Fréttablaðið - 16.10.2006, Page 70
Hin þokkafulla Sabina
Sciubba er væntanleg á
Airwaves ásamt hljómsveit
sinni, Brazilian Girls. Stein-
þór Helgi Arnsteinsson
ræddi við Sabinu, sem hafði
margt forvitnilegt að segja.
Brazilian Girls var stofnuð í New
York-borg upp úr síðustu aldamót-
um en ásamt Sabinu, sem syngur,
skipa sveitina þrír piltar. En hvað-
an kemur nafnið á hljómsveitinni?
„Allir elska brasilískar stelpur.
Bandarískar stelpur hefði ekki
notið nógu mikillar velgengni né
heldur þýskar stelpur,“ svarar
Sabina með kynþokkafullum
suður-evrópskum hreimi.
Nýja platan tilfinningaríkari
Sabina er nokkuð alþjóðleg, hálf
þýsk og hálf ítölsk, en hún syngur
á alls fjórum tungumálum; ensku,
frönsku, ítölsku og þýsku. Hún
semur auk þess flesta textana
sjálf. Sabina segir þó að þetta sé
ekki gert til þess að hún líti út
fyrir að vera gáfuð. „Þetta er minn
raunveruleiki og á alls ekki að líta
út fyrir að vera hrokafullt. Ég vil
ekki syngja á einu tungumáli og
það væri heimskulegt af mér að
velja eitt tungumál.“ Tónlist Braz-
ilian Girls er líka afar fjölbreytt
þar sem mörgum tónlistarstefn-
um ægir saman. Aðalsmerki
hljómsveitarinnar er samt dans-
rokk þar sem taktfastir tónar og
mikið stuð ríkir. „Við búum líka
stundum til okkar eigin nöfn, til
dæmis emó-elektró,“ bætir Sabina
við og segir að nýja platan sé mikl-
um mun tilfinningaríkari en fyrri
platan. „Ætli þarnæsta plata verði
þá ekki bara ópera eða söngleik-
ur?“ segir Sabina og hlær.
Húmor og kynþokki á tónleikum
Tónleikar skipta miklu máli fyrir
Brazilian Girls enda segir Sabina
að hljómsveitin hafi orðið til og
mótast í kringum tónleika á
skemmtistaðnum Nublu í New
York. „Það sem ég hef heyrt frá
öðrum er að tónleikar okkar séu
fullir af orku og mun hrárri en
upprunalegu upptökurnar okkar,
jafnvel pönkaðri.“ Sabina setur
líka sjálf upp mikla sýningu. Hún
segist skipta oft um búninga sem
bera bæði með sér húmor og kyn-
þokka. „Mér finnst gaman að
koma fólki til þess að hlæja. En ef
mér dettur ekki í hug búningur
sem er nógu brjálaður þá sýni ég
bara leggina á mér.“ Sabina er þó
ekki til í að lofa kynþokkafyllstu
tónleikum Airwaves í ár. „Nei, þá
er ég að búa til of miklar vænting-
ar. Við skulum frekar segja að við
verðum með hræðilegustu tón-
leika í sögu Airwaves,“ segir
Sabina, sem bætir að lokum við að
hljómsveitin hlakki mikið til heim-
sóknarinnar. „Já, ertu að grínast?
Þetta eru þeir tónleikar sem við
höfum hlakkað mest til síðustu
sex mánuði. Við gætum þess vegna
afboðað allt annað.“
Myndu afboða allt vegna Airwaves
BRASILÍSKU STELPURNAR Vöktu athygli í fyrra fyrir fyrstu breiðskífu sína og skemmti-
lega tónleika. Í ár kom út platan Talk to La Bomb sem þykir undirstrika hæfileika
hljómsveitarinnar í að skapa gott dansrokk.
[TÓNLIST]
UMFJÖLLUN
Það er hægt að lýsa þessari plötu í
einni setningu. The Libertines án
Petes Doherty. Það er akkúrat það
sem þetta er, og þannig hljómar
þetta líka. Carl Barat hefur staðið
í skugga fyrrverandi félaga síns
alveg frá því að sveit þeirra
splundraðist upp, aðallega vegna
eiturlyfja- og hegðunarvandræða
Dohertys. En það er ekki vegna
hæfileika sem Doherty hefur
verið meira í kastljósinu, heldur
vegna þess að einhvern veginn
náði sá lúði að næla sér í fyrirsæt-
una Kate Moss. Svona var þetta
ekki áður en Kate Moss kom til
sögunnar. Þá voru þeir félagar
báðir hylltir sem lagahöfundar.
Sumir blaðamenn í Bretlandi
slepptu sér svo gjörsamlega að
þeir voru strax byrjaðir að líkja
samstarfi þeirra við samstarf
Pauls McCartney og Johns Lennon.
En Doherty klúðraði því auðvitað,
eins og öllu sem hann kemur
nálægt.
Þessi plata er þannig, eins og
Babyshambles-platan, framhald
af The Libertines frá röddinni sem
var alltaf aðeins minna sjarmer-
andi en hin. Allt er hljóðritað á
staðnum, eða a.m.k. látið hljóma
þannig, og hljómurinn afar
ruslaralegur. Eins og á plötum The
Libertines er allt gert til þess að
fanga tilfinninguna í æfingahús-
næðinu, þar sem liðsmenn tala sín
á milli í upphafi eða enda laga.
Lögin eru svo fæst meira en 3 mín-
útur að lengd og sum þeirra nokk-
uð grípandi. Ég get ekki ímyndað
mér annað en að aðdáendur The
Libertines eigi eftir að gleypa
algjörlega við þessari plötu.
