Fréttablaðið - 25.09.2006, Page 62
25. september 2006 MÁNUDAGUR22
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn
hér til hliðar má
senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.
is eða hringja í síma
550 5000.
����
�� �����
���������
�����
����������
�����������������������������������������
����������������������� �������������
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Ástkær maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, sonur, bróðir og mágur,
Magnús Magnússon
pípulagningameistari, Hallanda,
Árnessýslu,
sem lést af slysförum laugardaginn 16. september,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
þriðjudaginn 26. september kl. 13.00.
Sigríður Harðardóttir
Magnús St. Magnússon Ingunn Jónsdóttir
Sigurjón Magnússon Vigdís Birna Hólmgeirsdóttir
Ólafur Björn Magnússon
Jónatan Mikael og Benjamín Magnús
Guðrún E. Guðmundsdóttir Magnús St. Magnússon
Margrét Magnúsdóttir
Sigríður Magnúsdóttir Einar Gylfason
Guðmundur Magnússon Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir
Bandaríski rithöfundurinn William Faulkner fæddist
á þessum degi árið 1987 í Mississippiríki í Banda-
ríkjunum. Móðir hans var afar bókhneigð og hélt
bókum að William og bræðrum hans
þremur, en faðir hans var fjármálastjóri við
Mississippi-háskóla.
Faulkner þótti góður nemandi en missti
áhugann á námi og hætti í menntaskóla.
Hann sýslaði við hin og þessi störf og orti
ljóð.
Árið 1918 yfirgaf Faulkner Mississippi og
skráði hann sig í herinn en fyrri heimsstyrj-
öld lauk áður en þjálfun hans var lokið og
hann sneri aftur á heimaslóðirnar.
Nágranni hans stóð straum af útgáfu-
kostnaði fyrstu ljóðabókar Faulkners, sem kom
út árið 1924. Fyrsta skáldsaga hans leit dagsins
ljós tveimur árum síðar. Árið 1929 kvæntist hann
kærustu sinni úr menntaskóla, en hún hafði gifst- og
skilið - við annan mann í millitíðinni og átt með
honum tvö börn. Næstu ár gaf hann út nokkrar
skáldsögur, þar á meðal Ljós í ágúst og Absolom
Absolom, þar sem hann fetaði ótroðnar slóðir á sviði
skáldsagnagerðar. Það dugði hins vegar
ekki til að framfleyta fjölskyldunni, svo
hann seldi smásögur til dagblaða og tíma-
rita og kvikmyndahandrit til Hollywood, þar
á meðal handritið að myndinni Svefninn
langi með Humprey Bogart í aðalhlutverki.
Árið 1946 fór vegur hans vaxandi þegar
hann gaf út smásagnasafnið Portable
Faulkner og þremur árum síðar hlaut hann
bókmenntaverðlaun Nóbels. Sagan segir
að John Steinbeck hafi leitað ráða hjá
Faulkner þegar hann hlaut sjálfur Nóbels-
verðlaunin árið 1962. Faulkner sagðist engin ráð geta
gefið, hann hefði verið of drukkinn við verðlaunaaf-
hendinguna til að muna nokkuð eftir henni.
Faulkner lést úr hjartaslagi sama ár, 65 ára
gamall.
ÞETTA GERÐIST: 25. SEPTEMBER 1897
William Faulkner kemur í heiminn
WILLIAM
FAULKNER
Örn Árnason leikari man vel eftir
fyrsta starfinu sínu. „Þegar ég var lít-
ill var ég oft sendur niður í Kaup-
félagið í Hrísey að mjólka beljuna,“
segir Örn. „Beljan var sem sagt vél-
dæla sem seldi mjólk,“ útskýrir hann.
„Mjólkin var flutt frá Akureyri til
Hríseyjar í stórum brúsum. Brúsun-
um var hent inn í kælinn og svo lá rör
upp úr þeim og fram í búðina. Maður
stillti sínum eigin brúsa undir stútinn,
merkti við þrjá lítra og fékk þá í brús-
ann,“ segir hann. Spurður hvort hann
hafi þegið borgun fyrir þessa iðju sína
segir Örn launin hafa verið mat. „Mér
var haldið á lífi í staðinn,“ segir hann
og hlær. „Fyrsta starfið sem ég fékk
laun fyrir var hins vegar á sjó með
pabba. Maður lagði aflann inn í Kaup-
félagið og fékk innleggsnótu í stað-
inn.
