Fréttablaðið - 16.10.2006, Page 61
MÁNUDAGUR 16. október 2006 21
SENDIÐ OKKUR LÍNU
Við hvetjum lesendur til að senda
okkur línu og leggja orð í belg um
málefni líðandi stundar. Greinar
og bréf skulu vera stutt og gagn-
orð. Eingöngu er tekið á móti efni
sem sent er frá Skoðanasíðunni
á visir.is. Þar eru nánari leiðbein-
ingar. Ritstjórn ákveður hvort efni
birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða
í báðum miðlunum að hluta eða
í heild. Áskilinn er réttur til leiðrétt-
inga og til að stytta efni.
BRÉF TIL BLAÐSINS
UMRÆÐAN
Virkjanaframkvæmdir
Framkvæmdir eru hafnar við Fjarðarárvirkjun í Seyðisfirði,
7,4 megavött að stærð í tveimur
þrepum niður á láglendi frá stóru
miðlunarlóni á Fjarðarheiði. Fram-
kvæmdin var ekki sett í umhverfis-
mat þrátt fyrir kröfur Náttúru-
verndarsamtaka Austurlands,
Landverndar og ýmissa einstakl-
inga um hið gagnstæða. Meira að
segja iðnaðarráðuneytið taldi slíka
kröfu eðlilega. Umhverfisstofnun
hafði ekki fyrir því að senda full-
trúa sinn á vettvang til að kynna
sér áhrif framkvæmdarinnar.
Samningar Seyðisfjarðarkaupstað-
ar við Íslenska orkuvirkj-
un ehf um vatnsréttindi
og orkusölu frá virkjun-
inni til Hitaveitu Suður-
nesja eru leyniplögg.
Meira að segja sveitar-
stjórnarmenn á Seyðis-
firði fengu ekki afhent
eintök af samningunum
og urðu að láta sér nægja
að hraðlesa þá á fundi þar
sem þeir voru bornir upp
til samþykktar.
Fjarðardalur ásamt Fjarðará
með um 25 margbreytilegum foss-
um er megindjásn í náttúru Seyðis-
fjarðar. Margir þessara fossa
blasa við af alfaraleið. Stýring á
rennsli fossanna rýrir óhjákvæmi-
lega gildi þeirra til náttúruupplif-
unar og verndun
þeirra óskertra varð-
ar alla Íslendinga og
þá mörgu sem koma
til landsins sjóleiðis.
Mannvirki með
stöðvarhúsum og
pípugörðum fram með
alfaraleið til og frá
Seyðisfirði munu setja
mark sitt á Fjarðardal
um ókomin ár fyrir
utan mikið og áber-
andi jarðrask á meðan á fram-
kvæmdum stendur. Fjarðará átti
að mati undirritaðs að vernda
óskerta sem náttúruperlu ásamt
umhverfi sínu og nýta Fjarðardal
til útivistar og kynningar í þágu
ferðaþjónustu. Fjarðarselsvirkjun
litla frá 1913 raskar ekki ánni svo
teljandi og er tilvalin til kynning-
ar sem sögulegar minjar. Það var
lágmarkskrafa að fyrirhuguð
virkjun færi lögboðna leið í mat á
umhverfisáhrifum.
Tryggvi Harðarson, nú fram-
bjóðandi í 3. sæti Samfylkingar-
innar í Suðvesturkjördæmi, skrif-
aði grein í Fréttablaðið 9. október
sl. undir fyrirsögninni „Fjarðarár-
virkjun fyrirmynd”. Í málflutn-
ingi hans birtist okkur enn ein
útgáfan af ráðleysi Samfylkingar-
innar í umhverfismálum. Tryggvi
var bæjarstjóri á Seyðisfirði á síð-
asta kjörtímabili en hélt heimilis-
festi sínu í Hafnarfirði. Eins og
hann segir frá í greininni notaði
hann bæjarstjóratíð sína á Seyðis-
firði m.a. til að koma á leynisamn-
ingunum um virkjun Fjarðarár og
ráðstafa raforkunni þaðan í púkk
fyrir álver í Helguvík. Þessi fram-
bjóðandi Samfylkingarinnar telur
vinnubrögð við undirbúning
Fjarðarárvirkjunar til sérstakrar
fyrirmyndar og telur að þar hafi
náttúran fengið forgang. Nú
hyggst hann nota þessi afrek sín
eystra, virkjun á náttúruperlu án
umhverfismats, sem sérstakt agn
til að afla sér stuðnings í Suðvest-
urkjördæmi. Um leið bætir hann
við enn einni skrautlegri fjöður í
náttúruverndarstefnu Samfylk-
ingarinnar.
Höfundur er fyrrverandi alþingis-
maður og ráðherra.
Ný skrautfjöður í stefnu Samfylkingarinnar
HJÖRLEIFUR
GUTTORMSSON
Sala Icelandair og fögnuður
almennings
Haukur R. Hauksson bregst við frétt-
um úr viðskiptalífinu
Í Fréttablaðinu miðvikudaginn 4.
október síðastliðinn mátti lesa frétt
um Hannes Smárason forstjóra
FL Group, þar sem segir m.a. að
mikilvægt sé að koma Icelandair aftur
í hendur almennings. Maður spyr sig
ósjálfrátt, mikilvægt fyrir hvern eða
hverja? Að vísu segir Hannes hreint
út: „Við vorum að horfa til þess að
hámarka okkar eigin arðsemi, sem er
okkar hlutverk.” Þá veit almenningur
það. Um að gera að kaupa flugfélagið
fyrir tugi milljarða svo að ákveðinn
hópur manna geti unað glaðir við sitt.
Eftir sæti almenningur með gamlar
vélar í væntanlegri samkeppni við
fjölda flugfélaga og ferðaskrifstofa s.s.
Heimsferða, er koma með sínar eigin
vélar inn á markaðinn á næsta ári.
Heimskur væri almenningur ef hann
legði svo mikið sem krónu í þetta
fyrirtæki. Ker hætti við kaupin og
sneri sér að öðrum verkefnum með
bros á vör að eigin sögn. Slíkt hið
sama ætti almenningur að gera.
Höfundur er kennari.
Ásatrú
Sigurður Þórólfsson fjallar um
kenningar ásatrúar
Ég er sjómaður. Fylgist ekki reglulega
með íslensku sjónvarpi. Hinsvegar
tekur mamma mín upp á myndband
sjónvarpsefni sem ég hef áhuga á. Þar
á meðal tiltekna umræðuþætti sem
voru á dagskrá NFS. Núna var ég að
horfa á einn slíkan þátt og langar til að
leiðrétta ranghugmynd sem þar kom
fram. Þátturinn fjallaði um trúmál.
Lögsögumaður Ásatrúarfélagsins hélt
því fram að í ásatrú sé ekki gerður
munur á réttu og röngu. Hann hélt
því líka fram að í ásatrú fylgi mönnum
ekki í næsta lífi hvernig þeir haga
sér í jarðlífi. Það ásatrúarfólk sem ég
þekki er að sönnu undrandi á þessum
kenningum en hefur ekki orðið
vart við að þær hafi verið leiðréttar
opinberlega. Einn svaraði mér
þannig: „Ég vissi ekki að þetta væri
lögsögumaður Ásatrúarfélagsins. Ég
gekk út frá því sem vísu að þetta væri
einhver sem vildi skaða ásatrú.“
Þó að ásatrúarmenn almennt viti
fyrir hvað ásatrú stendur þá er brýnt
að upplýsa almenning um hið rétta
í málinu. Siðaboðskapur ásatrúar er
einfaldlega einn af hornsteinum heiðni
og ástæðan fyrir því að margir heillast
af og fá áhuga á ásatrú. Ég hvet fólk
til að lesa Hávamál. Gestaþátturinn
vitnar beint í sjálfan Óðin og tekur af
allan vafa um siðaboðskap ásatrúar.
Sömuleiðis er hugmyndafræði ásatrúar
uppfull af hinum mörgu heimum sem
menn lenda í að loknu jarðlífi til sam-
ræmis við hvernig þeir breyta í jarðlífi.
Sigurður Þórólfsson, sjómaður