Ég get samt persónulega
ómögulega skilið hvað það er við
þessa tónlist sem fær bresku þjóð-
ina til þess að standa á öndinni?
Það má svo sem hafa gaman af
þessu, og ég er nokkuð viss um að
á sjöunda bjór myndi maður jafn-
vel þykjast kunna textann og
syngja með. Ég var til dæmis
nokkuð hrifinn af lögunum Bang
Bang You´re Dead og Gin & Milk
(sem mig grunar að fjalli um
Doherty). En svo þegar maður
heyrir þetta í dagsbirtu með fullu
ráði heyrir maður þetta eins og
þetta er. Enn ein platan frá tilfinn-
ingaríkum ungum Breta sem
hefur líklegast aldrei sett neitt
nýrra á fóninn hjá sér en Sex Pist-
ols. Vissulega hæfileikaríkur laga-
höfundur, en líka maður sem fer
ekki nægilega langt að brúninni til
þess að gera þessa plötu tíma-
lausa.
Birgir Örn Steinarsson
Í skugga Dohertys
DIRTY PRETTY THINGS
WATERLOO TO ANYWHERE
Niðurstaða: Plata frá „hinum gæjanum“ í
The Libertines sem hljómar alveg eins og það
sem komið var áður. Carl Barat kann enn að
semja fín lög, en platan grípur mann engum
heljartökum.
Söngkonan Madonna hefur yfir-
gefið Afríkuríkið Malaví án þess
að taka David Banda, eins árs
drenginn sem hún vill ættleiða,
með sér. Ættleiðingin hefur ekki
enn gengið í gegn og því þurfti
Madonna að skilja hann eftir í
Malaví. Madonna dvaldi í Malaví í
níu daga þar sem hún starfaði að
mannúðarmálum. Talið er að
David fái að heimsækja Madonnu,
sem á hús í Bandaríkjunum og
Bretlandi, á meðan ættleiðingin
gengur í gegn. Gæti hún tekið allt
að tvö ár að verða að veruleika.
David verður þriðja barn Mad-
onnu. Fyrir á hún soninn Rocco og
dótturina Lourdes.
Skildi þriðja
barnið eftir
MADONNA Söngkonan Madonna hefur
yfirgefið Malaví án David Banda.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Brad Pitt ætlar sér að leika í kvik-
mynd sem gerð er eftir hinum vin-
sælu bresku spennuþáttum State
of Play. Leikarinn er þessa dagana
að semja um að taka að sér hlut-
verk blaðamannsins Cal
McCaffrey, en þættirnir fjölluðu
um hóp blaðamanna sem rannsak-
aði grunsamlegt dauðsfall. Þætt-
irnir voru sýndir við miklar vin-
sældir í Sjónvarpinu
fyrir tveimur árum og
þeir hlutu Bafta-verð-
launin á sínum tíma.
Brad Pitt leikur þessa
dagana í myndinni A
Mighty Heart sem
fjallar um ævi
blaðamannsins
Daniels Pearl.
Leikur aftur
blaðamann
BRAD PITT
Ætlar að leika í
kvikmynd gerðri
eftir breskum sjón-
varpsþáttum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY-
IMAGES
Frábær skemmtun
fyrir allan hópinn.
Tilboðspakkar
Keramik og pizza frá
kr 1190 á mann.
Barnaafmæli
Bekkjaferðir
FRÁBÆR GAMANMYND MEÐ
MERYL STREEP OG ANNE HATHAWAY
UNG OG ÓREYND STELPA KEMUR TIL NEW YORK OG FÆR
FYRIR TILVILJUN VINNU SEM AÐSTOÐARKONA HJÁ
RITSTJÓRA STÓRS TÍSKUBLAÐS.
ÆÐISLEGA SPENNANDI ÆVINTÝRAMYND
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
,,STÓRSKEMMTILEG HRYLLINGSMYND FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA SEM KEMUR EKKI Í VEG FYRIR SVEFN
HJÁ SMÁFÓLKINU!"
F.G. FB
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG!
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
2 vikur á toppnum í USA!
Topp5.is
M.M.J kvikmyndir.com EMPIRE
V.J.V. Topp5.is
L.I.B. Topp5.is
“Ein fyndnasta
gamanmynd ársins”
HJ - MBL
EMPIRE
DEVIL WEARS PRADA kl. 5.30, 8 og 10.30
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL TAL kl. 6 B.I. 7 ÁRA
TALLADEGA NIGHTS kl. 5.40, 8 og 10.20
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 5.50, 8 og 10.10
CRANK kl. 8 og 10.15
DEVIL WEARS PRADA kl. 5.30, 8 og 10.30
SÝND Í LÚXUS kl. 5.30, 8 og 10.30
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL TAL kl. 4 og 6 B.I. 7 ÁRA
MONSTER HOUSE ENSKT TAL kl. 4, 6 og 8 B.I. 7 ÁRA
TALLADEGA NIGHTS kl. 5.30, 8 og 10.25
JOHN TUCKER MUST DIE kl. 8 og 10
ÞETTA ER EKKERT MÁL kl. 10
GRETTIR 2 ÍSL TAL kl. 3.45
DEVIL WEARS PRADA kl. 8 og 10
TEXAS CHAINSAW MASSACRE kl. 8 og 10 B.I. 18 ÁRA
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL TAL kl. 6 B.I. 7 ÁRA
TALLADEGA NIGHTS kl. 6