Fréttablaðið - 16.10.2006, Side 24
16. október 2006 MÁNUDAGUR4
Þegar unnið er í stiga er best
að fara að öllu með gát.
Nú þegar haustmánuðir feykja
laufum af trjám þurfa margir að
staulast í stigana til að hreinsa
stíflaðar rennur. Þegar unnið er úr
stiga er best að fara að öllu með
gát.
Lykilatriði er að stiginn standi
réttur og stöðugur og að undirlagið
sé öruggt. Setjið aldrei stigann á
frosna jörð. Halli stigans skal vera
á þá leið að lárétt fjarlægð frá stiga
að vegg sé aldrei minni en fjórð-
ungur hæðarinnar. Með því að
festa taug neðarlega í stigann og
svo við húsvegginn er komið í veg
fyrir að stiginn renni frá húsinu.
Reynið að hafa báðar hendur
frjálsar og hafið því öll tæki og tól
bundin um mittið eða í fötu sem er
dregin upp. Einnig er gott öryggis-
ráð að nota öryggistaug sem er
bundin um mittið og við rör eða tré
hinum megin við húsið.
Þó að fyrirhöfnin hljómi nokkur
er aldrei of varlega farið. Fall úr
stiga getur reynst dýrkeypt og lífs-
hættulegt. - jóa
Stöðug í stigum
Fall úr stiga getur verið dýrkeypt og því betra að hafa varann á. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Á haustin taka margir húseig-
endur sig til og raka saman
laufin í görðum sínum. Jón
Júlíus Elíasson, garðyrkju-
meistari hjá Garðmönnum,
segir að best sé að setja laufin
í blómabeðin.
Jón segir að ekkert mæli sérstak-
lega með því að fólk raki saman
laufin í görðum sínum frekar en það
vill ef ekki er mikið af þeim. „Það er
auðvitað ekki gott að hafa stórar
hrúgur af laufi á grasinu og en lauf
sem eru svona eitt og eitt á stangli
hverfa náttúrulega bara,“ segir
hann og bætir við að hins vegar geti
verið gott að athuga rennur og niður-
föll og fjarlægja þau lauf sem hafa
safnast fyrir á þeim stöðum svo að
þau valdi ekki stíflu.
Jón segir að ef að fólk vilji raka
laufin úr görðunum sé best að safna
þeim saman og setja þau í blóma-
beðin. „Það er til dæmis mjög gott
að setja laufin yfir haustlaukana,“
segir hann en tekur fram að alls
ekki eigi að fjarlægja laufin. „Þetta
skilar sér beint ofan í jörðina aftur
og við þurfum á allri næringu að
halda til þess að viðhalda hringrás-
inni.“
Ágætt getur verið að nota blæ-
vængshrífur úr harðplasti til þess
að raka laufunum saman. „Mér
finnst gott að nota svona blævængs-
hrífur með tindum en margir nota
hrífur úr harðplasti sem eru eftir-
gefanlegar. Það er ekki gott að vera
að rífa upp annað sem liggur undir
laufunum á haustin. Á vorin er hins
vegar ágætt að fara með grófa
hrífu yfir garðinn og raka saman
afgangslaufin. Þá er mosinn líka
mjög laus á og fer með, sem er gott.
Það opnar líka fyrir súrefni og vatn
ofan í grassvörðinn, sem er mjög
gott fyrir hann.“ emilia@frettabladid.is
Laufin góð í blómabeðin
Jón segir að ágætt sé að sópa yfir stéttar
á haustin og fjarlægja lauf úr niðurföll-
um. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Guðmundur Óli Scheving
SKRIFAR UM MEINDÝR OG MEINDÝRAVARNIR
Svartrottan, oft nefnd „skiparotta“,
hefur oft borist til landsins en ekki
náð að bólsetja sig á fastlandinu.
Hún hefur komið með erlendum
skipum, togurum o.fl.
Svartrottan hefur aftur á móti
numið land í Vestmannaeyjum þar
sem hún heldur aðallega til í skolp-
ræsunum og hefur sýnilega hrakið
í burtu og drepið brúnrottuna sem
þar var fyrir.
Svartrottan lifir í húsagrunnum
og híbýlum manna en hefur að
öllu jöfnu ekki verið í skolpræs-
unum nema í Vestmannaeyjum.
