Fréttablaðið - 25.09.2006, Page 61
MÁNUDAGUR 25. september 2006 21
AF NETINU
Umræðan
Innflytjendur og samhjálp
Um daginn horfði ég á kvik-mynd frá árinu 1994: „When a
Man Loves a Woman“ með Andy
Garcia og Meg Ryan í aðalhlut-
verkum. Hún fjallar um hjón sem
á yfirborðinu líta út fyrir að vera
hamingjusöm en síðar kemur í ljós
að konan er virkur alkóhólisti. Í
ástar- og hjónaböndum deilir fólk
ekki einungis hamingju heldur
líka erfiðleikum.
Meginþema sögunnar er sam-
band hjónanna en á bak við söguna
er ekki síður mikilvægt mál, en
það eru AA samtökin, (Alcoholics
Anonymous), sem eru frjáls
félagasamtök fólks með áfengis-
sýki. Þau eru mjög virk um allan
heim og ekki síst á Íslandi. Flest
okkar hljóta að kannast við sam-
tökin. Samkvæmt mínum skilningi
einkennigst starfsemi AA af því
að fólk hjálpist að á jafnræðis-
grundvelli. Kannski er það vegna
séreinkennis áfengissýkinnar, að
manni batni aldrei algjörlega, að
það gefst svo vel í AA samtökun-
um að þeir sem eru í góðu lagi og
þeir sem eiga í erfiðleikum haldi
sig saman á samkomum.
Kvikmyndin vakti mig til
umhugsunar um nokkur atriði
sem við getum lært af AA og hugs-
anlega notað í málefnum innflytj-
enda hérlendis. Að sjálfsögðu eru
áfengismál og innflytjendamál
ólíkir málaflokkar. En það sem ég
legg áherslu á hér eru ekki mála-
flokkarnir sjálfir, heldur viðhorf
manna gagnvart erfiðleikum
sínum og fólkinu í kringum sig.
Eftirfarandi er hugleiðing mín um
innflytjendamál.
Að þiggja hjálp er hugrekki
Það er alls ekki auðveld ákvörðun
að tala um vandamál sín við annað
fólk og að biðja um aðstoð. Jafnvel
þótt fagfólk veiti aðstoðina getur
það verið erfitt fyrir viðkomandi
að tjá sig við ókunnuga.
Utan Vestur-Evrópu og
Norður-Ameríku er
mun sjaldgæfara að
fólk leiti til sérfræð-
inga eftir aðstoð. Í
sumum menningar-
heimum er skömm að
tala um vandamálin
fyrir utan fjölskylduna
og jafnvel vanvirðing
að fá aðstoð.
Þetta er vissulega
skiljanlegt. En ég vil
leggja áherslu á nokkur atriði hér
á eftir, lesi einhver sem á erfið-
leikum þessa grein.
Enginn kemur til þín ef þú bara
bíður. Margir aðilar, eins og starfs-
fólk Alþjóðahúss eða þjónustufull-
trúar í ýmsum stofnunum, eru
reiðubúnir til að hlusta á þig. En
við getum ekki fundið þig nema þú
komir til okkar.
Enginn okkar hlær að þér né
lítur niður á þig. Mörg þekkjum
við af eigin reynslu hvernig það er
að vera innflytjandi, og við erum
fólk eins og þú. Við erum eins, en
ekki öðruvísi. Við erum á sama
báti.
„Aldrei of seint“ segir fólk
stundum, en því er ég ekki sam-
mála. Betra er að leita aðstoðar
áður en málið verður óleysanlegt.
Þú tapar engu á því að fá hjálp
núna, frekar en síðar.
Að meta sjálfan sig rétt
Mér skilst að fólk í AA
öðlist (eða uppskeri)
sjálfstraust í gegnum
það að þiggja aðstoð og
veita öðrum aðstoð. Mér
finnst það sama vera
mikilvægt í málefnum
innflytjenda.
Það er mjög eðlilegt
að upp komi erfiðleik-
ar við búsetu í nýju
landi, sérstaklega
fyrstu árin. En þetta er
ekki innflytjendum að kenna, og
ekki heldur Íslendingum. Að sjálf-
sögðu berum við öll sem hér búum
ábyrgð á því að bæta móttökukerfi
og losa fólk að mestu við óþarfa
erfiðleika. En erfiðleikar sem fel-
ast í búferlaflutningum á milli
landa munu ávallt vera til staðar í
einhverjum mæli, burtséð frá
samfélagslegum endurbótum. Ég
tel það óhjákvæmilegt að maður
upplifi erfið tímabil í flutnings- og
aðlögunarferli því sem búseta í
nýju landi hefur í för með sér.
Tímabil þar sem maður jafnvel
missir traust á sjálfum sér.
Það sem er mikilvægt (sérstak-
lega ef viðkomandi er maður sjálf-
ur) er að við mistúlkum ekki þetta
ástand sem heimsku eða leti. Í
flestum tilfellum höfum við búið í
heimalöndum okkar sem sjálf-
stæðir einstaklingar og við höld-
um því áfram hérlendis að loknu
vissu skeiði. „Aðlögunarferli“ inn-
flytjenda helst einmitt nákvæm-
lega í hendur við ferli aukins
sjálfstrausts þeirra.
