Fréttablaðið - 31.10.2006, Page 48
31. október 2006 ÞRIÐJUDAGUR
„I wanna hold your
hand,“ sungu fjórmenn-
ingar frá Liverpool fyrir
tugum ára. Þá dilluðu for-
eldrar mínir sér í takt við
bumbuslátt Ringo og
biðu spennt eftir því að
textahöfundar hér heima snéru lag-
inu upp á hið ylhýra. Lífið var ein-
falt, annað hvort fylgdi fólk Bítlun-
um og safnaði hári eða hlustaði á
Stones og fór á fyllerí. Tilveran var
annað hvort eða ekki. Kommi eða
ekki. Þótti töff að vera í skátunum,
kunna að binda hnúta, slá upp tjaldi,
þvo leirtauið í ám og spila á
kassagítar. Ekkert stál og enginn
hnífur. Bara Lennon og McCartney
eða Richards og Jagger.
Kaninn var kominn til að vera,
ekki þótti ástæða til að mótmæla
Straumsvíkurálverinu og stjórn-
málamenn voru hleraðir án þess að
það rataði í blöðin. Börnin gátu leikið
sér úti á götu, máttu fara niður á
bryggju, ömmur og afar voru hluti
af uppeldinu, jafnvel var boðið í
mat á sunnudögum þar sem öll fjöl-
skyldan hittist og át lamb. Ræddi
Víetnam, Sovétríkin, Bandaríkin og
hvort Lee Harvey Oswald hefði í
alvörunni skotið Kennedy. „Nei,
CIA drap hann,“ sagði síðhærður
drengur sem bar friðarmerki og
hlustaði á Zeppelin. Árin líða.
Síðan komu peningarnir sem
Danirnir segja ættaða frá Rúss-
landi. Og þá varð tilveran grá. Allt
mátti en samt ekki. Kaninn fór,
hvalirnir eltir uppi. Þjóðin í norður-
höfum sýnir þessum „smáþjóðum“
allt í kring hverjir það eru sem ráða.
„Hröktum tjallann 200 mílur frá,
ekki halda að við getum ekki drepið
nokkra hvali,“ er hrópað í þingsöl-
um. Engin skyldi vanmeta þessa
sundurleitu, fámennu þjóð sem
hefur gleymt kúnstinni að mótmæla
eftir að hún eignaðist sparifé.
Börnin mega ekki fara niður á
höfn, geta farið sér að voða. Mega
ekki leika sér úti á götu því þar eru
bílar. Þurfa að vera í vernduðu
umhverfi, heilsdagsskóla. Fjöl-
skyldurnar hittast ekki lengur,
skrifa bara hvort öðru jólakort með
fyrirfram ákveðinni kveðju. „Gleði-
leg jól og takk fyrir samveruna á
árinu sem er að líða,“ þrátt fyrir að
hafa ekki sést í hálft annað ár.
Stuð milli Stríða: allt var svo gott þá
FReyR GíGJA GUnnARsson þjáist af nostalgíu
ÞAR SEM ALLT SNÝST
UM FÓTBOLTA!
NÝTT
Á GR
AS.IS
Fréttir og Íþróttir Leikir Skemmtun
NÚ FÆRÐU GRAS.IS
FÉTTIR Í SÍMANN!