Fréttablaðið - 25.09.2006, Qupperneq 24
25. september 2006 MÁNUDAGUR4
Ellý Ármannsdóttir, þula og
ritstjóri, lét nýverið skipta
um gólfefni á stigaganginum
sínum. Hún valdi að setja
steinteppi á ganginn en færst
hefur í aukana að fólk velji það
gólfefni í heimahús.
„Ég var búin að leita lengi að rétta
gólfefninu til að setja á inngang-
inn hjá mér,“ segir Ellý Ármanns-
dóttir. „Ég vildi fá gott gólfefni
þangað inn því það er það fyrsta
sem maður stígur á þegar komið
er inn á heimilið. Síðan var ég í
Blue Lagoon-versluninni á Lauga-
vegi og féll fyrir gólfinu sem er
þar en það er rosalega fallegt
steinteppi sem heillaði mig.“
Ellý hafði samband við Malland
gólflausnir þar sem hún keypti
efni og vinnu saman í pakka.
„Steinteppið er sko ekki síðra í
heimahúsum en í verslunum og
fyrirtækjum,“ segir Ellý, sem er
mjög ánægð með útkomuna. „Svo
er þetta mun ódýrara en að fá sér
parkett. Steinteppið var einnig
mun ódýrara en kókosteppið sem
ég ætlaði að fá mér. Ég valdi mér
marmarakurl sem mér finnst hafa
komið rosalega flott út. Þeir hjá
Malland unnu verkið fyrir mig,
sáu líka um alla undirbúnings-
vinnuna, og þetta tók allt í allt tvo
daga. Ég reif upp parkett sem var
á innganginum en flísarnar voru
það vel límdar niður að það þurfti
ekki að rífa þær upp. Við bara ryk-
suguðum vel og skelltum svo
steinteppinu á. Þetta tók enga
stund.“
Kristinn Sigurharðarson hjá
Mallandi gólflausnum segir sífellt
færast í aukana að fólk kjósi stein-
teppi á heimili sín. „Kostirnir við
steinteppin eru að þau eru ódýr,
hljóðeinangrandi, auðvelt að þrífa
þau og í raun er ekkert viðhald á
þessu,“ segir Kristinn. „Einnig er
að komast á laggirnar fyrirtæki
sem sérhæfir sig í þrifum á stein-
teppum.“ Hjá Mallandi fæst mikið
úrval af steinteppum sem skiptast
eftir grófleika og svo lit. „Svo má
blanda saman að vild. Við erum
með sandkassa hér fyrir viðskipta-
vinina að leika sér í og þar má
prófa sig áfram í leitinni að rétta
gólfefninu,“ segir Kristinn og
hlær.
Ellý fer ekki ofan af því að hún
hafi valið rétta efnið á stigagang-
inn sinn. „Það er svo auðvelt að
þrífa þetta,“ segir Ellý hæstánægð
„Með húsið fullt af börnum og allir
á skítugum skóm. Komi einhver
drulla þá læt ég hana bara þorna
og svo ryksuga ég það upp. Þetta á
eftir að endast að eilífu.“
johannas@frettabladid.is
Steinteppi fyrir heimilið
Gísli Sigurðsson frá Mallandi gólflausnum leggur lokahönd á verkið en hjá Mallandi
má kaupa efnivið og vinnu í sama pakka.
Marmarakurlinu er smurt á gólfið með múrbrettum.
Epoxy-bindiefni er blandað út í sandinn
sem annað hvort er marmari eða kvars.
Ellý Ármannsdóttir segir börnin á heimilinu; Einar Alex og Ármann Elías Jónssyni og
Kríu Freysdóttur, vera ánægð með nýja gólfefnið enda er það auðvelt í þrifum og því
minna um skammir fyrir skítuga skó. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Stigagangurinn er stílhreinn
og fallegur eftir breytingu.
Liturinn sem Ellý valdi sér á
steinateppið er bjartur og hlýr.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Fyrir breytinguna. Ellý reif
upp parkett sem þakti
hluta gangsins. Ekki reynd-
ist nauðsynlegt að brjóta
upp flísarnar heldur var
steinateppið lagt yfir þær.
FYRIR
Stigagangur Ellýjar
...OG EFTIR
Evíta
Hárgreiðsla og gjafavörur
Starmýri 2, 108 Rvík, s. 553-1900 www.evita.is
Gjafavörur í úrvali
Ný sending af luktum og lömpum
Hárþjónusta á frábæru verði,
gerið svo vel að panta tíma.
MYND
Hafnarfi rði S: 565 4207
www. ljosmynd.is
Pantaðu
jólamyndatökuna
tímanlega.