Tíminn - 28.01.1979, Qupperneq 6
4
Sunnudagur 28. janiiar 1979
tJtgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þóararinsson og Jón Sigurósson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrlmur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Simi
86300. — Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir ki.
20.00: 86387. Verð i lausasölu kr. 125.00. Askriftargjald kr.
2.500.00 á mánuöi. Biaðaprent
J
Erlent yfirlit
Grasso hefur verið
sigursæl íkosningum
Hverjar verða verð-
bæturnar 1. marz?
í sambandi við viðræður þær, sem fara fram
milli stjórnarflokkanna um efnahagsmálin, vekur
það ekki minnst forvitni hver framfærsluvisitalan
verður um mánaðamótin, en af henni verður ráðið
hve miklar verðbætur launþegar eiga að fá 1. marz
næstkomandi. í greinargerð laganna sem sett voru
i sambandi við efnahagsráðstafanirnar 1. desem-
ber, setti rikisstjórnin sér það mark að verð-
bæturnar 1. marz yrðu ekki meiri en 5%. Sitthvað
þykir nú benda til að þær verði meiri samkvæmt
visitölunni. Þegar er farið að nefna 8% og jafnvel
hærri upphæð.
Af hálfu ýmissa sem um þessi mál hafa rætt er
haldið fram þeirri skoðun, að það skipti ekki öllu
máli hvort verðbæturnar 1. marz verða 5%, 8%
eða jafnvel 10%. Slikt þurfi ekki að hafa neina úr-
slitaþýðingu.
Vel má vera að til séu einhver ráð sem séu þess
eðlis, að litlu skipti hverjar verðbæturnar verða.
Enn mun þó ekki hafa verið bent á hver þessi ráð
eru. öllum hlýtur þó að vera ljóst, að þetta getur
skipt verulegu máli fyrir atvinnureksturinn.
Margar atvinnugreinar standa svo höllum fæti, að
litið eða ekkert má út af bera ef þær eiga ekki að
stöðvast og valda atvinnuleysi. Samdrátturinn
sem hlytist af þvi gæti svo brátt leitt til stöðvunar
á öðrum atvinnugreinum. Ef verulegt atvinnuleysi
nær að myndast magnast það oft furðulega fljótt
eins og verðbólgan. Þess vegna hefur mörgum
stjórnvöldum reynzt illa sú kenning að litil hætta
stafi af svokölluðu „hæfilegu” atvinnuleysi.
Þegar menn ræða um, að ekki skipti verulegu
máli, hvort verðbæturnar verða 5%, 8% eða 10%,
þurfa menn framar öðru að hafa atvinnuöryggið i
huga. Þegar allt kemur til alls, er það öruggasta
og bezta kjarabótin, að atvinna sé næg. Þvi aðeins
er unnt að tryggja atvinnuöryggið að ekki séu
lagðar of þungar byrðar á atvinnureksturinn,
hvort heldur er um launagreiðslur eða skatt-
greiðslur að ræða.
Það hlýtur lika að hafa mikil áhrif á verðbólg-
una, hve háar verðbæturnar verða, þvi hærri sem
þær verða þvi meiri verðhækkanir hljóta þær að
hafa i för með sér. Þetta þurfa menn lika að hafa
hugfast, ef það er alvarlegur ásetningur að reyna
að vinna að hjöðnun verðbólgunnar.
Þá er það að athuga, hvaða máli þetta skiptir
launþega. Bendir reynslan til þess, að það yrði
þeim raunverulega miklu meiri kjarabót að fá 8%
en 5%? Það skorti ekki að menn fengu i riflegum
mæli svonefndar verðbætur á siðastl. ári. En
reyndust þær raunverulegar kjarabætur? Reynsl-
an sýnir, að rauntekjurnar jukust sáralitið, þrátt
fyrir grunnkaupshækkanir. Þvi meiri sem verð-
bæturnar urðu þvi meira jókst verðbólgan og gerði
verðbæturnar að engu. Þegar þessi reynsla er höfð
i huga mun það ekki skipta launþegana neinu
höfuðmáli hvort heldur þær verða 5% eða 8% 1.
marz.
Meginmálið fyrir launþega er að verðbólgan
minnki. Einkum er þetta stórmál fyrir alla þá sem
hafa lág laun eða miðlungslaun þvi að svo skringi-
lega er verðbótafyrirkomulaginu háttað að þeir fá
minni verðbætur en hinir sem hafa hærri launin.
Atvinnuöryggi og hjöðnun verðbólgunnar skipta
launafólkið mestu. Það þarf að hafa vel i huga i
sambandi við þær efnahagsaðgerðir til lengri tima
sem nú er verið að fjalla um.
Þ.Þ.
Hún hefur þoraö að gera óvinsælar ráðstafanir
ELLA Rosa Grasso er talin sú
kona, sem náð hefur mestum
pólitiskum frama I Banda-
rikjunum. Hún er fyrsta konan
sem hefur náð kosningu sem
rikisstjóri af eigin rammleik. Aðr-
ar konur, sem áður höfðu veriö
kosnar rikisstjórar, höfðu notið
eiginmanna sinna sem höföu
gegnt rikisstjórastörfum en
gátu ekki boðiö sig fram aftur.
