Fréttablaðið - 25.09.2006, Síða 66
25. september 2006 MÁNUDAGUR26
menning@frettabladid.is
!
LEIKHÚSTILBOÐ: Tvíréttaður
kvöldverður og leikhúsmiði
frá kr. 4300 - 4800
TEKIÐ Á MÓTI PÖNTUNUM
frá kl. 10 til 16 mánudaga
- fimmtudaga í síma 437 1600
Staðfesta þarf miða með greiðslu
viku fyrir sýningardag
Sýningar í Landnámssetri
í september og október
Miðvikudagur 27. september kl. 20 Laus sæti
Fimmtudagur 28. september kl.20 Laus sæti
Fimmtudagur 5. október kl. 20 Laus sæti
Föstudagur 6. október kl. 20 Laus sæti
Laugardagur 7. október kl. 20 Uppselt
Sunnudagur 8. október kl. 20 Örfá sæti laus
Fimmtudagur 12. október kl. 20 Laus sæti
Föstudagur 13. október kl. 20 Laus sæti
Laugardagur 14. október kl. 20 Örfá sæti laus
Sunnudagur 15. október kl. 20 Laus sæti
Fimmtudagur 19. október kl. 20 Laus sæti
Föstudagur 20. október kl. 20 Laus sæti
Laugardagur 21. október kl. 20 Laus sæti
Kl. 12.30
Myndlistarmaðurinn Ragnar Kjart-
ansson fjallar um listferil sinn í
fyrirlestri á vegum Opna lista-
háskólans í Laugarnesi. Ragnar
útskrifaðist úr málaradeild LHÍ
vorið 2001 og nam einnig í eina önn
við Konunglegu Listakademíuna
í Stokkhólmi. Verk hans „Stúku
Hitlers“ má nú sjá í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
Þriðja latíndjass-
plata Tómasar R.
Einarssonar er
komin út og ber titil-
inn ROMM TOMM
TOMM. Fjórtán
íslenskir og kúb-
anskir tónlistarmenn
leika á diskinum
en hann var tekinn
upp beggja megin
Atlantsálanna.
Tómas hefur starfað sem
kontrabassaleikari og
djasstónskáld um árabil
og hefur áður gefið út lat-
índjassplöturnar Kúb-
anska árið 2002 og Hav-
ana árið 2003. Þetta er
raunar fjórtánda platan
sem geymir tónsmíðar
Tómasar en verk hans
mælast orðið í kassavís.
„Þetta verkefni er búið að
vera nokkuð lengi í bígerð,
það mætti segja að ég hafi
haft þetta að aðalstarfi
hátt í ár,“ útskýrir Tómas
en hann semur og útsetur alla tón-
listina auk þess sem hann ferðaðist
tvisvar til Kúbu í vor til þess að
taka upp efni.
„Á fyrstu plötunni spiluðu bara
Íslendingar en árið eftir fór ég til
Havana og tók upp með kúbönsk-
um tónlistarmönnum. Svo tók ég
mér gott frí og hugsaði í tvö ár
hvernig mér tækist að ljúka þess-
ari þrennu og flétta þetta allt
saman,“ segir Tómas. Það er ekki
hlaupið að því að flytja stórsveitir
milli landanna og því varð úr að
tónskáldið fór tvær ferðir á vor-
dögum, þá fyrri í fylgd básúnuleik-
arans Samúels Jóns Samúelssonar,
og tók upp efni með heimamönn-
um. „Við tókum síðan upp með latín-
bandi hér heima og í síðari ferðinni
til Kúbu fékk ég Kúbanina til að
spila ofan í Íslendingana,“ útskýrir
hann og bætir við að sami háttur
hafi verið hafður á með fyrstu upp-
tökurnar frá Kúbu sem Íslending-
arnir hafi spilað inn á. „Svo er ég
með sérstakan gest á plötunni,
Gísla Galdur Þorgeirsson, sem ég
fékk til að snúa plötum ofan í
Kúbanina. Þannig binst þetta
allt saman og mér finnst hafa
vel tekist til að búa til eina
heild og flétta saman þennan
íslenska og kúbanska anda.“
Tómas tileiknar sýslung-
um sínum í Dölunum fyrsta
lag plötunnar. „Lagið Jörfa-
gleði heitir eftir einni þekkt-
ustu og villtustu samkomu
Íslandssögunnar sem fór
fram á Jörfa í Haukadal en
yfirvöld bönnuðu hana á 18.
