Fréttablaðið - 16.10.2006, Síða 74

Fréttablaðið - 16.10.2006, Síða 74
34 16. október 2006 MÁNUDAGUR DHL-deild karla HAUKAR-AKUREYRI 34-34 Mörk Hauka (skot): Kári Kristján Kristjánsson 7 (8), Samúel Ívar Árnason 6 (10), Árni Þór Sig- tryggsson 6 (11), Guðmundur Pedersen 5/2 (7/2), Gísli Jón Þórisson 4 (6), Andri Stefan 4 (6), Freyr Brynjarsson 2 (2) Varin skot: Magnús Sigmundsson 15. Hraðaupphlaup: 5 (Samúel 3, Freyr, Árni) Fiskuð víti: 2 (Arnar Pétursson, Kári) Utan vallar: 8 mínútur Mörk Akureyrar (skot): Nikolaj Jankovic 7 (11), Goran Gusic 7/5 (11/6), Magnús Stefánsson 6 (10), Þorvaldur Þorvaldsson 3 (3), Hörður Fannar Sigfússon 3 (3), Alex Kuzmins 3 (4), Heiðar Þór Aðalsteinsson 3 (5), Aigor Lazdins 2 (2), Andri Snær Stefánsson 1 (1), Ásbjörn Friðriksson 1 (1). Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 11. Hraðaupphlaup: 2 (Jankovic, Þorvaldur) Fiskuð víti: 6 (Hörður Fannar 2, Lazdins, Kuzminz, Gusic, Magnús) Utan vallar: 10 mínútur ÍR-FYLKIR 26-28 Mörk ÍR: Davíð Georgsson 8/4 (12/5), Ragnar Helgason 7 (9), Björgvin Hólmgeirsson 4 (10), Ólafur Sigurgeirsson 2 (6), Ivan 2 (5), Jón H. Gunnarsson 2 (2), Brynjar Steinsson 1 (7), Ívar Ingólfsson 0 (1). Varin skot: Guðmundur 10, Lárus Ólafsson 2/1. Fiskuð víti: 5 (Ragnar, Ólafur, Björgvin, Jón, Brynj- ar). Utan vallar: 4 mín. (Ívar, Davíð). Mörk Fylkis: Vladimir Duric 7 (8), Eymar Kruger 7/1 (15/2), Arnar Þór Sæþórsson 3 (3), Brynjar Þ. Hauksson 2 (2), Þórir Júlíusson 2 (3),Hreinn Þór Hauksson 2 (2), Ingólfur Axelsson 2 (2), Guðlaug- ur Arnarson 1 (1), Ásbjörn Stefánsson 1 (4), Ívar Grétarsson 1 (3). Varin skot: Hlynur Morthens 12/1. Fiskuð víti: 2 (Arnar 2). Utan vallar: 12 mín. (Arnar, Guðlaugur, Þórir, Ásbjörn, Ívar, Guðmundur). DHL-deild kvenna FH-FRAM 23-23 Evrópukeppni kvenna CORNEXI ALCOA-HAUKAR 22-22 Mörk Hauka: Ramune Pekarskyte 12, Erna Þráins- dóttir 4, Hanna G. Stefánsdóttir 4, Nína K. Björns- dóttir 2 Varin skot: Helga Torfadóttir 17. Meistarakeppni KKÍ NJARÐVÍK-GRINDAVÍK 87-76 Stig Njarðvíkur: Jeb Ivy 25, Friðrik Stefánsson 18, Brenton Birmingham 18, Egill Jónasson 11, Guð- mundur Jónsson 10, Halldór Karlsson 5. Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergson 25, Steven Thomas 22, Páll Kristinsson 16, Adom Adarmboe 8. Þetta var í sjöunda sinn sem Njarðvík fagnar sigri í Meistarakeppni KKÍ en félagið hefur níu sinnum tekið þátt í þessari keppni. Leikmenn liðanna hittu 18 þriggja stiga körfum og tróðu fjórum sinnum. HAUKAR-ÍS 70-48 Stig Hauka: Helena Sverrisdóttir 18, Kristrún Sig- urjónsdóttir 12, Unnur Tara Jónsdóttir 8, Istoma Ikonto 8, Pálína Gunnlaugsdóttir 8, Bára Fanney Hálfdanardóttir 6, Sara Pálmadóttir 2, Hanna Hálfdanardóttir 2, Sigrún Sjöfn Ámundardóttir 2, Ragna Margrét Brynjólfsdóttir 2, Guðrún Ósk Ámundardóttir 2. Stig ÍS: Lovísa Guðmundsdóttir 13, Hafdís Helga- dóttir 9, Þórunn Bjarnadóttir 8, Helga Jónasdóttir 8, Tinna Björk Sigmundsdóttir 8, Kristjana Björk Magnúsdóttir 2. Þetta var í fyrsta skiptið sem Haukar sigra en félag- ið hefur þrisvar leikið í Meistarakeppni KKÍ. Haukar hafa þá unnið allt sem hægt er vinna í íslenskum körfubolta. Sex þriggja stiga körfur vorur skoraðar. ÚRSLIT GÆRDAGSINS HANDBOLTI Það var hart barist í Austurberginu í gær þegar ÍR tók á móti Fylki í DHL-deildinni. Leik- urinn einkenndist af baráttu, varnarleik og mistækum sóknar- leik beggja liða. Lokatölur urðu 26-29, Fylki í vil. ÍR-ingar mættu grimmir til leiks og höfðu yfirhöndina í byrj- un fyrri hálfleiks. Eftir að Breið- hyltingar komust í 8-6, tóku Fylk- ismenn til í vörninni hjá sér með Guðlaug Arnarsson, tilvonandi leikmann Gummersbach, fremst- an í flokki. Þeir náðu að jafna leik- inn 8-8 og sigu svo fram úr. Árbæingar náðu mest fjögurra marka forystu og höfðu yfir í hálf- leik, 11-15. Það gátu Fylkismenn eins og áður sagði þakkað öflug- um varnarleik ásamt klaufagangi ÍR-inga, sem misnotuðu tvö hraða- upphlaup undir lok hálfleiksins. ÍR-ingar mættu aftur grimmir til leiks í síðari hálfleik og náðu að minnka muninn í eitt mark í stöð- unni 14-15. Þá setti Fylkisvörnin í gírinn og með Vladimir Duric öfl- ugan í sókninni náðu Fylkismenn góðum kafla sem gerði nær út um leikinn. Þeir náðu mest fimm marka forskoti og hefðu klárað leikinn auðveldlega ef klaufaleg inná- skipting hefði ekki kostað þá tveggja mínútna brottvísun sem ÍR-ingar nýttu sér til að minnka muninn undir lokin. Enn og aftur kom klaufagangur í hraðaupp- hlaupum í veg fyrir að ÍR-ingar næðu að jafna í lokin og góður þriggja marka útisigur fyrir Fylki var staðreynd. Sigurður Sveinsson, þjálfari Fylkis, var ánægður í leikslok; „Þetta var vinnusigur, við erum að fá menn úr meiðslum. Duric er einnig að komast inn í þetta hjá okkur,“ sagði Sigurður. Ólafur Sigurjónsson, leikmað- ur ÍR, sem gat ekki leikið vegna meiðsla var ekki jafn kátur; „Við erum með unga leikmenn og erum að gera tæknifeila,“ sagði Ólafur í leikslok. - aih ÍR-ingar hafa ekki náð að fylgja góðri byrjun í deildinni eftir og töpuðu í gær fyrir Fylki: Öruggur sigur Fylkismanna GUÐLAUGUR ARNARSSON Lék sinn síð- asta leik fyrir Fylki í bili í gær en heldur í dag út til Þýskalands. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA HANDBOLTI Kvennalið Hauka er úr leik í Evrópukeppni félagsliða eftir að hafa gert jafntefli 22-22 við ungverska liðið Cornaxi á Ásvöllum í gær. Haukar töpuðu fyrri leiknum með fimm marka mun en leikurinn í gær var skráð- ur Cornaxi þar sem báðir leikirn- ir fóru fram hér á landi. Jafnræði var með liðunum allan fyrri hálfleikinn og munur- inn aldrei meiri en tvö mörk. Haukastúlkur voru alltaf skref- inu á undan og voru með forystu 11-9 í hálfleik. Í þeim síðari náðu þær frábærum leikkafla og skor- uðu sex mörk í röð. Þær náðu sex marka forskoti og virtust vera búnar að ná algjörum