Ennþá innflytjandi?
Síðasti punkturinn sem mig langar
til að fjalla um er dálítið viðkvæm-
ur. Ég tel það óþarfa að við (inn-
flytjendur) höldum fast í þá ímynd
að við séum „innflytjendur“ eftir að
við komumst yfir mestu byrjunar-
erfiðleikana. Hins vegar þykir mér
leitt ef við, sem búin erum að sam-
stilla líf okkar íslensku þjóðlífi,
gleymum eigin erfiðleikum eins og
þeir hafi aldrei verið til. Reynsla og
þekking okkar sem höfum verið
búsett hér lengi hlýtur að geta nýst
vel til að auðvelda líf þeirra inn-
flytjenda sem eru nýkomnir.
Ég er búinn að vera búsettur hér
í fjórtán og hálft ár. Í samanburði
við þá sem hafa búið hér í þrjátíu ár
skortir mig enn ýmsa þekkingu um
landið, og íslenska mín er síðri.
Samt get ég líka gert ýmislegt
jákvætt fyrir „nýkomið“ fólk og það
gleður mig mjög.
En þar sem ég beinlínis vinn við
að aðstoða innflytjendur væri
ósanngjarnt að bera mig saman við
aðra innflytjendur í þessu sam-
hengi. Reyndar þekki ég marga sem
sífellt veita fólki frá heimalandi
sínu aðstoð. Engu að síður get ég
ekki neitað því að mig dreymir um
að aðeins fleiri leggi sitt af mörkum
við að hjálpa öðrum innflytjendum,
eða a.m.k. sýna málaflokknum
áhuga. Manni getur tekist að aðlag-
ast íslensku samfélagi gjörsamlega
en maður getur ekki þurrkað út
hluta lífs síns.
Ef aðstoð innflytjenda til ann-
arra innflytjenda er ekki fullnægj-
andi er það kannski vegna þess að
skipulaging slíks aðstoðarkerfis
hefur ekki verið nægilega raunsæ
eða áhugaverð. En á sama tíma
verðum við að viðurkenna þá stað-
reynd að fáir innflytjendur hafa
svarað kalli til aðstoðar þrátt fyrir
mörg tækifæri, t.d. frá Alþjóðahús-
inu og Rauða krossinum undanfarin
ár. Því er það einnig mikilvægt og
eftirsóknarvert að við innflytjend-
ur veltum þessum málum fyrir
okkur. Vegna þeirrar sýnar: að allir
eigi að standa saman og hjálpast að,
dáist ég að fólki í AA samtökunum.
Höfundur er prestur innflytj-
enda.
Að þiggja hjálp og veita – við hjálpumst að
TOSHIKI TOMA
Beint lýðræði
Viðbrögð við leiðara Þorsteins Páls-
sonar.
Kosninga kerfi það sem notað er á
Íslandi er handónýtt og hefur alltaf
verið. Þetta kerfi er hannað fyrir flokk-
ana en ekki fyrir fólkið !
Má vera að ég sé bara svona ein-
faldur í hugsun, en mér fynnst að það
eigi að kjósa menn en ekki flokka.
Það er að í kosningum komi listar
meö nöfnum þeirra sem vilja vinna
verkið (þ.e. sjá um stjórnmálin).
Kerfið mundi virka þannig að sá sem
fengi flest athvæðin yrði verkstjór-
inn (forsetisráðherra) og svo koll af
kolli. Allir sem vildu bjóða sig framm
hefðu sín stefnumál og markmið. Við
kjósendurnir myndum þá getað kosið
um málefnin og mennina líka og ef
þeir mundu svo ekki standa við það
sem þeir sögðu fyrir kosningarnar til
að ná kjöri væri ekki mikið mál að
refsa þeim fyrir svikin... það er ekki
kjósa þá aftur...
Kerfið í dag er hinnsvegar þannig
að það skiptir engu hvað menn segja
eða svíkja, þeir koma bara aftur með
ný loforð sem er að sjálfsögðu engin
ætlun að standa við frekar en fyrri
daginn og heimta að vera endur
kjörnir !
Allavega þá er ég ekkert á leiðinni
að fara að kjósa á meðan ekki er
hægt að kjósa neitt annað en eitt-
hverjar klíkur sem gefa ekkert fyrir
hvað kjósendum fynnst nema rétt
á meðan verið er að narra af þeim
athvæðin !
Og hana nú !!!
Becum59 skrifar á Skoðanir á Vísir.is.
Fulltrúalýðræði
Kerfið gengið sér til húðar?
Að undanförnu hef ég verið að velta
því fyrir mér hvort ekki væri rétt að
fara að taka upp beint lýðræði hér
á Íslandi. Tæknin er fyrir hendi og
þekkingin hjá almenningi líka, það
eina sem vantar er að stjórnmála
mennirnir séu tilbúinr til að sleppa
völdunum
Hrellir skrifar á Skoðanir á visir.is
Það er mjög eðlilegt að upp
komi erfiðleikar við búsetu í
nýju landi, sérstaklega fyrstu
árin. En þetta er ekki inn-
flytjendum að kenna, og ekki
heldur Íslendingum.