öld. Ég er viss um að það
hefur verið óskaplega gaman
á hinni upprunalegu Jörfa-
gleði - mikið dansað og sung-
ið og hoppað og híað út um
allar grundir. Ég vona að mér
hafi tekist á þessari plötu að
ná í skottið á þeim anda sem
þar ríkti og að hin sama
óhamda lífsgleði nái að skína
þar í gegn.“
Platan kemur út hjá
Smekkleysu en útgáfutón-
leikar ROMM TOMM TOMM
verða haldnir á Nasa næst-
komandi laugardag sem liður
í Jazzhátíð Reykjavíkur.
„Fyrir tveimur árum komu
kúbanskir tónlistarmenn til
Íslands og léku með mér á nokkr-
um tónleikum en nú eru Íslending-
arnir orðnir svo góðir að það þarf
ekki að flytja inn erlendan liðs-
auka,“ segir Tómas sposkur, „það
er líka flókið að flytja inn menn
beint frá Kúbu svo ég ætla að snúa
þessu aðeins við.“ Tómas mun því
einnig halda útgáfutónleika í tón-
listarhöllinni Casa de la Música í
Havana í nóvemberog þá með fríðu
föruneyti íslenskra hljóðfæraleik-
ara.
kristrun@frettabladid.is
Í anda Jörfagleðinnar
TÓMAR R. EINARSSON GEFUR ÚT SÍNA ÞRIÐJU LATÍNJASS-
PLÖTU Fléttar saman kúbönskum og íslenskum áhrifum.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
> Ekki missa af...
pólskum menningardögum
sem hefjast næstkomandi
fimmtudag. Myndlist, tónlist,
leiklist og kvikmyndalist í bland
við bókmenntir, fræðslu og jafn-
vel óhefðbundnar hannyrðir.
Jazzhátíð Reykjavíkur sem
er á næstu grösum. Feikinóg af
frábærri tónlist frá miðvikudegi
til sunnudag.
leikritinu Gunnlaðarsögu í
Hafnarfjarðarleikhúsinu. Kven-
félagið Garpur fer höndum um
samnefnda skáldsögu Svövu
Jakobsdóttur í leikstjórn Þór-
hildar Þorleifsdóttur.
Stofnun Vigdísar Finn-
bogadóttur efnir til hátíða-
dagskrár í tilefni Evrópska
tungumáladagsins í
Hátíðasal Háskóla Íslands
á morgun. Dagskráin er
skipulögð í samvinnu við
menntamálaráðuneytið.
Þetta er í fimmta sinn
sem tungumáladagurinn
er haldinn hátíðlegur að
undirlagi Evrópuráðs-
ins en tilgangur hans er
að heiðra fjölbreytileika
tungumála í Evrópu og
hvetja fólk til að læra erlend tungumál.
Dagskráin hefst með ávarpi frú Vigdísar Finn-
bogadóttur, fyrrverandi forseta, en síðan flytja
Ástráður Eysteinsson, prófessor í bókmennta-
fræði við Háskóla Íslands, og Vilborg Dag-
bjartsdóttir rithöfundur
erindi um þýðingar og
bókmenntir. Útgáfu fjöl-
mála ljóðabókarinnar
Zwischen Winter und
Winter verður einnig
fagnað en í bókinni má
finna ljóð þýska skálds-
ins Manfred Peter Hein
á þýsku, íslensku, ensku
og dönsku. Hein mun
lesa úr verki sínu og
ræða um það auk þess
sem Gauti Kristmans-
son, lektor í þýðingar-
fræði, mun fjalla um útgáfu bókarinnar.
Allir hjartanlega velkomnir meðan húsrúm
leyfir en nánari upplýsingar um dagskrána má
finna á heimasíðu Stofnunar Vigdísar Finnboga-
dóttur, www.vigdis.hi.is.
FJÖLBREYTILEIKI TUNGUMÁLANNA HEIÐRAÐUR
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttir fagnar tungumála-
deginum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Í tilefni tungumáladagsins
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI