Fréttablaðið - 25.09.2006, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 25.09.2006, Blaðsíða 10
10 25. september 2006 MÁNUDAGUR Slökkvum ljósin og horfum á stjörnurnar 28. september kl. 22:00 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 3 39 50 09 /2 00 6 Ert þú í leiðtogahlutverki á þínum vinnustað? Viltu efl a þig & þroska í starfi og leik ? Andy Lothian á Grand Hotel Insights Norway & Lectura ehf bjóða þig velkomin/n á morgunverðarfund með Andy Lothian stofnanda Insight Learning and Development fi mmtudaginn 28.september 2006 á Grand hotel. Fundurinn hefst með morgunverði kl. 9:30 og honum lýkur kl. 11:30 Aðgangur er gestum að kostnaðarlausu. Vinsamlegast staðfestu komu þína með því að senda tölvupóst á netfangið lisbet@lectura.is Nánari upplýsingar á www.lectura.is � ������������������������������������������ ����������������� ÁSTRALÍA Alríkisdómstóll Ástralíu hefur komist að þeirri niðurstöðu að Nyoongar-ættbálkurinn sé eig- andi landsvæðis Perth-borgar. Þetta er í fyrsta skipti sem frumbyggjum er tryggður eignarréttur á þéttbýl- issvæði, að sögn áströlsku frétta- stofunnar ABC. Eignarrétturinn nær þó ekki til lands sem byggt er á. John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, lýsti yfir „verulegum áhyggjum“ af úrskurðinum, enda gæti hann haft fordæmisgildi um landsvæði borganna Melbourne og Sydney ásamt fleirum. Philip Rudd- ock, ríkissaksóknari Ástralíu, lýsti einnig áhyggjum sínum og sagði að úrskurðurinn þýddi að frumbyggj- ar gætu meinað öðru fólki að sækja almenningsgarða, strandsvæði og önnur óbyggð svæði. Talsmenn frumbyggja hafa reynt að róa hvíta meirihlutann og segjast engan áhuga hafa á að reka fólk úr görðum sínum eða úr borg- unum, ættbálkurinn sækist fyrst og fremst eftir viðurkenningu á rétt- indum sínum. Ein rök sem dómur- inn telur til er að Nyoongar-menn hafi í áranna rás ræktað siði sína og hefðir og tilheyri því sannarlega hinum upphaflega ættbálki sem á svæðinu bjó. - kóþ Óvæntur úrskurður alríkisdómstóls Ástralíu: Frumbyggjarnir eiga borgina DANSARAR NYOONGAR-ÆTTBÁLKSINS Á GÓÐRI STUNDU Frumbyggjar Ástralíu hafa mátt þola ýmsa niðurlægingu um árin. Þeir fagna að vonum nýjum úrskurði alríkis- dómstólsins. NORDICPHOTOS/AFP SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, AP Esteban Lazo Hernández, starfandi varaforseti Kúbu, hélt reiðilestur yfir bandarískum ráðamönnum á allsherjarþinginu í New York á dögunum. Hann hélt því fram að ríkisstjórn Bandaríkjanna eyddi meiri fjármunum í að „ofsækja og refsa“ þeim fyrirtækjum sem ættu í viðskiptum við eyríkið en eytt væri í rannsókn á því hver hefði fjármagnað hryðjuverkaárásirnar á Tvíburaturnana. Varaforsetinn áréttaði einnig að ríki ættu að hafa fullt frelsi til að nýta auðlindir í friðsamlegum tilgangi og vísaði þar til kjarnorku- deilu Írana við helstu kjarnorku- veldi heims. - kóþ Ávarp Kúbu á allsherjarþingi: Ofsóknir frekar en rannsóknir KÖNNUN Rúmlega 25 prósent manns á aldrinum 18 til 85 ára segja líklegt að þau myndu kjósa framboð eldri borgara ef það væri í boði við alþingiskosningar í dag. Þetta kemur fram í könnun sem Capacent Gallup gerði dag- ana 31. ágúst til 13. september. Tæp 70 prósent svöruðu því til að ólíklegt væri að það myndi kjósa slíkt framboð og tæp fimm prósent tóku ekki afstöðu. Afstaða fólks var skoðuð út frá nokkrum þáttum. Fleiri konur en karlar sögðu líklegt að þær myndu kjósa framboð eldri borgara; rúm 30 prósent á móti tæpum 20 pró- sentum karla. Því eldra sem fólk er, því líklegra er að það muni kjósa framboðið. Voru flestir þeirra sem töldu það líklegt í elsta aldurshópnum, 67 til 85 ára; rúm 60 prósent. Fjöldi þeirra sem sögðust lík- lega kjósa framboð eldri borgara minnkar með aukinni menntun og hærri fjölskyldutekjum sam- kvæmt könnuninni. Ekki mældist marktækur munur eftir búsetu. Þegar afstaða var skoðuð út frá því hvaða flokk fólk myndi kjósa í dag kemur fram að þeir sem kjósa Framsóknarflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn eru síður líklegir til að kjósa framboðið. Kjósendur Vinstri grænna voru fjölmennastir þeirra sem sögðust líklega kjósa framboð eldri borg- ara. Endanlegt úrtak var 1.300 manns og var svarhlutfall 60,9 prósent. - sdg Afstaða fólks gagnvart framboði eldri borgara til Alþingis könnuð: Fjórðungur styður framboðið MYNDIR ÞÚ KJÓSA FRAMBOÐ ELDRI BORGARA? Mjög líklegt frekar líklegt hvorki né frekar ólíklegt mjög ólíklegt Karlar 10,8% 9,1% 4,0% 22,7% 53,5% Konur 17,3% 13,4% 5,7% 25,3% 38,4% UMHVERFISMÁL Mikill munur er á því hversu mikið bifreiðar menga. Þannig blæs BMW fjórum tonnum af koltvísýringi út í andrúmsloftið á ári en Fiat 1,8 tonnum. Þetta kom fram í erindi Sigurðar Inga Friðleifssonar, framkvæmdastjóra Orkuseturs, á samgönguviku. Tiltekin gerð af Toyota Cruiser blæs út 6,1 tonni af koltvísýringi árlega miðað við tólf þúsund ekna km en Toyota Prius blæs 1,2 tonnum. Sigurður vildi með þessum samanburði vekja athygli á því að hægt er að minnka útblástur með því að velja ákveðnar bílategundir. - hs Samgönguvika í Reykjavík: Litlir bílar menga minna KEISARAYNJA KVÖDD Áhugasamir Danir fylgjast með þegar líkkista Dagmarar, dóttur Kristjáns níunda, var blessuð af rússneskum presti á laugardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.