Fréttablaðið - 25.09.2006, Síða 14
14 25. september 2006 MÁNUDAGUR
��������������
������������������
����������������������������
�������� ��������������������
�����������������������
�����
������
����
���
�����
������
������������
���
�����
������
�������
���
BESSASTAÐIR Loftslagsstofnunin í
Washington, Climate Institute,
veitti Ólafi Ragnari Grímssyni,
forseta Íslands, verðlaunin Global
Environmental Leadership Award
á ársþingi stofnunarinnar.
Verðlaunin hlaut Ólafur fyrir
að sýna forystu á alþjóðavett-
vangi í baráttunni gegn loftslags-
breytingum og fyrir framlag
íslensku þjóðarinnar við þróun og
nýtingu endurnýjanlegra orku-
gjafa.
Ólafur flutti erindi á ársþing-
inu þar sem hann fjallaði meðal
annars um árangur Íslands í nýt-
ingu endurnýjanlegra orkugjafa
og vilja íslenskra stjórnvalda,
fyrirtækja, stofnana og einstakl-
inga til að miðla þeirri þekkingu
til annarra þjóða.
Í umfjöllun bandaríska dag-
blaðsins Herald Tribune um árs-
þingið segir að íslenski forstinn
bjóði fram hið agnarsmáa land
sitt sem rannsóknarlíkan fyrir
heiminn meðan hann vinnur sig
gegnum þær hættur sem fylgi
hitnun jarðar. Haft er eftir Ólafi
að hvergi í heiminum sé hægt að
sjá merki loftslagsbreytinga jafn
skýrt og í norðrinu. Ísland sé nú
þegar að sjá skýr merki loftslags-
breytinga en búi jafnframt yfir
góðum ónýttum orkuauðlindum.
- sdg
Ársþing Loftslagsstofnunarinnar í Washington í Bandaríkjunum:
Forseta Íslands veitt verðlaun
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON Segir
vísindamönnum bera skylda til að koma
sinni vitneskju um þessi málefni á fram-
færi við almenning og stjórnvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
FJÖLMIÐLUN Nýtt tímarit, Tímaritið H, er að hefja
göngu sína og kemur fyrsta tölublaðið út í nóvember.
Ritstjóri er Steingerður Steinarsdóttir, fyrrverandi
blaðamaður hjá Fróða, og hefur hún þegar tekið til
starfa.
Tímaritið H verður ókeypis lífsstílsblað fyrir karla
og konur. Steingerður segir að fjallað verði um lífsstíl
frá öllum hliðum og allt sem þyki áhugavert. Í blaðinu
verði viðtöl, greinar og umfjöllun um allt milli himins
og jarðar, líka vöru og þjónustu. Á blaðinu verði tvær
forsíður og engin baksíða.
„Við erum tilbúin að fjalla um nánast allt sem gerir
lífið skemmtilegt,“ segir hún. Boðið verður upp á
svokallaða frískrift. „Við stefnum að því að þetta blað
verði frítt og ætlum að láta auglýsingakostnað borga
útgáfuna en gefum jafnframt fólki kost á að skrá sig
og fá það sent og borga þá eingöngu póstburðargjald-
ið,“ segir Steingerður.
Fyrsta tölublaðið verður 100 síður að stærð og
verður upplagið 25 þúsund eintök til að byrja með.
Útgáfufélagið Ásberg stendur að blaðinu en það eiga
þau Stefán Þórisson, fyrrverandi hóteleigandi, og
kona hans, Eva Auðunsdóttir snyrtifræðingur. Auður
Auðunsdóttir er framkvæmdastjóri. - ghs
STEINGERÐUR STEINARSDÓTTIR Fyrrverandi blaðamaður hjá
Fróða verður ritstjóri tímaritsins H. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Frítímaritið H kemur út í fyrsta sinn í nóvember:
Lífsstíll fyrir karla og konur
STJÓRNMÁL Auður Lilja Erlings-
dóttir var kjörin formaður Ungra
vinstri grænna á
landsfundi
samtakanna fyrr
í mánuðinum.
Auður Lilja
er 27 ára
stjórnmálafræð-
ingur og er að
ljúka meistara-
námi í opinberri
stjórnsýslu.
Meðal þess
sem landsfundur
ályktaði um var
launaleynd sem ung vinstri græn
vilja afnema, þau fagna lögum um
reykingabann, vilja að skólabörn-
um verði heldur kynnt trúarbrögð
án hlutdrægni og ítreka kröfu sína
um aðskilnað ríkis og kirkju. - bþs
Ung vinstri græn:
Auður Lilja
kjörin formaður
AUÐUR LILJA
ERLINGSDÓTTIR
GENF Manfred Novak, sérfræðing-
ur Sameinuðu þjóðanna á sviði
ómannúðlegrar meðferðar fanga,
segir að pyntingar á föngum hafi
versnað til muna í Írak, eftir að
Saddam Hussein var komið frá
völdum. Áður hafi ákveðin regla
verið á hlutunum en nú vaði uppi
öryggissveitir, herskáar einka-
hersveitir og ýmsir hatursmenn
hernámsins. Novak segir ástandið
í Írak „farið gjörsamlega úr
böndunum“.
Mannréttindanefnd SÞ í Írak
skýrði nýlega frá því í skýrslu að
ekki væri óalgengt að finna merki
ógeðfelldra misþyrminga á líkum
í líkhúsinu í Bagdad. - kóþ
Pyntingar í Írak:
Verri eftir brott-
hvarf Saddams
RAFAEL NADAL EINBEITTUR Á SVIP
Spænski tennisleikarinn atti kappi við
hinn ítalska Filippo Volandri í Santand-
er á Norður-Spáni í gær og f fór með
sigur af hólmi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP