Fréttablaðið - 25.09.2006, Page 65
[TÓNLIST]
UMFJÖLLUN
Crazy Itch Radio er fjórða plata
Basement Jaxx. Sveitin, sem er
skipuð þeim Simon Ratcliffe og
Felix Buxton var stofnuð í Lond-
on árið 1994 og er ein af stóru
danstónlistarsveitunum sem voru
áberandi í bresku tónlistarlífi á
seinni hluta 10. áratugarins. Flest-
ar þessara sveita eru hættar í dag
(Leftfield, Orbital, The Future
Sound of London...) eða komnar
út í tómt rugl (Prodigy). Basem-
ent Jaxx er hins vegar enn í fullu
fjöri. Síðasta Basement Jaxx plat-
an Kish Kash sem kom út fyrir
þremur árum olli nokkrum von-
brigðum eftir hinar frábæru
Remedy (1999) og Rooty (2001).
Það fyrsta sem hægt er að
segja um Crazy Itch Radio er að
hún er mjög ólík fyrri plötunum.
Hún er byggð upp í kringum
útvarpsþema með stuttum kynn-
ingarstefjum hér og þar eins og
maður heyrir á öllum útvarps-
stöðvum. Crazy Itch Radio er ekki
jafn hreinræktuð danstónlistar-
plata og fyrri plöturnar. Þeir
Simon og Felix leika sér hér með
alls konar stílbrögð og tónlistar-
stefnur. Fönk, soul og house eru
áberandi, en dub, austur-evrópsk
þjóðlagatónlist, lúðrasveitartón-
list og indversk tónlist eru á
meðal þess sem gefur einstökum
lögum lit. Það er greinilegt að
Simon og Felix eru ekkert að
verða uppiskroppa með hugmynd-
ir. Sköpunargleðin er enn til stað-
ar. Eins og áður hafa þeir líka
fengið til liðs við sig úrvals söng-
krafta, þ.á.m. bresku soul-söng-
konuna Lindu Lewis og Vulu Mal-
inga sem söng Oh My Gosh með
þeim auk þess sem nýstirnið Lily
Allen syngur bakraddir í einu
lagi.
Það er margt skemmtilegt á
Crazy Itch Radio, en mér finnst
sums staðar vanta aðeins upp á
kraftinn. Þó að platan nái ekki
sömu hæðum og fyrrnefnd meist-
arverk sveitarinnar þá er hún
töluvert betri en Kish Kash og
sýnir að Basement Jaxx á fullt
eftir enn. Trausti Júlíusson
Sköpunargleðin enn til staðar
BASEMENT JAXX
CRAZY ITCH RADIO
Niðurstaða: Crazy Itch Radio er ólík fyrri plöt-
um Basement Jaxx. Ágæt plata sem sýnir að
þeir Simon Ratcliffe og Felix Buxton eru ekkert
að verða uppiskroppa með hugmyndir.
Plata með lögum rokksveitarinnar
Nirvana í vögguvísuútgáfum er
komin út. Platan nefnist Rockabye
Baby! Lullaby Renditions of Nir-
vana og hefur m.a. að geyma lögin
Smells Like Teen Spirit, Lithium,
About a Girl og Come As You Are.
Ekki er langt síðan tilkynnt var
um útgáfu svipaðrar plötu frá
sama fyrirtæki, babyrockrecords.
com, með lögum Bjarkar Guð-
mundsdóttur.
Vögguvísur
Nirvana
NIRVANA Plata með lögum Nirvana í
vögguvísuformi er komin út.
Fyrirsætur eru ekki sáttar við
stjórnvöld tískuvikunnar á Spáni
vegna krafanna sem þeir settu
varðandi holdafar þeirra. Fimm
fyrirsætur fengu ekki að spreyta
sig á tískupöllunum þetta ári vegna
þess að þær voru of léttar. „Í okkar
starfi eru gerðar þær kröfur að
vera hár og grannur. Við fáum ekki
vinnu ef við erum ekki grannar og
í góðu formi,“ segir spænskt súper-
módel í viðtali við sænsku sjón-
varpsstöð Aftonblaðsins. Hún
bætir einnig við að átröskunar-
sjúkdómar séu ekki endilega tengd
við þeirra stétt heldur eru það geð-
sjúkdómar sem fyrirfinnast hvar
sem er í heiminum og leiðinlegt
hvað fólk virðist alltaf tengja það
við fyrirsætustörfin.
Fyrirsætur vona að ekki fleiri
fari að fordæmi Spánverja svo
ekki sé hætta á að stúlkur missi
vinnu sína.
Ekki sáttar
FYRIRSÆTUR Ekki sáttar við þyngdar-
kröfur stjórnvalda á Spáni og segja að
bransinn krefjist þess að þær séu langar
og mjóar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Breski spaugarinn Steve Coogan
fer með aðalhlutverkið í The Alibi
sem er frumsýnd um helgina.
Hann leikur mann sem sérhæfir
sig í að aðstoða fólk sem stendur í
framhjáhaldi við að halda stússinu
leyndu fyrir makanum með til-
heyrandi afsökunum og fjarvistar-
sönnunum.
Hann hefur náð góðum árangri
í starfi enda spinnur hann lyga-
vefi af mikilli list fyrir skjólstæð-
inga sína. Hann kemst þó heldur
betur í krappann þegar viðhald
deyr í höndum eins viðskiptavin-
arins og hann þarf að framleiða
fjarvistarsönnun í sakamáli.
Rebecca Romijn, úr X-Men
myndunum, leikur aðstoðarkonu
Coogans en þau eru stutt hópi
traustra aukaleikara á borð við
Sam Elliott, James Brolin, Selma
Blair og Deborah Kara Unger.
Aðstoð við
framhjáhald
REBECCA ROMIJN OG STEVE COOGAN
MÁNUDAGUR 25. september 2006 25