Fréttablaðið - 25.09.2006, Qupperneq 4
4 25. september 2006 MÁNUDAGUR
VÍMUEFNI „Ég hef þurft að fylgjast með því úr
nálægð hvernig fíkniefnaneysla hefur dregið
sjálfsvirðingu og lífsgleði úr syni mínum, sem
að öllu jöfnu er hjartahlýr og skarpgreindur,“
segir Fanney Edda Pétursdóttir, móðir 21 árs
gamals morfínfíkils sem bíður þess að komast
í meðferð vegna veikinda sinna.
Sonur hennar hefur þurft að bíða eftir því
vikum saman að komast í meðferð en Fanney
vonast til þess að hann komist inn á Landspít-
alann til afvötnunar í næstu viku og að henni
lokinni í meðferð í Krísuvík, eftir mánaðar-
tíma. „Sem betur fer losna margar fjölskyldur
þessa lands undan því fargi sem það er að
horfa upp á fjölskyldumeðlim veslast upp
vegna fíkniefnaneyslu. En hinir, sem neyðast
til þess að ganga í gegnum neyslulífernið,
finna of sterklega fyrir viljalausum tilraunum
stjórnvalda til
þess að bregðast
við vandanum.“
Sonur Fanneyj-
ar hefur glímt við
fíkniefnavanda
um sjö ára skeið.
Hann hefur í nokk-
ur skipti leitað sér
hjálpar á meðferð-
arstofnunum.
Eftir að hafa hald-
ið sér utan við fíkniefnaneyslu í tvö ár hóf
hann að nýju að neyta fíkniefna fyrir ári
síðan.
Fanney gagnrýnir viljalausar aðgerðir
stjórnvalda til þess að taka á vandanum. „Það
er fullkomlega óviðunandi staða að fólk sem er
við dauðans dyr þurfi að bíða eftir því vikum
og mánuðum saman, í stöðugri lífshættu, að fá
að finna fyrir vilja hjá heilbrigðisstarfsfólki
til þess að taka á sjúkdómi sínum. Kannski
hafa þingmenn og opinberir starfsmenn ekki
upplifað það að fylgjast með börnum sínum
morkna niður vegna fíkniefnaneyslu. Allir
starfsmenn meðferðarstofnana, færustu sér-
fræðingar landsins, hafa um áratuga skeið
haldið því fram að framlag hins opinbera til
heilbrigðisstofnana sem taka á vímuefnavanda
sé allt of lítið. Á þetta fólk hefur ekki verið
hlustað. Meðal annars með þeim afleiðingum,
þó að margt annað komi til, að efnilegir þjóðfé-
lagsþegnar falla frá vegna úrræðaleysis svo
tugum skiptir árlega. Sonur minn, sem nú er á
endastöð í neyslu og bíður þess að reyna að fá
bót meina sinna, er einn af þeim sem geta fall-
ið frá. Hann er núna á sinni dauðagöngu.“
Ekki náðist í Siv Friðleifsdóttur heilbrigðis-
ráðherra vegna málsins. magnush@frettabladid.is
Það er fullkom-
lega óviðunandi
staða að fólk sem er við
dauðans dyr þurfi að
bíða vikum og mánuðum
saman...
FANNEY EDDA PÉTURSDÓTTIR
MÓÐIR SPRAUTUFÍKILS
GENGIÐ 22.9.2006
Skjá dagar
í september!
Ótrúlegt v
erð!
frá19.900-
tækni
SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
124,9934
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
70,76 71,1
134,66 135,32
90,66 91,16
12,149 12,221
10,876 10,94
9,779 9,837
0,6074 0,611
105,19 105,81
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Horfir upp á dauðagöngu
21 árs gamals sonar síns
Fanney Edda Pétursdóttir, móðir ungs sprautufíkils, segir stjórnvöld skorta vilja til þess að taka á fíkniefna-
vandanum. Sérfræðingar í vímuefnamálum hafa kvartað undan skilningsleysi í áratugi.
FANNEY EDDA Á HEIMILI SÍNU Frá
þrettán ára aldri hefur sonur Fan-
neyjar glímt við fíkniefnavanda.