Þegar Eggert Ólafsson ritaði fyrstur
manna um rottur hérlendis um
miðja 18. öldina er ekki vitað hvort
um var að ræða svart- eða brún-
rottur en hann kallaði þessar rottur
völskur sem dregið er af nafninu
Valland sem er gamalt nafn á
Frakklandi.
Nokkrar mikilvægar upplýs-
ingar:
Ætt: Músaætt Lífstími: 2 - 5 ár
Kynþroska: 11 vikna
Litur: Dökk, grásvört en ljósari á
kviði
Lengd: 20-30 cm.
Þyngd: 200-600 gr.
Hljóð: Kurr og hvæsir þegar henni
er ógnað
Fæða: Alæta
Got: Það líða 21-24 dagar milli gota
Unga fjöldi í goti: 5-10 ungar
Stærð unga: 2-3 cm.
Spenar: 12 á læðu
Rottuungar fæðast hárlausir og
blindir og læðan hugsar mjög vel
um þá þar til þeir verða sjálfbjarga.
Þeir geta komist í gegnum göt sem
eru u.þ.b. 8 mm í þvermál. Oft
hafa menn ruglast á músum og
rottuungum. Hægt er að þekkja
rottuunga á spenunum þegar um
læðu er að ræða og kraftmiklum
afturfótum ef um karldýr er að
ræða. Rotturnar hafa mjög sterkar
og beittar tennur og geta þær
nagað nær allt í sundur, s.s. steypu,
plast og tré.
Svartrottan er með mjög öflugar
klær og á afar gott með að klifra.
Ummerki eftir rottuna sjást og
finnast jafnan greinilega. Hún skilur
eftir sig skít og vonda rotnunarlykt
og olíukennd filma kemur á hluti
sem hún snertir. Í Bandaríkjunum
er svartrottan kölluð þakrotta (roof
rat) og lifir hún oft villt.
Fáar rannsóknir hafa verið gerðar
á sjúkdóma- og sníkjudýrafánu í
svartrottum á Íslandi. Þó fannst
bakteríusjúkdómurinn Leptospiros-
is í reykvískum svartrottum um
miðja 20. öldina og ýmsar tegundir
sníkjudýra og maura fundust í
svartrottum frá Vestmannaeyjum á
árunum 1994. Í svartrottunum frá
Vestmannaeyjum fundust einnig
lýs og flóin Nosopsyllus fasciatus.
Flóin getur lagst á menn.
Hugmyndir vísinda- og fræði-
manna um hvers vegna svartrottan
finnst bara í Vestmannaeyjum og
er staðbundin þar eru að loftslag
þar sé ekki ósvipað og meginlands-
loftslag í sunnanverðri Evrópu þar
sem vetur eru mildir. Hiti er í jörðu
í Vestmannaeyjum og því kjör-
aðstæður fyrir svartrottuna.
Víða erlendis eru rottur hafðar
sem gæludýr og félagasamtök hafa
staðið fyrir kynblöndun rottunn-
ar. Því má finna flekkótt afbrigði
brúnrottu og geta þau verið hvít og
svört, brún og svört eða brún og
hvít. Meindýraeyðar á Íslandi hafa
fengið rottur með ýmis litaafbrigði í
gildrur sínar og bendir það til þess
að einhverjar gæludýrarottur hafi
sloppið frá eigendum sínum.
Áfram verður fjallað um svart-
rottuna að viku liðinni.
Heimildir:
Upplýsingar og fróðleikur um
Meindýr og varnir 2004.
Svartrotta
(Rattus rattus) Black Rat, Ship Rat
Lesendum Fréttablaðsins er velkomið að senda fyrirspurn á netfangið gudmunduroli@simnet.is.
��������������������������������
������������������������������
���������������
�����������������������
����������������������
30%
3 Útsala20-40% afsláttur
20-30% afsláttur af rúmum
Langholtsvegi 111, 104 Rvk. Sími 568 7900
Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-14Nýtt kortatímabil
Baðsloppar
20% afsláttur
Handklæði
30% afsláttur
Rúmteppasett
20-40% afsláttur
Sængurfatnaður
20% afsláttur