of miklum hraða en áður.
EINAR MAGNÚS
MAGNÚSSON
WASHINGTON, AP Innrásin í Írak
hefur ekki gert heiminn öruggari
og dregið úr hættu af hryðjuverk-
um. Þvert á móti er beint sam-
hengi milli stríðsins og aukinnar
hryðjuverkaógnar í heiminum.
Þetta kemur fram í nýrri leyni-
skýrslu, sem byggir á mati sex-
tán leyniþjónustustofnana banda-
ríska ríkisins. Niðurstaða
skýrslunnar er í hróplegri mót-
sögn við staðhæfingar George W.
Bush Bandaríkjaforseta, sem
hefur gjarnan líkt Íraksstríðinu
við „víglínuna í stríðinu gegn
hryðjuverkum“.
Sagt er í skýrslunni að ný kyn-
slóð hryðjuverkamanna, sem
tengist hvorki Osama bin Laden
né al-Kaída hryðjuverkaneti hans,
hafi sprottið upp vegna stríðsins.
Þetta er samhljóða opinberri
skýrslu leyniþjónustunefndar
Bandaríska þingsins, sem var
gefin út á miðvikudaginn. Í henni
segir að í stað fámennrar klíku
Osama bin Laden séu nú til fjöl-
margar hreyfingar, sem oft eigi
lítt sameiginlegt annað en andúð á
Vesturlöndum fyrir að ráðast inn í
Írak og vegna stefnu þeirra í mál-
efnum Mið-Austurlanda.
New York Times greindi frá
leyniskýrslunni í gær og segir að
hún styðji við enn aðra skýrslu
sama eðlis, en sú var gerð opinber
tveimur mánuðum fyrir innrásina
í Írak. Í þeirri skýrslu var varað
við því að stríðið gæti hlaðið undir
„pólitíska íslamstrú“ víðs vegar
um heiminn og aukið stuðning við
hryðjuverk.
Á fimm ára ártíð árásarinnar á
Tvíburaturnana, 11. september
síðastliðinn, sendi Hvíta húsið frá
sér skjöl sem lýstu árangri Bush-
stjórnarinnar í baráttu hennar við
al-Kaída. Í þeim segir meðal ann-
ars: „Eftir árásirnar hinn 11. sept-
ember eru Bandaríkin og banda-
menn þeirra öruggari, en ekki enn
örugg með öllu.“ Einnig má skilja
á skjölunum að mikið hafi verið
gert til að grafa undan trú manna
á lögmæti hryðjuverka.
Blair Jones, talsmaður Hvíta
hússins, vildi ekki ræða skýrsl-
una, en sagði í viðtali við Associ-
ated Press að sú mynd sem nú
væri dregin upp af henni væri
ekki einkennandi fyrir skjalið í
heild sinni. klemens@frettabladid.is
Hryðjuverkahætta
jókst við Íraksstríð
Stríðið hefur kynt undir öfgahyggju múslima og andúð þeirra á Vesturlöndum.
Þetta er niðurstaða bandarískra leyniþjónustna og gengur þvert á staðhæfingar
George W. Bush, sem hefur kallað Íraksstríðið „stríð gegn hryðjuverkum“.
ENDURKOMU SADDAMS KRAFIST Síðastliðinn föstudag voru mótmæli í Tíkrit þar sem
3.000 stuðningsmenn Saddams Hussein komu saman. Írakar hafa ekki reynst jafn
hrifnir af hernáminu og lýðræðisumbótum eins og sum vestræn stjórnvöld höfðu
gert ráð fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SLYS Þyrla Landhelgisgæslunnar
sótti laust eftir hádegi í gær konu
sem slasast hafði rétt við
Hvolsvöll og flutti hana á
Landspítala í Fossvogi. Konan
hafði fallið af hesti þegar hún var
í reiðtúr ásamt fjölskyldu sinni og
missti við það meðvitund.
Að sögn lögreglunnar á
Hvolsvelli komst hún aftur til
meðvitundar áður en þyrlan kom
á staðinn. Vakthafandi læknir á
gjörgæsludeild í Fossvogi sagði í
gær að ekki væri enn vitað
hversu alvarlegir áverkar hennar
væru. - kdk
Féll af hesti:
Þyrla sótti
slasaða konu
LÖGREGLUMÁL Skotið var af riffli
nálægt manni við Óbrynnishóla
við Hafnarfjörð í fyrrakvöld.
Meðferðferð skotvopna þar er
með öllu bönnuð en lögreglan í
Hafnarfirði segir að nokkuð hafi
borið á því að menn séu með
byssur þar. Svæðið er gamalt
skotsvæði.
Í fréttum NFS í gær var greint
frá því að maðurinn hefði furðað
sig á litlum viðbrögðum lögreglu
við tilkynningunni en lögreglan
segir tilkynninguna hafa verið
öllu hógværari en fréttaflutning
af henni. Guðmundur Sophusson,
sýslumaður í Hafnarfirði, segir
að málið verði kannað gaumgæfi-
lega og gripið til aðgerða svo
stemma megi stigu við meðferð
skotvopna á svæðinu. - kdk
Byssumenn í Hafnarfirði:
Skotið úr riffli
nálægt manni
LEIKSKÓLAMÁL Mönnunarvandi á
leikskólum í Reykjavík var meðal
þess sem rætt var á fundi
leikskólaráðs fyrir helgi. Um
helgina vantaði enn 38 starfsmenn
á leikskóla í Reykjavík, sem var
svipaður fjöldi og fyrir viku síðan.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
formaður leikskólaráðs, segir að
skoða þurfi fleira en launin til að
leysa mönnunarvanda og tekur
sem dæmi fjölda barna á hvern
starfsmann.
Á fundinum var einnig ákveðið
að veita sex leikskólum hvatning-
arverðlaun árlega og er markmið-
ið með verðlaunum að vekja
athygli á því sem vel er gert. - hs
Mannekla á leikskólum:
Þarf að skoða
fleira en launin
LÖGREGLUFRÉTT
Svíar í sjálfheldu
Tveir Svíar lentu í sjálfheldu á Ingólfs-
fjalli í gærkvöldi. Sænskt par sem var
með í för náði að kalla á hjálp og var
björgunarsveitin í Árborg kölluð til
aðstoðar. Svíarnir sluppu ómeiddir.
Þórólfur, verðurðu á tveimur
eða fjórum hjólum í vikunni?
„Ég verð á tveimur jafnfljótum og á
hjólum í kringum konuna.“
Þórólfur Árnason, forstjóri Skýrr og fyrr-
verandi borgarstjóri, fer til skiptis á hjóli
og bíl til vinnu. Evrópsku samgönguvik-
unni lauk nú um helgina.
FLUGMÁL Feðgarnir Jón Kristleifs-
son og Þorsteinn Jónsson eru
stoltir eigendur sérútbúinnar
„jeppaflugvélar“. Vélin er af
gerðinni Super Cub frá um 1940
en á hana hafa verið sett þrjátíu
og einnar tommu dekk sem eru
sérútbúin fyrir erfiðar aðstæður í
Alaska.
Jón segir þetta stærstu dekk
sem sett hafa verið undir svo litla
flugvél hér á landi. Með þessu
móti sé hægt að lenda á grófum
flugbrautum og sandfjörum með
auðveldu móti eða uppi á jöklum.
Myndin að ofan er tekin uppi á
Langjökli en daginn áður lentu
þeir uppi á Eiríksjökli. - kdk
Feðgar á flugi:
Jeppaflugvél
á Langjökli
Á LANGJÖKLI Jón Kristleifsson við flug-
vélina uppi á Langjökli.
ÞYRLUR Óvíst er hvort verði af samvinnu Íslands og
Noregs í kaupum á björgunarþyrlum. Láti Norðmenn
hernaðarleg sjónarmið ráða í vali á þyrlutegund verð-
ur samvinnan að engu. Fyrirhugað er að þjóðirnar
ræði saman um sameiginlegt útboð á þyrlum til
íslensku Landhelgisgæslunnar og norsku strand-
gæslunnar.
¿Enn er ekkert útilokað í þessu máli,¿ segir Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra. ¿Innan norska stjórn-
kerfisins takast á ólík sjónarmið, það hvort eigi að
kaupa hergerð af þyrlum eða borgaralega gerð. Ef
Norðmenn láta hernaðarleg sjónarmið ráða, skilja
leiðir á milli þeirra og okkar við val á þyrlum.¿
Norska dómsmálaráðuneytið birti skýrslu um
þessi mál í júlí seinastliðnum. Björn segir að síðan þá
hafi verið skipst á upplýsingum um málið milli Íslend-
inga og Norðmanna og enn sé ekkert útilokað í þessu
máli.
¿Þetta mál er ekki enn komið inn á okkar borð. Það
liggur ekki fyrir um hvernig að þessu verður staðið,¿
segir Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa. - sþs
Möguleg samvinna Íslands og Noregs verður að engu vilji Norðmenn herþyrlur:
Óvíst hvort af samvinnu verði
ÞYRLA LANDHEGIGÆSLUNNAR TF-SIF Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra segir enn ekkert útilokað í samvinnumálum
Íslendinga og Norðmanna. Vilji Norðmenn herþyrlur verði þó
ekkert úr samvinnu milli þjóðanna í þyrlukaupum.
KAUPMANNAHÖFN, AP Mótmæli í
Kaupmannahöfn fóru úr böndun-
um í gær. Flöskum, grjóti og
eggjum var fleygt að lögreglunni,
að sögn talsmanns hennar. 220
mótmælendur voru handteknir.
Fólkið, sem var í yngri kantinum
að sögn lögreglu, vildi mótmæla
sölu húss, sem hústökufólk hafði
fengið leyfi til að búa í frá
borgaryfirvöldum árið 1982.
Húsið var selt kristilegum
samtökum fyrir fimm árum og
hafa þau síðan unnið að því að fá
hústökufólkið borið út. - kóþ
Lögreglan í Kaupmannahöfn:
Fjöldahandtaka
mótmælenda