Fréttablaðið - 25.09.2006, Qupperneq 25
MÁNUDAGUR 25. september 2006 5
Veggfóður má nota á fleira en
veggi.
Síðustu ár hefur veggfóður verið
mjög vinsælt og margir hafa
notað það á nánast alla veggi
heimila sinna. Veggfóður
má þó nota á fleira en veggi
og ef að mikill afgangur er
af veggfóðrinu er tilvalið að
nota það á pappakassa eða
trékassa sem hægt er að
geyma ýmislegt í. Kassar
sem eru veggfóðr-
aðir með litríku
veggfóðri eru til
dæmis tilvaldir
sem leikfangakassar
og geta þess vegna
verið í stíl við veggina í barnaher-
berginu. - eö
Litríkt fyrir leikföngin
Pappakassar geta alveg
dugað sem leikfangakass-
ar í einhvern tíma ef lífgað
er upp á þá.
Litríkt veggfóður er tilvalið til að búa til
leikfangakassa.
Veggfóðrað í
hólf og gólf
EFTIR AÐ HAFA VERIÐ VINSÆLT Í
FJÖLDAMÖRG ÁR DATT VEGGFÓÐ-
UR ÚR TÍSKU Á SÍÐUSTU TVEIMUR
ÁRATUGUM. UNDANFARIÐ HEFUR
ÞESSI HEIMILISPRÝÐI ÞÓ FENGIÐ
UPPREISN ÆRU.
■ Pappírsveggfóður er elsta
tegund veggfóðurs og nýtur nú
vaxandi vinsælda á nýjan leik.
Pappírsveggfóður var áður ódýr
framleiðsla en í dag er sumt
dýrasta og besta veggfóðrið úr
pappír. Það hefur betra yfirborð en
áður og þolir þvott, auk þess sem
það fæst með eða án sjálflímandi
bakgrunns.
■ Vínylveggfóður er auðvelt
að setja á veggi og því er það
vinsælasta veggfóðrið í dag. Það er
til með margs konar áferð, sléttri
og grófri og hentar í flest herbergi
nema þar sem raki er mikill.
■ Blautrýmisveggfóður er sterkari
gerð vínylveggfóðurs og er einkum
notað á baðherbergi og í þvotta-
hús. Það dregur ekki í sig raka og
samskeytin eru soðin saman með
sérstökum vökva. Afbrigði af þessu
veggfóðri er kallað veggvínyll en til
að setja það upp þarf kunnáttu og
sérstök verkfæri.
■ Tekstílveggfóður þolir ekki raka
en hentar vel í flest herbergi, að
eldhúsinu undanskildu.
■ Glertrefjastrigi, eða vefur, hefur
verið á markaði í mörg ár. Hann
er hægt að mála og má jafnvel
nota á baðherbergi. Eini gallinn við
glertrefjastrigann er sá að hann á
það til að losna frá veggnum og
mynda fellingar ef veggurinn er
ekki stöðugur.
■ Veggfóður til málunar, eða
náttúrustrigi, er í dag mikið notað í
stað glertrefjastrigans. Það er hægt
að fá í ótal munstrum og það tekur
í sig minni málningu en striginn.
Einfalt í uppsetningu og auðvelt að
fjarlægja.
Að lokum er vert að minnast
á veggborða, en þá má nota
meðal annars til að skipta vegg
lárétt, líma upp undir loft eða á
miðjan vegg til að gera herbergið
notalegra.
(Heimildir fengnar úr bókinni Verk að vinna)
Verði maður
fyrir þeirri
ógæfu að
verða var við
einkennileg
og framandi
skordýr á
heimili sínu
er eðlilegt að
vilja eyða þeim
hið fyrsta. Hins
vegar er eitrun
ekki alltaf
skynsamlegasta lausnin og því best
að láta greina skordýrategundina
áður en farið er í að eyða henni.
Náttúrufræðistofnun Íslands sér um
slíkar greiningar og að henni lokinni
er óhætt að hafa samband við
meindýraeyði um hvaða skref skulu
tekin næst.
hvað á að gera?}
Óþekkt skordýr
EKKERT GERVIGRAS!
NÝTT OG BETRA GRAS...
WWW.GRAS.IS