tökum á leiknum. Þá fjaraði þetta skyndi- lega út og ungversku stúlkurnar minnkuðu muninn jafnt og þétt og náðu á endanum jafntefli. ¿Við vorum að spila fastar en þær. Við keyrðum þetta á færri leikmönnum en þær og það hafði sitt að segja. Svo komu tæknifeil- ar hjá okkur eins og í fyrri leikn- um og þær refsuðu okkur fyrir það. Ég var síðan sjálfur of lengi að breyta leikaðferð okkar þegar illa gekk,¿ sagði Einar Jónsson, þjálfari Hauka, eftir leikinn. Eins og oft vill verða í leikjum sem þessum var dómgæslan ekki upp á marga fiska og ekki er hægt að segja að skandinavíska dómaraparið hafi verið Hauka- stúlkum hjálpsamt. ¿Mér fannst dómgæslan ekki falla okkur í hag. Við fengum eitt gult spjald í leiknum og síðan bara tvær mín- útur eftir það. Þær fengu hins vegar þrjú gul spjöld,¿ sagði Einar en hann sagði réttilega að þetta einvígi hefði tapast í fyrri leiknum. ¿Við vorum með nítján tækni- feila í leiknum á föstudaginn og reyndist það okkur dýrkeypt. Það er samt eiginlega með ólíkindum hvað við náðum að halda munin- um niðri miðað við það,¿ sagði Einar. Ramune Pekarskyde var besti leikmaður Hauka í leiknum en hún skoraði tólf mörk. - emg Kvennalið Hauka er úr leik í Evrópukeppninni eftir að liði náði aðeins jafntefli í síðari leikum gegn Cornaxi: Einvígið tapaðist í fyrri leiknum TILÞRIF Í LAGI Haukar duttu út í gær þrátt fyrir góðan leik. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Alan Pardew, knatt- spyrnustjóri West Ham, er farinn að óttast um starf sitt eftir að liðið tapaði 2-0 fyrir Portsmouth í úrvalsdeildinni í gær. „Allir stjórar sem tapa sex leikjum óttast um starf sitt. Þetta er versti kafli sem ég hef upplifað á þjáfaraferli mínum og hann er óviðunandi,“ sagði Pardew. West Ham hafnaði um miðja deild í fyrra og komst einnig í úrslita- leik bikarkeppninnar en er nú í botnbaráttunni. „Við þurfum að leggja harðar að okkur. Leikmenn liðsins eru sterkir andlega og nú þurfa þeir bara að sanna það.“ - egm Pardew stjóri West Ham: Óttast það að vera sparkað FÓTBOLTI Inter hefur tveggja stiga forskot í ítölsku deildinni eftir að hafa unnið nýliða Catania naumlega 2-1 í gær. „Við byrjuð- um leikinn nokkuð vel en fengum síðan á okkur mjög furðulegt mark. Julio Cesar og varnarmenn okkar fengu sólina í augun og sáu ekki boltann. Catania á hrós skilið fyrir góðan varnarleik og öflugar skyndisóknir,“ sagði Roberto Mancini, þjálfari Inter. „Við gleðjumst yfir þessum sigri en það er ljóst að við þurfum að skoða það af hverju við fáum svona mörg mörk á okkur.“ Dejan Stankovic var hetja Inter í gær en hann gerði bæði mörk liðsins. Hann jafnaði eftir tæpan hálftíma og skoraði sigurmarkið stundarfjórðungi fyrir leikslok. Í millitíðinni misnotaði Julio Cruz vítaspyrnu. - egm Ítalski boltinn í gær: Inter situr í efsta sæti ROBERTO MANCINI Þjálfari ítölsku meistarana í Inter. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Einn leikur fór fram í ensku úrvalsdeildinni í gær en Bolton skaust upp í þriðja sætið með útisigri á Newcastle. El- Hadji Diouf skoraði bæði mörk Bolton með skömmu millibili í 2-1 sigri. Newcastle byrjaði leikinn mun betur og komst yfir með marki frá Shola Ameobi úr vítaspyrnu. Vítið var dæmt eftir að Abdoulaye Faye var talinn hafa handleikið knöttinn innan teigs eftir fyrirgjöf Obafemi Martins. Á tveimur mínútum í seinni hálfleik náði Diouf að snúa leiknum við með því að skora tvívegis. Það fyrra eftir sendingu Nicolas Anelka og það seinna með skalla. Martins komst næst því að ná að jafna fyrir Newcastle en tókst ekki. „Óásættanleg varnar- mistök gerðu það að verkum að við við töpuðum. Við skutum okkur í fótinn,“ sagði Glenn Roeder, knattspyrnustjóri Newcastle, sem hefur aðeins fengið fjögur stig í fjórum heimaleikjum. - egm El-Hadji Diouf: Skaut Bolton í þriðja sæti DIOUF Fagnar öðru marka sinna. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES KÖRFUBOLTI Meistarakeppni KKÍ fór fram í gær en leikið var í Njarðvík. Hjá körlunum mættust Njarðvík og Grindavík en hjá kon- unum mættust Haukar og ÍS. Njarðvík fór með sigur að hólmi hjá körlunum í hörkuleik en Haukastúlkur unnu öruggan sigur á ÍS hjá konunum. Njarðvík hefur oft fagnað sigri í Meistarakeppninni hjá körlun- um, m.a. unnið síðustu þrjú ár og þeir voru staðráðnir í að halda þeirri sigurgöngu áfram. Grind- víkingar mættu grimmir til leiks og leiddu fram af leik. Grindvík- ingar höfðu m.a. 15 stiga forskot í hálfleik. Það tók Njarðvíkinga þó ekki langan tíma að vinna upp þann mun því þegar sex mínútur voru liðnar af síðari hálfleik voru Njarðvíkingar búnir að ná Grinda- vík. Njarðvík horði ekki um öxl eftir að það fór með sigur af hólmi, 87-76. Haukar unnu öruggan sigur á ÍS í kvennaleiknum. Þær leiddu allt frá byrjun og staðan í hálfleik var 48-19, Haukum í vil. Það er þó hægt að segja að ÍS hafi unnið síð- ari hálfleikinn 29-22. Þetta er í fyrsta skipti sem Haukar vinna þennan titil en Hauka liðið hefur verið mjög sigursælt á síðustu árum. Allur ágóði leiksins að þessu sinni rann til Foreldra- og styrkt- arfélag heyrnardaufra en auk þess var borgað sérstaklega fyrir hverja troðslu og hverja þriggja stiga körfu sem kom í leikjunum. Hjá körlunum voru skoraðar 18 þriggja stiga körfur auk þess sem menn tróðu fjórum sinnum í körfu andstæðingsins en hjá konunum komu sex þriggja stiga körfur en engin troðsla. dagur@frettabladid.is Haukar og Njarðvík eru meistarar meistaranna Haukar og Njarðvík unnu gær sigur í Meistarakeppni KKÍ í körfubolta en leikið var í Njarðvík. Þetta er í fyrsta skiptið sem Haukar sigrar þessa keppni hjá kon- unum en í sjöunda skiptið hjá Njarðvík. SIGURVEGARAR KVENNA Lið Hauka er ekki árennilegt fyrir komandi vetur en liðið sigraði Ís í gær í Meistarakeppni KKÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.