Fréttablaðið - 25.09.2006, Side 8
8 25. september 2006 MÁNUDAGUR
BORGARMÁL Páll Ólafsson, formaður Stéttar-
félags íslenskra félagsráðgjafa, segir synd að
gengið hafi verið framhjá hæfari félagsráð-
gjöfum þegar Stella K. Víðisdóttir var ráðin í
starf sviðsstjóra velferðarsviðs. „Ég óttast
einnig að með því að ráða viðskiptafræðing í
þetta starf eigi að fara að færa áherslu þessa
viðkvæma málaflokks yfir á fjármálin.“
Páll segir mikla óánægju meðal félagsráð-
gjafa, sérstaklega þar sem einstaklingar með
doktorspróf í faginu hafi sótt um stöðuna.
„Félagsráðgjafar vinna í viðkvæmum mála-
flokkum og það er mikilvægt fyrir okkur að
hafa yfirmenn sem sýna hugmyndafræði
okkar skilning.“
Þess má geta að um 60 félagsráðgjafar
vinna á velferðarsviði Reykjavíkurborgar og
forveri Stellu, Lára Björnsdóttir, var félags-
ráðgjafi að mennt. „Stéttarfélag félagsráð-
gjafa mun senda borgarstjóra og borgarráði
bréf þar sem skorað verður á yfirmann í vel-
ferðarmálum að endurskoða ráðninguna. Þá
mun stéttarfélagið aðstoða okkar félagsmenn
sem ekki fengu ráðningu við að leita réttar
sins.“
Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Sam-
fylkingarinnar, segir nýráðnum sviðsstjóra ekki mikinn greiða gerðan með því að keyra
ráðninguna í gegn án samanburðar á hæfni og
reynslu. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingar-
innar og Vinstri grænna fóru fram á sundur-
liðaðan samanburð á þeim fimm umsækjend-
um sem voru metnir hæfastir en meirihlutinn
varð ekki við þeirri beiðni.
Dagur segir hið opinbera þurfa að hafa sig
allt við í samkeppni um hæft fólk og óttast að
þessi málsmeðferð verði til þess að fæla hæft
fólk frá því að sækja um stöður hjá borginni í
framtíðinni.
Gísli Marteinn Baldursson, formaður
borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins,
segir faghóp hafa farið yfir alla umsækjend-
ur og tekið viðtöl. „Það var samdóma álit fag-
hópsins að Stella væri hæfust í starfið og mér
finnst að minnihlutinn ætti að fagna því að
hæft fólk sé ráðið til starfa í stað þess að slá
pólitískar keilur. Það hefði ekki verið faglegt
ef borgarráð hefði farið gegn þeirri niður-
stöðu sem faghópurinn komst að.“
Gísli Marteinn segir hvorki félagsráðgjafa
né aðra þurfa að óttast að faglegt starf vel-
ferðarsviðs fari halloka með ráðningu nýs
sviðstjóra. hugrun@frettabladid.is
Stéttarfélag félags-
ráðgjafa mun senda
borgarstjóra og
borgarráði bréf þar sem skor-
að verður á yfirmann í vel-
ferðarmálum að endurskoða
ráðninguna.“
PÁLL ÓLAFSSON
FORMAÐUR STÉTTARFÉLAGS
FÉLAGSRÁÐGJAFA
Til vonar
og vara
varasalvi
Nú líka með
ALOE VERA
Slökkvum ljósin og
horfum á stjörnurnar
28. september kl. 22:00
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
39
50
09
/2
00
6
UMHVERFISMÁL Viðar Már Aðal-
steinsson, framkvæmdastjóri hjá
Reykjanesbæ, er sammála því að
alls konar mengun og eiturefni
geti legið í jörðu á varnarsvæðinu
á Keflavíkurflugvelli.
„Mönnum var ekkert heilagt
hér áður fyrr og sum efni lifa
lengi í jarðvegi án þess að fyrnast
eða eyðast.“
Viðar Már er sammála því að
það geti kostað hundruð milljóna
eða hugsanlega milljarða að
hreinsa mengað svæði. „Það þarf
að rannsaka allt svæðið og fá
óháð mat frá hæfum aðilum því
að menn vita ekki lengur hvað
þarna er. Vitneskjan er byggð á
munnmælum og skýrslum.“ - ghs
Reykjanesbær:
Rannsaka þarf
varnarsvæðið
MEÐ BÆJARSTJÓRANUM Viðar Már Aðal-
steinsson og Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar.
1 Hvað heitir föstumánuður
múslima sem hófst á dögunum?
2 Hver er formaður þingflokks
Samfylkingarinnar?
3 Hver er kynþokkafyllsti millj-
arðamæringur í heimi að mati
Financial Times?
SVÖRIN ERU Á BLAÐSÍÐU 38
LÖGREGLAN Lögreglan í Hafnar-
firði ætlar að kynna foreldrum
ástand mála í þeirra hverfi í
bænum í vetur með því að senda
reglulega tölvubréf. Þetta
verður gert í gegnum skólana og
verður til dæmis farið yfir
hópamyndanir unglinga og
eignaspjöll í bréfunum ef slíkt
er fyrir hendi í viðkomandi
hverfi.
