Fréttablaðið - 25.09.2006, Blaðsíða 60
25. september 2006 MÁNUDAGUR40
Ragnar Axelsson er einn af okkar fremstu ljósmynd-
urum. Þegar hann er spurður hvernig draumahúsið
hans líti út er hann fljótur að svara í gríni að það væri
snjóhús. En fyrir utan það væri hann líka til í bjálka-
hús á tveimur hæðum. „Ég væri til í að komast aðeins
út úr bænum með það en ekki of langt, kannski upp
í Mosfellsdal,“ segir Ragnar. „En ég er ekki viss um
að konan mín myndi samþykkja það,“ bætir hann við
og hlær.
Ragnar vill helst sjá í sjóinn og hafa svolítið vítt
í kringum sig. Garðurinn þyrfti ekki að vera stór og
hann myndi vilja hafa hann náttúrulegan. „Ég væri líka
til í vinnustofu í kofa úti í garði,“ segir Ragnar.
Hann hefur engan sérstaka áhuga á bílnum í inn-
keyrslunni en hann vill ekki sportbíl. „Mér finnst gaman
að horfa á fallega bíla og skiptir þá engu hvort ég á þá
eða einhverjir aðrir. Ég átti einu sinni Land Cruiser 70
á stórum dekkjum og það er besti bíll sem ég hef átt
svo ég væri til í að fá góðan jeppa í innkeyrsluna.“
DRAUMAHÚSIÐ MITT RAGNAR AXELSSON LJÓSMYNDARI
Fallegt bjálkahús
Listasafn Einars Jónssonar
rís upp af háum, þungum
stalli á Skólavörðuhæð
líkt og ein höggmynda
listamannsins sjálfs, enda
var það reist eftir teikningu
hans þótt Einar Erlends-
son húsameistari hafi áritað teikninguna að safninu. Sagan um aðdraganda
byggingar þess er merkileg, en Einar bauð íslensku þjóðinni verk sín að
gjöf fengi hann safn reist undir þau. Með fjárstyrk frá ríkinu og landssöfnun
tókst að verða við því. Hornsteinn var lagður að safninu árið 1916 og það
vígt á Jónsmessunótt 1923. Bygging hússins markaði tímamót í íslenskri
myndlist því með því eignuðust Íslendingar sitt fyrsta listasafn, en það hefur
að geyma vel á þriðja hundrað verk eftir Einar frá sextíu ára starfsferli, allt
frá málverkum upp í höggmyndir. Afsteypur af verkum Einars prýða einnig
garðinn svo engu líkara er en að haldið sé í ævintýraveröld þegar gengið er
inn um garðhliðið. (heimild www.skulptur.is)
LISTASAFN
EINARS
JÓNSSONAR
Leiðrétting
Rangt var farið með vígslu-
ár Heimilisiðnaðarsafnsins á
Blönduósi í myndatexta með
grein um arkitektinn Guðrúnu
Jónsdóttur í fasteignablaði Frétta-
blaðsins 18. september. Það var
vígt 2003 en ekki 1993. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi
Flugsafn Íslands
fær nýtt hús
FYRSTA SKÓFLUSTUNGAN AÐ
NÝJU HÚSI FLUGSAFNS ÍSLANDS
Á AKUREYRI VAR TEKIN FYRR Í
MÁNUÐINUM.
Sigrún Björk Jakobsdóttir, forseti
bæjarstjórnar Akureyrar, tók fyrstu
skóflustunguna fyrr í mánuðinum
að nýju húsi Flugsafns Íslands.
Flugsafn Íslands er minjasafn um
íslenska flugsögu. Safnið hefur að
geyma sögufrægar minjar; flugvélar,
flugvélahluti og aðra muni, jafn-
framt því sem saga íslenskrar flug-
sögu er rakin í máli og myndum.
Safnið var stofnað í maí árið 1999
og hefur starfsemi þess vaxið hratt
og vinsældirnar aukist á undanförn-
um árum. Unnið hefur verið að fjár-
mögnun fyrir nýrra og stærra húsi
safnsins og nú eru framkvæmdir við
byggingu þess loks hafnar. Húsið
verður 2.100 fermetrar að stærð,
næstum fimmfalt stærra en núver-
andi hús safnsins. - jóa
Framkvæmdir eru nú hafnar að
nýju húsnæði fyrir Flugsafn Íslands
á Akureyri.
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
4/8-
10/8
67
11/8-
17/8
90
18/8-
24/8
83
25/8-
31/8
111
1/9-
7/9
121
8/9-
14/9
120
ÚTSALA!
20-60% AFSLÁTTUR
PARKET OG HURÐIR Í MIKLU ÚRVALI
PARKET FRÁ KR. 999.- fm.
HÁGÆÐA FRAMLEIÐENDUR FRÁ ÞÝSKALANDI, FINNLANDI, HOLLANDI,
DANMÖRKU OG BANDARÍKJUNUM
PARKET & GÓLF
ÁRMÚLI 23
108 REYKJAVÍK
SÍMI: 568 1888
FAX: 568 1866
WWW.PARKETGOLF.IS
PARKET@PARKETGOLF.IS
ÁRATUGA ÞEKKING, ÞJÓNUSTA OG RÁÐGJÖF
ka
ld
al
jó
s
2
0
0
6
PARKET & GÓLF • ÁRMÚLA 23