Þeir tryggðu sér áframhaldandi
völd á þann hátt að tefla eigin-
konunum fram i sinn stað. Ella
Grasso naut ekki sliks
stuðnings, því aö maður hennar
var kennari á eftirlaunum, þeg-
ar hún bauð sig fram. Hún haföi
þó vissan stuðning af honum,
þvi að hann sá um heimilis-
haldiö meðan á kosningabarátt-
unni stóð og hefur gert það
siðan. Jafnframt þessu er Ella
Grasso fyrsta konan sem nær
endurkosningu sem ríkisstjóri.
Ella Grasso var kjörin rlkis-
stjóri i Connecticut 1974 og var
endurkosin á siöastl. hausti. ■
Hún hafði sem rikisstjóri reynzt
aðhaldsöm á útgjöld og lækkaöi
m.a. framlög til ýmissa félags-
mála. Þetta haföi gert hana
fremur óvinsæla og þvi var taliö
hæpiö fyrir réttu ári, að hún
næöi endurkosningu. Um það
leyti varö mikil fannkoma og
ofsarok i Nýja-Englandi. Ella
Grasso taldi veðurspána sllka
að hún lét loka öllum vegum I
Connecticut og kraföist þess að
fólk héldi sig heima meðan
óveðrið væri mest. Þegar fólk
kom út eftir aö óveörinu slotaði
sannfæröist það um aö Ella
Grasso hafði haft rétt fyrir sér. t
öllum öðrum rikjum Nýja-Eng-
lands sátu bilar fastir á vegum
svo tugþúsundum skipti og höfðu
að sjálfsögöu fylgt þvi margvis-
leg vandkvæði fyrir fjölda
manns. Eftir þetta tóku vin-
sældir Ellu Grasso aö vaxa aft-
ur, enda vakti þessi ráðstöfun
hennar athygli fjölda margra,
sem annars létu sig stjórnmál
litlu varöa og töldu sig litlu
skipta hver skipaði embætti
rikisstjóra.
EN ELLA Grasso gat talið sér
margt fleira til tekna fyrst i
prófkjörinu siöastl'. sumar og
siðar i sjálfum ríkisstjóra-
kosningunum slðastl. haust.
Meðal annars gat hún bent á, að
Connecticut væri meðal fárra
rikja i Bandarikjunum, þar sem
rekstur rikisins hefði verið
hallalaus undanfarin þrjú ár.
Þeim árangri hafði hún fyrst og
fremst náð með ráðdeild og
sparnaöi. Hún sigraði lika
örugglega i prófkjörinu hjá
demókrötum og fékk um 60%
greiddra atkvæða i rikisstjóra-
kosningunum.
ELLA Grasso sem heitir fullu
nafni Ella Rosa Giovanna Olivia
Tambussi Grasso er fædd 10.
mai 1919. Foreldrar hennar
voru innflytjendur frá Italiu.
Tambussi faðir hennar var bak-
ari og hafði efni á að styöja hana
til náms. Hún lauk námi i
félagsfræði við Mount Holyoke
College, sem er meðal þekktari
skóla I Bandaríkjunum. Að
námi loknu gegndi hún ýmsum
Grasso
skrifstofustörfum, ásamt þvi að
fást við heimilisstörf, en hún
giftist 1942 itölskum kennara,
Thomas A. Grasso og eign-
uðustu þau tvö börn. Snemma
tók hún að sinna stjórnmálum
og munaði minnstu að hún yrði
repúblikani. Við nánari athugun
sætti hún sig betur við stefnu
demókrata. Arið 1953 var hún
kosin á fylkisþingið I Connecti-
cut og átti þar sæti i fjögur ár.
Þá var hún kjörin rikisritari en
það er staða sem svipar hér til
ráðuneytisstjórastöðu I for-
sætisráðuneytinu. Hún var hvað
eftir annaö endurkjörin. Arið
1970 náði hún kosningu til full-
trúadeildar Bandarikjaþings og
var endurkosin 1972. Árið 1974
ákvaö hún aö gefa ekki aftur
kost á sér til þingmennsku,
heldur freista þess að vera
kjörin rikisstjóri, enda þótt þá-
verandi rikisstjóri sem var
repúblikani nyti mikilla vin-
sælda. Hún þótti sjálfkjörin til
framboðsins af hálfu demókrata
enda vann hún kosninguna auð-
veldlega. Hún fékk 631 þús. at-
kvæði en fráfarandi rikisstjóri
fékk ekki nema 431 þús.
EINS og áður er rakiö hefur
Ella Grasso verið umdeild sem
rikisstjóri. Hún hefur vegna
sparnaðarstefnu sinnar verið
heldur illa liðin af starfsmönn-
um rikisins og einnig hefur hún
þótt skammta naumt til félags-
mála. Aðrir meta það við hana,
að hún hefur náö hallalausum
rikisrekstri. Meðan hún sat I
fulltrúadeild Bandarikjaþings,
haföi hún forgöngu um ýmis
félagsmál. Einkum lét hún mál-
efni atvinnuleysingja til sin
taka.
Ella Grasso þykir nokkuö
skapstór og ráðrik. Það þykir
sópa að henni hvar sem hún fer.
Hún hefur meö rösklegri fram-
komu sinni náð almenningshylli
enda getur hún verið hlý og vin-
gjarnleg i framgöngu þrátt fyrir
skörungsskapinn. Þau hjón eru
sögð mjög samrýnd og þykir
vist að hún hafi góðan stuðning
af manni sinum, þótt hann veröi
aö láta sér lynda að vera maður
konunnar. t tómstundum er hún
sögö skipta timanum milli lestr-
ar og garðræktar.
Þ.Þ.
Ella Grasso og maöur hennar.