Í lok sumars leysti maður svo inn-
eignina út,“ segir Örn. „Ég var korn-
ungur þegar þetta var, svo tóku nú
önnur áhugamál en sjómennska við,
en þau fékk ég ekkert borgað fyrir,“
segir hann og hlær. - sun
FYRSTA STARFIÐ: ÖRN ÁRNASON LEIKARI
Mjólkaði vélbelju í Hrísey
ÖRN ÁRNASON LEIKARI Var haldið á lífi
að launum fyrir fyrsta starf sitt.
AFMÆLI
Sigurður Guð-
mundsson land-
læknir er 58 ára.
Bera Nordal
listfræðingur er
52 ára.
Markús Sigur-
björnsson hæsta-
réttardómari er
52 ára.
Arnar Páll
Hauksson frétta-
maður er 52 ára.
Dofri Hermanns-
son varaborgar-
fulltrúi er 37 ára.
HAUKUR F. HANNESSON: FORMAÐUR EVRÓPSKA SUZUKI-SAMBANDSINS
Aðferð sem má heimfæra
á allar námsgreinar
„Jújú, þessi fylgja heilmikil völd,“ segir
Haukur F. Hannesson og hlær en hann
var kjörinn formaður evrópska Suzuki-
sambandsins á dögunum. „Þetta eru
regnhlífarsamtök þeirra landssamtaka
í Evrópu sem leggja stund á Suzuki-tón-
listarkennslu. Svo sit ég líka í stjórn
Alþjóða Suzuki-sambandsins og verð
reyndar formaður þeirra á næsta ári,
því sá háttur er á að stjórnarfélagar
skiptast á setu í formannsstól.“
Suzuki-tónlistarkennsla byggir á
heimspeki japanska fiðluleikarans
Shinichi Suzuki og þeirri hugmynd að
börn geti lært tónlist á svipaðan hátt og
móðurmálið. „Fyrir hálfri öld var sú
skoðun algeng að sumir gætu einfald-
lega ekki lært tónlist en Suzuki taldi að
með því að búa börnum hvetjandi
umhverfi væri hægt að þroska tónlist-
arhæfileika þeirra betur en ella.
Einkenni aðferðar hans er að börnin
byrja mjög ung að læra, jafnvel niður í
fjögurra ára. Til að byrja með er mesta
áherslan lögð á að hlusta og nótur eru
ekki kynntar til sögunnar fyrr en seinna
meir. Bæði er kennt í einkatímum og
hóptímum og foreldrarnir taka virkan
þátt í kennslunni og fara meira að segja
á námskeið og læra aðeins á hljóðfæri
barnanna. Þessa heimspeki má í raun
heimfæra á allar námsgreinar en hefur
aðallega verið notuð í tónlist.“
Haukur var einn af brautryðjendum
tónlistarkennslu að hætti Suzukis hér á
Íslandi á 9. áratugnum og tók meðal
annars þátt í að stofna Suzuki-tónlistar-
skólann árið 1988. „Þróunin á Íslandi
hefur verið mjög góð og vegur þessar-
ar aðferðar fer vaxandi. Samanborið
við önnur Evrópulönd eru flestir
menntaðir Suzuki-kennararar á hverja
tíu þúsund íbúa á Íslandi.“ Haukur
hefur búið í Svíþjóð undanfarin tólf ár
og er aðstoðarskólameistari í tónlistar-
skóla þar í landi.“
HAUKUR F. HANNESSON Tók þátt í stofnun
Suzuki-skólans á Íslandi árið 1988.
KENNSLUSTUND Börn byrja yfirleitt mjög ung í Suzuki-tónlistarkennslu og er aðaláherslan lögð á að hlusta frekar en að lesa nótur.
DIMITRI SHOSTAKOVICH
FÆDDIST FYRIR RÉTTRI ÖLD
„Skapandi listamaður vinnur að næsta
verki sínu vegna þess að hann var ekki
fyllilega sáttur við það síðasta.“
Shostakovich er eitt merkasta tónskáld Rússa fyrr og
síðar.
MERKISATBURÐIR
1950 Sameinuðu þjóðirnar taka
völdin í borginni Seúl í
Suður-Kóreu.
1957 Yfir þúsund hermenn
fylgja níu svörtum
nemendum inn í skóla í
Little Rock en nokkrum
dögum fyrr hafði æstur
múgur meinað þeim
inngöngu í skólann.
1958 Fyrsti breski togarinn er
tekinn innan nýju tólf
mílna landhelginnar.
1975 Lagarfossvirkjun er vígð.
1983 Gunnar Thoroddsen
forsætisráðherra andast,
72 ára.
2000 Vala Flosadóttir, 22 ára,
vinnur bronsverðlaun
á ólympíuleikunum
í Sydney með því að
stökkva 4,50 metra í
stangarstökki.