Stutt er síðan hann hóf að neyta
fíkniefna að nýju eftir að hafa
verið vímuefnalaus í tvö ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
SPÁNN, AP Þrír grímuklæddir
menn sem sögðust vera tals-
menn ETA-aðskilnaðarsamtak-
anna stigu á svið á samkomu um
sjálfstæði Baskalands um
helgina. Lesin var tilkynning um
að ETA legði ekki niður vopn
fyrr en Baskaland fengi sjálf-
stæði frá Spáni. Að loknum
lestrinum skutu mennirnir úr
vélbyssum í loftið.
Fyrir nákvæmlega sex
mánuðum síðan tilkynnti ETA
um „varanlegt vopnahlé“ sitt og
áhuga á friðarviðræðum. Þá
hafði bein krafa um sjálfstæði
héraðsins vikið fyrir „lýðræðis-
legri lausn“. Síðan hafa nokkrir
ETA-menn verið handteknir og
lítið þokast í samningaviðræð-
um. - kóþ
Bakslag í friðarviðræður:
Aðskilnaðar
krafist að nýju
ETA-LIÐAR Lásu upp tilkynningu á
útifundi í þorpinu Atitxulegi, nálægt San
Sebastian í norðvesturhluta Spánar.
LÖGREGLUMÁL Kona á fertugaldri
var handtekin á laugardag eftir að
hún reyndi að smygla fíkniefnum
til manns síns sem vistaður er á
Litla-Hrauni. Lögreglan í Árnes-
sýslu segir hana hafa verið með
amfetamín og um 130 töflur af
róandi lyfjum. Hún er einnig
grunuð um að hafa ekið undir
áhrifum lyfja.
Lögreglan segir málið hafa
komið upp við venjubundið eftir-
lit. Farið var með konuna í röntgen-
myndatöku eftir að grunsemdir
vöknuðu en við þá athugun fund-
ust efnin. Konunni var sleppt eftir
yfirheyrslur.
Lögreglan segir að enn sé of
snemmt að segja til um hvort talið
sé að hún hafi áður smyglað inn
efnum en málið sé í rannsókn.
Erlendur Baldursson, deildar-
stjóri hjá Fangelsismálastofnun,
segir að lagt hafi verið hald á
óvenjumikið af fíkniefnum á
þessu ári. Bæði hafi þau fundist
við leit á aðstandendum og meðal
fanganna sjálfra. Ekki sé enn
hægt að segja til um hvort ástæð-
an fyrir því magni sem lagt hefur
verið hald á í sumar sé aukið eftir-
lit eða aukin fíkniefnaneysla
meðal fanga. Talið sé að efnin
komi að mestu frá vandamönnum
fanganna. Um mánuður er liðinn
frá því að upp komst um ungan
fangavörð sem hafði smyglað
umtalsverðu magni af fíkniefnum
inn á Litla-Hraun meðan hann
starfaði sem sumarafleysinga-
maður. - kdk
Reyndi að smygla amfetamíni og róandi lyfjum inn á Litla-Hraun:
Kona tekin með fíkniefni
LITLA-HRAUN Óvenjumikið hefur
fundist af fíkniefnum á þessu ári innan
fangelsisins.
Sjö voru teknir ölvaðir aðfaranótt
sunnudags í Reykjavík. Upp komst um
einn þegar hann ók á steypustólpa.
Lögreglan segir að þó að ökumaður
hafi verið á smábíl hafi höggið verið
svo mikið að stólpinn, sem er um
200 kíló, hreyfðist mikið til. Ökumann
sakaði ekki en bíllinn er talinn ónýtur.
LÖGREGLUFRÉTT
Slapp með skrekkinn
SKIPULAGSMÁL Skipulagsstofnun
hefur tekið ákvörðun um að gerð
jarðganga undir Vaðlaheiði í
Svalbarðsstrandarhreppi og
Þingeyjarsveit skuli ekki háð
mati á umhverfisáhrifum.
Fornleifanefnd ríkisins segir að
rannsóknir á fornleifum á
svæðinu séu nauðsynlegar áður
en framkvæmdir hefjist. Skipu-
lagsstofnun telur að áhrif á
menningarminjar verði ekki
veruleg ef farið verði að tillögum
Fornleifaverndarinnar. Með
göngunum styttist hringvegurinn
um sextán kílómetra. Ákvörðun
Skipulagsstofnunar má kæra til
umhverfisráðherra. - kdk
Jarðgöng undir Vaðlaheiði:
Jarðgöng óháð
umhverfismati