Um tilraunaverkefni er að
ræða og er markmiðið að koma í
veg fyrir að börn og unglingar
leiðist af réttri braut.
Foreldrar eru hvattir til að
senda lögreglunni athugasemdir,
tillögur eða ábendingar. - ghs
Lögreglan í Hafnarfirði:
Upplýsir um
ástand hverfa
Vélarvana bátur
Björgunarskip Landsbjargar var kallað
út í gærmorgun vegna vélarvana báts
tíu sjómílur vestan við Skagaströnd. Í
bátnum voru þrír menn og sakaði þá
ekki. Bilaður gír reyndist orsökin.
LÖGREGLUFRÉTT
EFNAHAGSMÁL Byggingarvísitalan
mælist nú 352,3 stig og hefur
hækkað um 0,9 stig, eða 0,26 pró-
sent, frá því í síðasta mánuði.
Byggingarvísitalan hefur hækk-
að meira en vísitala neysluverðs
síðustu tólf mánuði. Munurinn
nemur 3,8 prósentum.
Byggingarvísitalan hefur
rokið upp, sem þýðir að verð-
bólga hefur verið meiri í bygg-
ingarkostnaði en almennt í
neysluverðinu. Byggingarvísi-
talan hefur hækkað um 11,4 pró-
sent síðustu tólf mánuði meðan
verðbólgan var aðeins 7,6 pró-
sent við mælingu nú í septemb-
er.
Guðrún Ragnheiður Jónsdótt-
ir, sérfræðingur á vísitöludeild
Hagstofunnar, segir að kostnað-
ur við að byggja vísitöluhúsið,
sem er vel skilgreint fjölbýlis-
hús á höfuðborgarsvæðinu, hafi
hækkað mikið síðustu tólf mán-
uði, ekki síst vegna hárra launa-
samninga innan byggingariðnað-
arins. Það sé kannski afleiðing af
því þensluástandi sem hafi ríkt.
„Vinnuliðirnir hafa hækkað
mjög mikið og þá aðallega vegna
launasamninga en efniskostnað-
urinn hefur hækkað líka. Þegar
gengið féll í vor komu fram tölu-
verðar hækkanir líka,“ segir
hún. - ghs
Kostnaður við nýbyggingar hækkar meira en verð á neysluvörum:
Launahækkanir segja til sín
STJÓRNMÁL Framboðslisti Fram-
sóknarflokksins í Norðvesturkjör-
dæmi verður valinn með póstkosn-
ingu. Þetta var samþykkt á fundi
kjördæmissambands flokksins á
laugardag. Stjórn kjördæmissam-
bandsins lagði til að farin yrði
önnur leið en sú tillaga var felld.
Tveir hafa gefið kost á sér í
fyrsta sæti listans. Þeir eru
Kristinn H. Gunnarsson alþingis-
maður og Magnús Stefánsson
félagsmálaráðherra. Kristinn
hafði mælt með að listinn yrði
valinn með póstkosningu, en þar
kjósa allir framsóknarmenn í
kjördæminu um öll sæti listans í
einni kosningu. - sþs
Listi Framsóknar í NV-kjördæmi:
Valinn með
póstkosningu
KRISTINN H. GUNNARSSON Auk Kristins
gefur Magnús Stefánsson kost á sér í
efsta sæti listans í Norðvesturkjördæmi.
Segja hæfari umsækjendur
hafa verið sniðgengna
Félagsráðgjafar eru ósáttir við ráðningu sviðsstjóra velferðarsviðs. Fimm félagsráðgjafar sóttu um stöðuna,
þar af tveir með doktorspróf í faginu. Stella Víðisdóttir viðskiptafræðingur var ráðin í stöðuna.
VELFERÐARSVIÐ REYKJAVÍKUR-
BORGAR Félagsráðgjafar eru afar
ósáttir við ráðningu nýs sviðsstjóra
velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og
segja að gengið hafi verið framhjá
hæfari umsækendum.
BYGGINGARVÍSITALA OG
NEYSLUVERÐ Á ÁRINU
J F M A M J J Á S
12%
11%
10%
9%
8%
7%
6%
5%
4%
3%
Tölurnar miðast við þróun á 12 mánaða
tímabili. Heimild: Hagstofa Íslands
7,6%
8,6%
4,4%
3,8%
11,4%
11,8%
7,1%
■ Byggingarvísitala
■ Vísitala neysluverðs
Ólöglegir innflytjendur
Tveir afrískir innflytjendur létust en
21 var bjargað er bát hvolfdi nálægt
Sikiley í gær. Báturinn stefndi að
ítölsku eyjunni Lampedusa, en hún er
nær Afríku en meginlandi Ítalíu. Nær
daglega eru gerðar tilraunir til að
smygla fólki frá Afríku til eyjunnar.
ÍTALÍA